top of page

Sun, Jul 16

|

#FjöllinaðFjallabaki

Sauðleysur við Landmannahelli

Mjög spennandi, stuttur og einstakur könnunarleiðangur á sjaldfarin og óþekkt fjöll í Friðlandinu að Fjallabaki sem skreyta miðlegg Hellismannaleiðar og umlykja ægifagurt fjallavatn sem lúrir hulið milli fjalla og fáir ná að sjá.

Registration is Closed
See other events
Sauðleysur við Landmannahelli
Sauðleysur við Landmannahelli

Time & Location

Jul 16, 2023, 8:00 AM – 5:00 PM

#FjöllinaðFjallabaki, Island, 851, Iceland

About the Event

Uppfært 22. júní 2023: 

Skráðir eru 4 manns: Aníta, Bára, Sjöfn Kr., Örn. 

Nýjustu tilkynningar:

*Frestum þessari ferð vegna veðurs og lítillar þátttöku til sun 16. júlí en til vara er laug 15. júli eftir því hvenær ofurgangan kringum Langasjó verður. Færum dagsetningu til þegar nær dregur ef þarf. 

*Jepplingar helst, fjórhjóladrifnir bílar komast.

*Tökum vaðskó og þurrklút meðferðis ef vaða þarf Helliskvíslina eða álíka vatnsföll. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 10.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 13.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 16:00

Aksturslengd:

Um 2,5 klst. Jeppar eða jepplingar. 

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg að Landvegamótum þar sem beygt er til vinstri og ekinn þjóðvegur 26 þar til beygt er til hægri um Dómadalsleið inn á hálendi um veg F225 og hann ekinn í rúman hálftíma þar til komið er að Helliskvíslinni við Landmannahelli þar sem gangan hefst.

Hæð:

Um 910 m.

Hækkun:

Um 600 m miðað við 610 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 7 - 8 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 3 - 4 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið frá jeppaslóðanum við Helliskvísl upp á  grasi gróna og ágætlega færa fjallshnúkana sem umkringja Sauðleysuvatn og gefa stórkostlegt útsýni yfir Fjallabakið og alveg nýtt sjónarhorn yfir Friðlandið, á Heklu, Rauðufossafjöll og Rauðufossa, Löðmund, stóran hluta Hellismannaleiðar, yfir Landmannahelli og alla leið til jöklanna á Suðurlandi. Á færi allra í sæmilegu gönguformi fyrir stutta og mjög spennandi gönguleið sem fáir hafa farið. 

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir stutta dagsgöngu með ágætis brölti upp og niður þrjá stóra og aðra minni hnúka á hringleið kringum töfrandi fagurt fjall sem fáir berja augum.  

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Share This Event

bottom of page