top of page

Kristínartindar í Skaftafelli á fegursta útsýnisstað landsins

Fri, Jul 19

|

Skaftafell

Stórkostleg ganga á einstaklega glæsilega tinda með fegursta útsýni sem gefst á Íslandi að mati þjálfara. Umkringd jöklum allt í kring en samt í ilmandi skógi og grónum hlíðum á slóða alla leiðina með ágætis klöngri efst í klettunum á leið þar sem hvert skref á þessari hringleið er veisla !

Registration is Closed
See other events
Kristínartindar í Skaftafelli á fegursta útsýnisstað landsins
Kristínartindar í Skaftafelli á fegursta útsýnisstað landsins

Time & Location

Jul 19, 2024, 10:00 AM – 6:00 PM

Skaftafell, 785 Skaftafell, Iceland

About the Event

Uppfært 12. júlí 2024:

Skráðir eru x manns: + Bára og Örn þjálfarar.

Mikilvægar tilkynningar: 

*Mögulegir göngudagar eru fim, fös, laug og sun. Bára kemst fim og fös og Örn kemst alla dagana. 

*Fólksbílafært.

*Við mælum með að tjalda í Skaftafelli fyrir og eftir göngu, en hver og einn hefur þetta eins og honum hentar.  Þjálfarar koma keyrandi frá Suðurlandi í gönguna. 

*Mikilvægt að lesa vel upplýsingar um aðstöðuna í Skaftafelli hér: Skaftafell - Vatnajökulsþjóðgarður (vatnajokulsthjodgardur.is)

*Á slóða allan tímann, sumarfæri, ekki vað.

Verð:

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 12.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 15.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Þorgeirsfell - Long term forecast

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 9:00 á slaginu frá tjaldstæðinu við Skaftafell.

Heimkoma:

Um kl. 17:00 á tjaldstæðið í Skaftafelli.  

Aksturslengd:

Um 4 - 5 klst. frá Reykjavík í Skaftafell eftir því hvort menn stoppa á leiðinni. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg á þjóðvegi 1 í Skaftafellsþjóðgarð. Skilti vísa leiðina á tjaldstæðið. Athugið að greiðsla fyrir að leggja bílum í þjóðgarðinum og að tjalda er rukkuð inn út frá myndavélum inn á svæðið síðast þegar við vissum en hver og einn ber ábyrgð á þessu fyrir sig á staðnum. 

Hæð:

Um 1.132 m.

Hækkun:

Um 1.160 m miðað við 95 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 19 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 8 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið á stíg alla leiðina með nokkrum kyngimögnuðum útúrdúrum á svakalega útsýnisstaði á leiðinni. Ágætis brölt og klöngur efsta hlutann á tindinn sjálfan þar sem farið er úr fallegu skarði en þar er hægt að halda til og sleppa efsta klöngrinu. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í góðu gönguformi fyrir frekar langa og krefjandi dagsgöngu en þó á slóða allan tímann þar sem við njótum hvers skrefs og stöldrum mikið við að skoða útsýnið og landslagið í kring. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð einnig á opinni fb-síðunni www.facebook.com/fjallgongur.is = (20+) Facebook 

Share This Event

bottom of page