top of page

Laxárgljúfur frá Brúarhlöðum að Heiðarárdrögum við Heiðarvatn legg 12

Fri, Aug 30

|

Laxárgljúfur

Gullfalleg leið um heiðina að Laxárgljúfrum og svo meðfram gljúfrunum upp á hálendið þar sem við yfirgefum loksins byggð á þverun okkar yfir landið og höldum inn í óbyggðirnar #ÞvertyfirÍsland

Laxárgljúfur frá Brúarhlöðum að Heiðarárdrögum við Heiðarvatn legg 12
Laxárgljúfur frá Brúarhlöðum að Heiðarárdrögum við Heiðarvatn legg 12

Dagsetning og tími

Aug 30, 2024, 7:00 AM – 9:00 PM

Laxárgljúfur, Laxárgljúfur, 804, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært 29. ágúst 2024 kl. 11:30:

Skráðir eru 8 manns: Aníta, Ása, Bára, Guðjón, Kolbeinn, Sighvatur, Sjöfn Kr. og Örn.

Jeppar/jepplingar: 

1. Örn, Bára

2. Aníta

3. Kolbeinn ?

4. ?

Mikilvægar tilkynningar: 

* Jepplingar komast; þjálfarar keyrðu jeppaslóðann og svo línuveginn að Heiðarvatni ofan við gljúfrin þann 21. ágúst og tók aksturinn 45 mín upp eftir og 37 mín niður eftir. Við þurfum 4 jeppa/jepplinga fyrir 10 manns (5 manns í 2 bíla til að geta skilið annan eftir við endastað göngunnar). Ef fleiri en 10 manns skrá sig þurfum við 6 bíla fyrir 15 manns og 8 bíla fyrir 20 manns. Röðum okkur í bíla vikuna fyrir ferðina.  

*Kanna með 16 manna fjallasprinter ef 16 manns skrá sig og menn vilja spara þennan 1,5 klst. akstur við að ferja bíla að endastað.

*Tökum með vaðskó og þurrklút þar sem stikla þarf og vaða nokkrum sinnum (ekki stórar ár á þessum legg eins og þeim næsta). 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 7:00 á slaginu frá Össuri, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 21:00.   

Aksturslengd:

Um 1,5 klst. í Brúarhlöð og 2 x 45 mín upp jeppaslóðann og línuveginn í Heiðarárdrög við norðurenda Laxárgljúfra þar sem gangan endar en fer endanlega eftir ástandi jeppaslóðans viðkomandi dag NB.

Fólksbílafært í Brúarhlöð en jepplingafært í Heiðardrög að Leirá.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg um Þingvallaleið, Lyngdalsheiði, gegnum Laugarvatn F37 í Geysi og þaðan á vegi F35 þar til beygt er til hægri veg F30 niður að Brúarhlöðum yfir Hvítá þar sem gangan hefst en fyrst skutlum við bílum upp í Heiðarárdrög um jeppaslóðann og línuveginn í Hrunamannaafrétti.

Hæð:

Um 479 m.

Hækkun:

Um 500 m miðað við 100 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 22 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 8 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið um heiðina í grasi, mosa og grjóti þar sem við þurfum að stikla yfir læki og vaða oftar en einu sinni, en þegar komið er að gljúfrunum er góður göngustígur meðfram þeim öllum alla leið upp að Heiðarárdrögum þar sem stórkostleg gljúfrin skreyta ferðina með sinni hrikalegu fegurð. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í góðu gönguformi fyrir frekar langa en greiðfæra dagsgöngu á góðum slóða rúmlega helming leiðarinnar með ágætis brölti um heiðarland með nokkrum vatnsföllum fyrri hlutann.  

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð einnig á opinni fb-síðunni www.facebook.com/fjallgongur.is = (20+) Facebook 

Deildu hér

bottom of page