top of page

Páskafimman - fimm fjallgöngur eða önnur hreyfing um páskadagana fimm

Mon, Apr 18

|

Páskaáskorun 2022

Páskaáskorun Toppfara 2022: Göngum á fimm fjöll... eða förum út að hreyfa okkur alla fimm páskadagana gangandi, skokkandi, hjólandi, skíðandi, syndandi...

Registration is closed
See other events
Páskafimman - fimm fjallgöngur eða önnur hreyfing um páskadagana fimm
Páskafimman - fimm fjallgöngur eða önnur hreyfing um páskadagana fimm

Time & Location

Apr 18, 2022, 11:00 PM

Páskaáskorun 2022, Iceland

Guests

About the Event

Páskafimman 2022 ! 

Fimm fjallgöngur, skokk, hjól eða önnur hreyfing úti við um páskana að lágmarki 30 mín í hvert sinn.

Hefst fim 14. apríl og lýkur mán 18. apríl.

Þjálfarar skora á alla Toppfara og aðra áhugasama að ganga á fimm fjöll eða fimm tinda eða fara fimm sinnum í fjallgöngu (t.d. 5 x #vinafjalliðmitt) ... eða út að hreyfa sig fimm sinnum yfir páskana skokkandi, hjólandi, gangandi, skautandi, skíðandi... eina skilyrðið er fimm aðskilin skipti og að hreyfingin sé úti við (ekki inniæfingar).  

Þátttökureglur:

1. Áskorun tekur fimm daga, hefst fim 14. apríl og lýkur mán 18. apríl.

2. Ganga má á hvaða fjall, fell sem er eða hvaða hreyfing sem er svo lengi sem hún er úti við.

3. Hver og einn meldar inn á viðburðinn samantektina á fimmunni sinni þegar þeim er lokið, en mjög gaman ef menn melda hverja og eina inn með einni ljósmynd. Myllumerkja #PáskafimmaToppfara #Toppfaraáskorun.

4. Útfæra má þessa fimmu enn meira með því að melda inn fimm fugla, fimm hjörtu, fimm ský eða hvað eina fimm eitthvað þessa fimm daga. 

5. Dregið verður úr öllum þátttakendum og vinningurinn er hefðbundin tindferð að eigin vali.

6. Aukavinningur fyrir flottustu ljósmyndina er hefðbundin tindferð. Engar sjálfmyndir takk... eins og alltaf í okkar áskorunum... tökum eftir umhverfinu og tökum frekar myndir af því en okkur sjálfum. 

Sjá viðburðinn hér á fb:

Share This Event

bottom of page