Skessuhorn - Skarðsheiðardraumurinn
Sat, Jun 12
|Skessuhorn - Skarðsheiðardraumurinn
Glæsileg ganga á færi allra í formi fyrir miðlungs krefjandi dagsgöngu á magnað útsýnisfjall í norðanverðri Skarðsheiði sem trónir yfir öllu öðru á svæðinu og togar mann alltaf til sín. Skessuhorn er ellefti tindurinn af öllum 22 á Skarðsheiðinni sem við ætlum að ganga á árið 2021.
Dagsetning og tími
Jun 12, 2021, 8:00 AM – 5:00 PM
Skessuhorn - Skarðsheiðardraumurinn, Skessuhorn, Iceland
Nánari upplýsingar
Þátttaka - uppfært kl. 20:40 á föstudagskvöld:
Staðfestir eru 15 manns : Bára, Bjarni, Gerður Jens, Gulla, Haukur, Jaana, Kolbeinn, Ragnheiður, Oddný, Silla, Starri, Valdi gestur, Þorleifur, Þórkatla, Örn.
Laus 15 pláss.
Inneign frá fyrri helgi: Ása, Ásmundur, Beta, Björgólfur, Fanney, Jóhanna D., Linda, Oddný, Sigrún Bj., Sigrún E.,Villi, Þorleifur.
Verð:
Kr. 3.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í aðra hvora tvær síðustu tindferðir eða ef bæði hjón/vinapar mæta.
Kr. 5.000 fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 7.000fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti: Örn er í síma: 588-5277 eða 899-8185 og Bára í 867-4000 og orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Skráning og skilmálar:
Brottför í tindferð er alltaf staðfest endanlega út frá veðurspá á fimmtudagskveldi en þátttökufjöldi hefur helst ekki áhrif nema óskaplega fáir hafa meldað sig.
Lágmark 15 manns, hámark 30 manns.
Veðurspár:
www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár en taka þarf með í reikninginn að um fjalllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: https://www.yr.no/place/Iceland/Vesturland/Skessuhorn/
Leiðsögn:
Þjálfarar.
Brottför:
Kl. 8:00 frá Össur Grjóthálsi 5 þar sem sameinast er í bíla og ekið í samfloti. Allir taka þátt í bensínkostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig. Bílstjóri undanskilinn bensínkostnaði nema eingöngu tveir séu í bílnum. Skiptumst á að skaffa bíl og fá far og deilum bensínkostnaði - viðmiðið er 1.500 kr fyrir hvern hálftíma í akstri sem deilist niður á alla í bílnum (bílstjóri undanskilinn bensínkostnaði ef farþegar eru fleiri en einn). Endilega íhugum þessa einföldu reglu og slípum hana til ef mönnum finnst þetta ekki rétt viðmiðunarupphæð.
Heimkoma:
Um kl. 17 - 18:00.
Aksturslengd:
Um 1:15 klst.
Akstursleiðarlýsing:
Ekið um Vesturlandsveg og beygt til hægri inn veg nr. 50 stuttu fyrir Borgarfjarðarbrú, ekið inn í Skorradal að bænum Horni þaðan sem er gengið.
Hæð:
Um 970 m.
Hækkun:
Alls um 900 m með öllu.
Göngulengd:
Um 14 km en fer endanlega eftir leiðarvali og er alltaf breytilegt eftir veðri, færð og gönguhópi.
Göngutími:
Um 7 klst. en fer eftir endanlegu leiðarvali og er alltaf breytilegt eftir veðri, færð og gönguhópi.
Leiðin:
Um gróið land lengi vel, gras, mosa og móa aflíðandi leið og svo nokkuð þétt uppganga um klettahjalla alla leið á tindinn sem er sléttur efst og magnaður útsýnispallur.
Erfiðleikastig: Um 2 - 3 af 6 eða fær öllum í ágætis gönguformi fyrir nokkuð krefjandi dagsgöngu á fremur bratt en vel fært fjall í klettahjöllum með langa aflíðandi aðkomu.
Búnaður:
Sjá upptalningu undir búnaður - farið vel yfir listann og passið að hafa góða skó, hlý föt, góðan hlífðarfatnað, vettlinga og höfuðfat og nóg að drekka og orkuríkt að borða fyrir langan dag. Öruggast að taka keðjubroddana til öryggis en ætlunin er að ganga á þetta fjall í sumarfæri svo ef snjóalög eru í fjallinu og kalt í veðri þá frestum við þessari ferð.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.
Viðburðurinn á fb hér: https://fb.me/e/1viSNhYi3