top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Þóristindur, Dálkur og Hattur við Þórisvatn á sjaldfarna tinda á hálendinu

Sat, Sep 19

|

Þóristindur, 851, Iceland

Stutt, frekar létt og greiðfær leið á glæsilega tindinn sem blasti við okkur af Laufdalseggjum í fyrra og stelur alltaf senunni þegar ekið er um Hrauneyjaleið frá Landmannalaugum. Göngum á tindana Dálk og Hatt í leiðinni enda ekki annað hægt með þessi nöfn í nágrenninu !


Registration is Closed
Þóristindur, Dálkur og Hattur við Þórisvatn á sjaldfarna tinda á hálendinu
Þóristindur, Dálkur og Hattur við Þórisvatn á sjaldfarna tinda á hálendinu

Dagsetning og tími

Sep 19, 2026, 8:00 AM – 7:00 PM

Þóristindur, 851, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært 18. september 2026:


Skráðir eru 18 - 21 manns: (Aníta), Ása, Ásdís, Bára, Dina, Einar, Erik, Guðný Ester, (Guðrún G.) gestur), Gulla, Gunnar G. Hörður, Jaana, María E., Sighvatur, Stína, Sigríður Lísabet, (Sigrún Bj.), Silla, Sjöfn Kr., Örn.


Í hnotskurn:


*Um 12+ km á 5 - 6 klst. upp í um 800 m hæð með 500 m hækkun úr 560 m upphafshæð.

*Brottför kl. 08.00 frá Össuri Rvík eða kl. 10:00 frá Hrauneyjum, tæplega 30 mín akstur frá Hrauneyjum að Þóristindi. Malbikað alla leið nema síðustu 6 km á greiðfærum malarvegi og því fært fjórhjóladrifnum bílum (nánast fólksbílum). Heimkoma um kl. 19 miðað við 5-6 klst. göngu og 2,5 klst. akstri.

*Gengið á sandi að mestu og mosa að hluta, létt brölt upp á Þóristind þekkta leið (og valkvætt að taka meira klöngur norðan megin þeir sem vilja) og létt brölt í könnunarleiðangri ótroðnar slóðir á Dálk og Hatt…


Deildu hér

bottom of page