top of page

Skarðsfjall á Suðurlandi stutta og létta göngu á fjölbreytt og gjöfult útsýnisfjall

Sun, Feb 04

|

#Skarðsfjall

Stutt og létt en mjög spennandi ganga á lítið þekkt fjall sem gefur magnað útsýni til Heklu og yfir vatnasvið Þjórsár og Rangár. Tilvalin ganga fyrir nýliða og þá sem vilja styttri dagsgöngur á fjall með heilmiklu landslagi og fjölda sérstakra örnefna.

Registration is Closed
See other events
Skarðsfjall á Suðurlandi stutta og létta göngu á fjölbreytt og gjöfult útsýnisfjall
Skarðsfjall á Suðurlandi stutta og létta göngu á fjölbreytt og gjöfult útsýnisfjall

Time & Location

Feb 04, 2024, 1:00 AM – 5:00 PM

#Skarðsfjall, Landvegur, 851, Iceland

Guests

About the Event

Uppfært 27. janúar 2024:

Skráðir eru 4 manns: Bára, Brynjar, Kristjana og Örn.

Nýjustu tilkynningar:

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Örn. 

Brottför:

Kl. 9:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 17:00.

Aksturslengd:

Um 1,5+ klst. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg að Landvegamótum (wc-stopp þar) þar sem beygt er til vinstri inn veg F26 og hann ekinn um sveitir Suðurlands, þar til komið er að suðurtagli Skarðsfjalls þar sem bílum er lagt í smá útskoti við þjóðveginn. Þjálfarar hitta hópinn við afleggjarann þar eða fyrr en menn eru óöruggir að rata, sjá nánari upplýsingar þegar nær dregur um akstursleiðina á lokaða fb-hópi Toppfara. 

Hæð:

Um 340 m.

Hækkun:

Um 390 m miðað við 95 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 9 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 4 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið aflíðandi grasi gróna leið upp lága hjalla fjallsins til norðurs þar sem farið er upp og niður gil og dali þar til komið er á hæsta tind þar sem mikið útsýni blasir við til Þjórsárdals, Búrfells og Heklu sem og yfir vatnasvið Þjórsár og Rangár fyrir utan blómlega Landsveitina. 

Erfiðleikastig:

Um 1-2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir stutta og létta göngu á mikið útsýnisfjall með heilmiklu landslagi þar sem farið er  aflíðandi leið upp og niður ljúfa leið.   

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Share This Event

bottom of page