
Svartagljúfur, Ástaðafjall; Hverakjálki og Molddalahnúkar upp með Hengladalaá og niður Klambragil um Reykjadal
Sat, Jan 02
|Reykjadalur Hot Spring Thermal River
Stutt og létt ganga upp með ánni og gljúfrinu sem skreytir Kambana ofan Hveragerðis við þjóðveg 1 þar sem fjallsbrúnir og tindar ofan Reykjadals verða raktir og Reykjadalur svo genginn til baka á ljúfri yfirferð með frábæru útsýni í einstöku landslagi jarðhita og hvera á þessu svæði.


Dagsetning og tími
Jan 02, 2027, 10:00 AM – 4:00 PM
Reykjadalur Hot Spring Thermal River, Reykjadalur 816, 816, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 25. nóvember 2026:
Skráðir eru x manns:
Í hnotskurn:
*Um 10 km á 5 klst. upp í 394 m hæð með alls um 500 m hækkun úr 80 m upphafshæð.
*Gengið á slóða til að byrja með meðfram Hengladalaá og brölt í grasi, mosa og grjóti upp með Svartagljúfri upp kambana með þjóðveg 1 í seilingarfjarlægð alla leið upp á fjallsbrún og þeirri brún fylgt eftir til norðurs með mögnuðu útsýni yfir Hveragerði og Reykjadal þar sem Molddalahnúkar verða þræddir alla leið að Klambragili þar sem komið er á ferðamannaslóðir og þær gengnar niður eftir Reykjadal hefðbundna leið á stíg til baka. Einstök leið og ný ásýnd og upplifun af þessu svæði þar sem komið er bakdyramegin að þekktum slóðum Reykjadals.
*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra og metum þegar nær dregur þörf á jöklabroddum og ísexi.