top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Síðasta "alvöru" fjallið á tímamælingu ársins er Vífilsfell !

Thu, Sep 04

|

#Fjallatími

Hin áskorun Toppfara árið 2025 er að mæla tímann upp og niður á tólf fjöllum á tólf mánuðum eða færri eftir vali og taka þannig púlsinn á sér reglulega og bera saman milli mánaða og ára og helst nýta þessa mælingu til að bæta þolið. Vífilsfell er áttunda fjallið af tólf ! #Fjallatími

Síðasta "alvöru" fjallið á tímamælingu ársins er Vífilsfell !
Síðasta "alvöru" fjallið á tímamælingu ársins er Vífilsfell !

Dagsetning og tími

Sep 04, 2025, 5:00 PM – 7:00 PM

#Fjallatími

Nánari upplýsingar

Hin áskorun ársins 2025.. er að mæla tímann okkar upp, niður og alls á tólf æfingafjöll á tólf mánuðum eða þeim æfingafjöllum sem við viljum og skráum hann niður... til að bæta þolið og taka púlsinn á okkur milli mánaða og ára.


Það gefur okkur aðhald og hvatningu en keppum fyrst og fremst við okkur sjálf:


Leiðbeiningar um leiðina upp Vífilsfell:


*Farið frá hefðbundna bílastæðinu neðan við Vífilsfell þar sem lokunarhlið er á veginum að námunum, næg bílastæði eru þar.

*Slóðinn er fjölfarinn og auðgreinanlegur alla leið upp á efsta tind.

*Þetta er algengasta leiðin upp og niður fjallið en fara þarf varlega í skriðkenndum stígnum, á klöppunum ofar og í reipunum efst.


Deildu hér

bottom of page