top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Þríhyrningur - Föstudagsfjallið í mars = veisla !

Fri, Mar 17

|

#Föstudagsfjallgöngur

Frekar stutt en mjög fjölbreytt leið á færi allra í sæmilegu gönguformi á stíg að hluta en einnig í smávegis brölti upp á alla tindana á einstaklega svipmiklu fjalli sem býður upp á stórkostlegt útsýni til jökla Suðurlands og Heklu í návígi sem og til Vestmannaeyja og upp á hálendi.

Þríhyrningur - Föstudagsfjallið í mars = veisla !
Þríhyrningur - Föstudagsfjallið í mars = veisla !

Dagsetning og tími

Mar 17, 2023, 8:00 AM – 5:00 PM

#Föstudagsfjallgöngur, Bjólfell, 851, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært 16. mars 2023: 

Skráðir eru 6 manns; Bára, Fanney, Jaana, Sjöfn Kr., Þórkatla og Örn + báðir þjálfarar. 

Nýjustu tilkynningar:

*Staðfest brottför á fös 17/3, 6 manns staðfestir, sjáumst á Hvolsvelli kl. 9:15 eða við Össur kl. 8:00 og keyrum í samfloti upp eftir. Þetta verður friðsæll, hlýr og fallegur dagur. 

*Það stefnir í göngu á föstudag 17/3, mild og friðsæl veðurspá. Tökum ákvörðun á miðvikudagskvöld. 

*Þríhyrningur er föstudagsfjallið í mars og á þessa dagsetningu, Bjólfellið er ennþá ógengið sem febrúarfjallið og er á hliðarlínunni þegar aðrir föstudagar gefa á gott veður. 

Deildu hér

bottom of page