
Páskafimman 2025 - hreyfum okkur alla fimm páskadagana og njótum hverrar sekúndu
Thu, Apr 17
|Páskaáskorun
Páskaáskorun Toppfara árið 2025: Tökum einhvers lags hreyfingu í lágmark hálftíma á dag, alla fimm páskadagana. Öll hreyfing tekin gild og gaman að útfæra þetta á ýmsa vegu eins og að taka fimm fjöll eða fimm mismunandi hreyfingu eða annað.


Dagsetning og tími
Apr 17, 2025, 6:00 AM
Páskaáskorun, Iceland
Nánari upplýsingar
Páskafimman 2025 !
Hreyfum okkur alla páskadagana fimm, í lágmark hálftíma í senn. Útfærum þessa áskorun eins og hentar, t.d. með því að ganga á fimm fjöll, hreyfa sig fimm mismunandi íþróttir (ganga, hjól, fjallganga, sund, lyftingar = 5 ólíkar hreyfingar) eða bara taka fimm göngur á vinafjallið sitt alla fimm dagana.
Hefst skírdag fim 17. apríl og lýkur mán annan í páskum 21. apríl.
Þátttökureglur:
1. Áskorun tekur fimm daga og hreyfingin þarf að fara fram alla fimm dagana (ekki sleppa úr degi sem sé).
2. Hvaða hreyfing sem er tekin gild, inni eða úti.