Þórólfsfell í Fljótshlíð á föstudegi #Föstudagsfjallgöngur
Fri, Apr 28
|#Föstudagsfjallgöngur
Frekar létt en mjög falleg ganga á reisulegt fjall í Fljótshlíðinni með stórkostlegu útsýni til jöklanna, hálendisins, Þórsmerkur og Markarfljóts til sjávar þar sem við skoðum tvö hrikalega falleg gil í leiðinni.
Time & Location
Apr 28, 2023, 8:00 AM – 5:00 PM
#Föstudagsfjallgöngur, Þórólfsfell, 861, Iceland
About the Event
Uppfært 26. apríl 2023:
Skráðir eru 8 manns ofl. á fb: Fanney, Gulla, Jaana, Linda, Magga Páls., Sjöfn Kr. + báðir þjálfarar.
Nýjustu tilkynningar:
*Gott að lesa um Föstudagsfjöllin hér: https://www.fjallgongur.is/fostudagsfjollin
*Til að skrá sig (ef ekki í Toppförum) þarf að senda þjálfara tölvupóst en ekkert skráningargjald er í þetta föstudagsfjallgönguverkefni, eingöngu verð fyrir hverja göngu í senn.
Verð:
Kr. 7.000 fyrir klúbbmeðlimi Toppfara og einnig þá sem skráð hafa sig í Föstudagsfjallgönguhópinn með tölvupósti skv. leiðbeiningum hér: https://www.fjallgongur.is/fostudagsfjollin
Kr. 10.000 fyrir aðra en Toppfara sem ekki hafa skráð sig formlega í Föstudagsfjöllin með tölvupósti.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn www.yr.no þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.
Leiðsögn:
Þjálfarar.
Brottför:
Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.
Mæting á Hvolsvöll kl. 9:15 fyrir þá sem koma beint og ekki úr bænum.
Heimkoma:
Um kl. 17:00.
Aksturslengd:
Um 2 klst. með wc-stoppi á Hvolsvelli kl. 9:15. Fólksbílafært.
Akstursleiðarlýsing:
Ekið um Suðurlandsveg, þjóðveg 1 um Hvolsvöll en þaðan beygt til vinstri inn Fljótshlíðarveg og hann ekinn til enda og út á malarveginn við grjótruðningana að merktu bílastæði við fjallsrætur Þórólfsfell.
Hæð:
Um 560 m.
Hækkun:
Um 750 m miðað við 133 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 12 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .
Göngutími:
Um 5 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Gengið meðfram fjallinu til að byrja með og inn stórbrotið Þórólfsgilið og það skoðað áður en haldið er út úr því og upp með brúnum þess þar sem við getum áfram skoðað gilið ofan frá. Aflíðandi leið frá brúnunum á hæsta tind uppi um giljótta og marghnúkótta heiði fjallsins þaðan sem útsýnið er kyngimagnað með Tindfjallajökul á eina hönd, Eyjafjallajökul á aðra og Mýrdalsjökul á þeirri þriðju fyrir utan fjöll hálendisins, Þórsmörkina, Markarfljótið og svo sjóinn til suðurs sem blasa við okkur af tindinum, magnaður útsýnisstaður ! Farið niður með Mögugili frá því það byrjar að myndast efst í fjallinu og þegar niður er komið skulum við ganga inn í það og skoða töfra þessa gils eins og landslag leyfir. Síðasti kaflinn svo út á veg að malarstæðinu aftur.
Erfiðleikastig:
Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir frekar létta dagsgöngu á reisulegt fjall með fallegum útúrdúrum um falleg gljúfur á upp- og niðurleið.
Búnaður:
Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.
Sjá fb-viðburð hér: