
Kýrgilshnúkur, Litla Skarðsmýrarfjall og Ástaðafjall niður Svartagljúfur frá Sleggjubeinsskarði í Hveragerði
Sat, Mar 07
|Hellisheiði
Mjög spennandi könnunarleiðangur um sjaldfarin fjöll á Hengilssvæðinu og Hellisheiði þar sem komið verður niður hið stórbrotna Svartagljúfur við Kambana á Þjóðvegi 1 ofan Hveragerðis.


Dagsetning og tími
Mar 07, 2026, 8:00 AM – 5:00 PM
Hellisheiði, Hellisheiði, 816, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 22. janúar 2026:
Skráðir eru x manns:
Mikilvægar tilkynningar:
*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra, metum þörf á jöklabroddum þegar nær dregur ferð.
*Tökum með vaðskó og þurrklút til öryggis ef ske kynni að við þyrftum að vaða þó það sé frekar ólíklegt (hægt að taka áhættu og vera vel skóaður og með legghlífar og sleppa vaðskónum).
*Þetta er könnunarleiðangur að hætti hússins og því áætlum við vegalengd og tímalengd eftir bestu getu, en sem fyrr komumst við að þessu með því að leggja af stað og kanna nýjar slóðir sem er okkar uppáhalds.



