
Níu tindar Mósó á 31 km röskri göngu
Thu, Apr 23
|#Mosófjöllin
Mjög spennandi hringleið um fjallstindana í Mósó þar sem þrætt verður á alla tindana sunnan Þingvallavegar; Úlfarsfell, Hafrahlíð, Reykjaborg, Þverfell, Torfdalshrygg, Grímmannsfell, Reykjafell, Æsustaðafjall og Helgafell í Mósó. Alls um 31 km á 9 klst. með um 1300 m hækkun á rösklegri göngu.


Dagsetning og tími
Apr 23, 2026, 8:00 AM – 5:00 PM
#Mosófjöllin, Skarhólabraut, 270 Mosfellsbær, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 22. apríl 2026:
Skráðir eru 14 manns: Bára, Björg, Fanney, Guðný Ester, Gulla, Gunnar G., Hjörtur, Inga, Linda, Oddný, Siggi, Sighvatur, Silla og Örn.
Mikilvægar tilkynningar:
*Mjög löng og krefjandi ganga sem er góð til þjálfunar fyrir krefjandi ferðir í sumar og tilvalin æfingaferð fyrir Ofurgönguna um Ketildali á Vestfjörðum í maí. Fyrir þá sem vilja máta sig við svona langa göngu en eru hikandi eða vilja prófa að ganga hluta af leiðinni, þá er einfalt að láta sækja sig á miðri leið ef menn hafa einhvern til þess.
*Þjálfari fór þessa leið sumarið 2025 með hliðsjón af hinu frábæra 7 tinda hlaupi Mosfellinga en leiðin er þó ekki alveg sú sama. Þessi hringleið er nánast öll á stíg, en þó ekki kaflinn frá Torfdalshrygg á Grímmannsfell. Það er vatn alla leiðina nema síðasta hlutann (Reykjafell, Æsustaðafjall og Helgafelli Mosó) og hvergi eru tæpistigur né varasamir kaflar. Mýrlent er…