top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Sprengisandur dagsferð 36 km á 8-9 klst. frá Fagrafossi að Svartá greiðfærri leið með öðruvísi upplifun af hálendinu

Sat, Jul 25

|

Sprengisandur

Mjög spennandi ganga yfir sjálfan Sprengisand þar sem gengið verður á veginum í víðáttu og útsýni sem eingöngu hálendið getur gefið. Frekar löng dagleið en greiðfær og fljótfarin á færi allra í góðu gönguformi. Stórkostleg og öðruvísi upplifun af hálendinu !

Sprengisandur dagsferð 36 km á 8-9 klst. frá Fagrafossi að Svartá greiðfærri leið með öðruvísi upplifun af hálendinu
Sprengisandur dagsferð 36 km á 8-9 klst. frá Fagrafossi að Svartá greiðfærri leið með öðruvísi upplifun af hálendinu

Dagsetning og tími

Jul 25, 2026, 7:00 AM – 11:00 PM

Sprengisandur, Sprengisandur, 645, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært 24. júlí 2026:


Skráðir eru 8 manns: Aníta, Ása, Bára, Björg, Brynjar, Guðjón, Gulla, Örn = 3 jeppar/jepplingar


Laus 2 pláss.

Fimm manns fara úr bænum kl. 07 í Hrauneyjar kl. 09 og keyra á 3 bílum að Svartá og skilja 2 bíla eftir við endastað og keyra til baka að upphafsstað göngunnar við Fagrafoss. Hinir þrír fara klukkutíma seinna úr bænum og mæta við Fagrafoss kl. 11 þar sem gangan hefst. Könnum vatnsbirgðir og vaðþörf á gönguleiðinni á leiðinni og skiljum eftir vatnsflöskur á leiðinni til að spara burð ef ekkert drykkjarvatn er alla gönguleiðina. Sjá nánar umræður á spjallhópi á messenger.


Deilum bensínkostnaði í lok ferðar NB.


Mikilvægar tilkynningar: 


Deildu hér

bottom of page