top of page

Sat, May 25

|

Skarðsheiðin

Skarðsheiðin endilöng kyngimagnaða leið á alla tindana

Ævintýraleg leið yfir alla Skarðsheiðina með viðkomu á öllum hennar efri tindum á glæsilegri og mjög fjölbreyttri leið með stórkostlegu útsýni til allra átta.

Skarðsheiðin endilöng kyngimagnaða leið á alla tindana
Skarðsheiðin endilöng kyngimagnaða leið á alla tindana

Time & Location

May 25, 2024, 7:00 AM – 8:00 PM

Skarðsheiðin, Skarðsheiði, 301, Iceland

About the Event

Uppfært 3. apríl 2024:

Skráðir eru x manns:  + Bára og Örn þjálfarar. 

Nýjustu tilkynningar:

*Jöklabroddar, ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra en metum endanlega þörf á jöklabroddum þegar nær dregur.

*Ferja þarf bíla milli upphafs- og endastaðar. Best að 5 manns skipti sér niður á 2 bíla fyrir brottför til að einfalda málin. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Bára og Örn.

Brottför:

Kl. 07:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 20:00.

Aksturslengd:

Um 1+ klst. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Vesturlandsveg, Hvalfjarðargöng, inn þjóðveg F520 þar sem helmingur bíla er skilinn eftir á góðu bílastæði við eyðibýlið Efra skarð. Ekið áfram á hinum helmingi bíla inn eftir á F520 og upp á Dragháls og niður í Skorradal þar sem beygt er til vinstri tvisvar að afleggjara merktur "Selsskógur" þar sem bílum er lagt. Í lok göngu náum við í þessa bíla við Draghálsinn frá Efra skarði þar sem við enduðum gönguna (stuttur akstur á milli). 

Hæð:

Um 1.070 m.

Hækkun:

Um 1.580 m miðað við 68 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 21 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 10 - 11 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Upp aflíðandi, grýttar brekkurnar á Mórauðahnúk og þegar komið er þar upp tekur við ganga yfir meginland Skarðsheiðarinnar þar sem brölt er upp og niður stuttar brekkur á alla tindana sem mótast hafa af kömbum fjallgarðins beggja vegna með stórkostlegu útsýni beggja vegna Skarðsheiðarinnar frá enda í enda.

Erfiðleikastig:

Um 3 - 4 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir langa en greiðfæra dagsgöngu með reglulega brölti og klöngri upp og niður tindana eftir allri heiðinni. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Share This Event

bottom of page