top of page

Miðdalur Esju um Kerlingargil, Dýjadalshnúk, Tindstaðafjall, Selfjall, Kistufell nyrðra og Þórnýjartind #Esjudali... (1)

Sat, Mar 16

|

Esjudalirnir

Stórbrotin ný hringleið um dal tvö af átta í Esjunni á árinu 2024, þar sem farið verður upp með hinu glæsilega Kerlingargili og þrætt um alls fimm "tinda" í norðvesturhluta Esjunnar með stórkostlegu útsýni til allra átta og niður þrjá dali hennar, Blikdal, Miðdal og Eilífsdal.

Registration is Closed
See other events
Miðdalur Esju um Kerlingargil, Dýjadalshnúk, Tindstaðafjall, Selfjall, Kistufell nyrðra og Þórnýjartind #Esjudali... (1)
Miðdalur Esju um Kerlingargil, Dýjadalshnúk, Tindstaðafjall, Selfjall, Kistufell nyrðra og Þórnýjartind #Esjudali... (1)

Time & Location

Mar 16, 2024, 8:00 AM – 5:00 PM

Esjudalirnir, Esjan, 162, Iceland

About the Event

Uppfært 15. mars 2024 kl. 21:00:

Skráðir eru 11 manns:  Agnar, Bára, Birgir, Gulla, Gunnar Viðar, Jaana, Linda, Maggi, Siggi, Steinar R. og  Örn. 

Nýjustu tilkynningar:

*Reynum aftur að hafa þessa ferð en henni var aflýst v/dræmrar mætingar 2. mars. Höfum Eilífsdalinn á hliðarlínunni um páskana eða síðar eftir áhugakönnun varðandi það. 

*Jöklabroddar, ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra. Að ganga á jöklabroddum með ísexi þjálfast fyrst og fremst með notkun, svo grípum hvert tækifæri sem gefst yfir veturinn til að setja á okkur broddana, svo okkur sé það tamt að nota þá. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Bára og Örn.

Brottför:

Kl. 08:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl.  16 - 17:00.

Aksturslengd:

Um 30 mín. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg meðfram Esjunni og beygt til hægri inn Miðdal stutt hjá Hvalfjarðargöngunum þar sem bílum er lagt á góðu malarstæði neðan við Kerlingargilið.

Hæð:

Um 820 m.

Hækkun:

Um 950 m miðað við 130 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 14 - 15 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Upp grasi grónar og snarpar brekkurnar við Kerlingargilið og brúnir þess raktar áleiðis upp í gífurlega fallegu útsýni. Komið upp á Tindstaðafjall í snarpri, grýttri og að hluta til mosagróinni brekku upp á hinn hvassa og svipmikla Dýjadalshnúk sem er magnaður útsýnisstaður. Þrætt upp með breiðum fjallsrima Tindstaðafjalls á Selfjall (mynd viðburðar tekin þar) og fram á brúnir Kistufells nyrðra þar sem kyngimagnað útsýni gefst niður Blikdal Esjunnar sem verður hringaður í apríl. Snúið til norðausturs að Þórnýjartindi sem gnæfir yfir Eilífsdal og Miðdal í stórkostlegu útsýni til norðurs og brölt niður grýttar en vel færar brekkur hans í skemmtilegu klöngri og snúið til vesturs um  Miðdal að bílunum neðan við Kerlingargil en á þessum síðasta kafla má búast við lækjarsprænum og grasgiljum niður með brekkunum. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir miðlungs langa dagsgöngu frekar bratta leið upp og niður en mjög skemmtilega og vel færa öllum sem á annað borð eru að brölta á fjöll.  

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Share This Event

bottom of page