top of page

Sat, Feb 25

|

#Vatnahringir2023

Kringum Kleifarvatn um sex ólíka höfða og sandfjörur.

Létt en mjög falleg ganga kringum töfrandi fagurt vatn þar sem brölt verður upp á sex stapa/höfða sem varða leiðina og gefa ólíka sýn á þetta dulúðuga vatn.

Registration is Closed
See other events
Kringum Kleifarvatn um sex ólíka höfða og sandfjörur.
Kringum Kleifarvatn um sex ólíka höfða og sandfjörur.

Time & Location

Feb 25, 2023, 8:00 AM – 4:00 PM

#Vatnahringir2023, Kleifarvatn, 241, Iceland

Guests

About the Event

Uppfært 3. febrúar 2023:

Skráðir eru 1 manns: Jaana + báðir þjálfarar.

Lágmark 12 manns, hámark 20 manns. 

Nýjustu tilkynningar:

*Frestum þessari ferð til 25/2 með fyrirvara um hvernig veðrið þróast fyrir Þorgeirshyrnu 11/2 og föstudagsfjallið Bjólfell 24/2, veðrið ræður för. 

*Fólksbílafært.

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 10.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 13.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Grundarfjordur - Long term forecast

Leiðsögn:

Örn þjálfari.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Ásvallalaug Hafnarfirði.

Heimkoma:

Um kl. 16:00.

Aksturslengd:

Um 20+ mín. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Ásvallalaug Hafnarfirði um Krýsuvíkurleið að norðurenda Kleifarvatns þar sem bílum er lagt við vatnið. 

Hæð:

Um 220 (Geithöfði) - 400 (Vatnshlíð) m en fer endanlega eftir veðri og færð á staðnum. 

Hækkun:

Um 400m miðað við 10 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 16 - 18  km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 6 - 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Um strendur, sand, móa, gras, móbergsklappir, skriður og kletta á fjölbreyttri gönguleið þar sem brölt er upp og niður lága höfða sem varða leiðina en almennt engið rösklega með strandlengju vatnsins.

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fær öllum í sæmilegu gönguformi fyrir dagsgöngu sem er í léttari kantinum þó löng sé.

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til.

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér: 

Share This Event

bottom of page