top of page

Fri, Sep 15

|

#Laugavegsfjöllin

Stórkonufell og félagar við Laugavegsgönguleiðina #Laugavegsfjöllin

Mergjuð hringleið á fjöllin sem skreyta Laugavegsgönguleiðina en mjög fáir ganga á, upp á Tudda, Tvíböku, Stóra Mófell, Mófellshnausa, Litla Mófell, Stórkonufell og loks Útigönguhöfða um sanda, grjót og mosabrekkur með stórkostlegu útsýni yfir Laugaveginn og fjöll og jökla allt í kring.

Registration is Closed
See other events
Stórkonufell og félagar við Laugavegsgönguleiðina #Laugavegsfjöllin
Stórkonufell og félagar við Laugavegsgönguleiðina #Laugavegsfjöllin

Time & Location

Sep 15, 2023, 7:00 AM – 7:00 PM

#Laugavegsfjöllin, Stórkonufell, 861, Iceland

About the Event

Uppfært 14. september kl. 21:00 : 

Skráðir eru 10 manns:  Gerður Jens., Jaana, Leiknir, Maggi, Sighvatur, Sigríður Lísabet, Tinna, Þórkatla + báðir þjálfarar. 

Jeppar:

1. Örn, Bára + Leiknir, Sighvatur, Tinna - frá Hvolsvelli kl. 8:15. 

2. Þórkatla, Gerður Jens., Jaana, Maggi, Sigríður Lísabet - frá Rvík. 

Þriðji jeppinn laus ef þarf.

Nýjustu tilkynningar:

*Frestum þessari ferð um tvær vikur vegna veðurs, til laug 16. september en Jarlhetturnar eru á dagskrá þá og víkja ef veður leyfir á Stórkonufell. Höldum samt Jarlhettunum á sömu dagsetningu þar sem þetta er ekki sama landsvæði ef ske kynni að það viðri á Jarlhettur en ekki Stórkonufell en annars víkja Jarlhetturnar þar sem akstursleið er ekki eins erfið þegar fer að vetra þangað upp eftir eins og um Emstruleið. Metum veðurspá í vikunni fyrir 16. september. 

*Jeppar (ath jepplingar) um Emstruleið, fáum rútu ef við náum 20 manns og þá bætist rútugjald við verð ferðar. 

Verð:

Kr. 7.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mætt hafa í tvær tindferðir síðustu 2 mánuði NB.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 12.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 15.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn www.yr.no þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 7:00  á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 19:00 en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Aksturslengd:

Um 3+ klst. Jeppar eða jepplingar.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg á Hvolsvöll og þaðan ekið inn Fljótshlíð og áfram jeppaslóðann um Emstruleið að fjallsrótum. 

Hæð:

Um 919 m.

Hækkun:

Um 900 m miðað við 540 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 13 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. 

Göngutími:

Um 6 - 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið um sanda og upp grasi grónar brekkur upp á átta mishá fjöll / höfða á ægifagurri hringleið á hálendinu.

Erfiðleikastig:

Um 2-3 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir miðlungs langa dagsgöngu á tilraunakenndri leið um ótroðnar slóðir sem eru að mestu greiðfærar með smávegis brölti á hærri fellunum.   

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Viðburður á fb hér: 

Share This Event

bottom of page