top of page

Sat, May 11

|

#Snæfellsnesfjöllin

Tinhyrna og Þorgeirshyrna um Þorgeirsfell Snæfellsnesi

Svipmikil ganga á glæsileg og tignarleg fjöll á Snæfellsnesi þar sem þrætt verður um kyngimagnaðar fjallsbrúnir sem koma virkilega á óvart þegar nær er komið.

Tinhyrna og Þorgeirshyrna um Þorgeirsfell Snæfellsnesi
Tinhyrna og Þorgeirshyrna um Þorgeirsfell Snæfellsnesi

Time & Location

May 11, 2024, 8:00 AM – 5:00 PM

#Snæfellsnesfjöllin, Snæfellsnes, 342, Iceland

Guests

About the Event

Uppfært 31. mars 2024:

Skráðir eru: Bára, Jaana, Örn.

*Fólksbílafært. 

Mikilvægar tilkynningar: 

*Sjá ferðasöguna frá í fyrra 2023 þar sem við lentum í þoku: Þorgeirsfell og Þorgeirshyrna Snæfellsnesi í dulúðugri þoku. (fjallgongur.is)

*Sjá ferðasöguna frá árinu 2016: Tindferð 134 Þorgeirsfell og Þor (toppfarar.is)

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Þorgeirsfell - Long term forecast

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 18 - 19:00.

Aksturslengd:

Tæpar 2 klst. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Vesturlandsveg um Hvalfjarðargöng, gegnum Borgarnes og út á Snæfellsnes þangað til komið er að afleggjaranum að bænum Hraunsmúla sem er ekinn alla leið og framhjá bænum og áfram vegaslóða til hægri þar sem við skiljum bílana eftir og göngum af stað.

Hæð:

Um 638 m.

Hækkun:

Um 900 m miðað við 30 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 13 - 14  km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 6 - 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið frá Hraunsmúla í mosa, grasi, möl og lækjum að suðurbrúnunum sem liggja milli Lýsuhyrnu og Þorgeirsfell og fundin góð leið meðfram lækjunum þar upp og þrætt svo upp með brúnum Þorgeirsfells á Þorgeirshyrnu (Miðhyrnu) og áfram eftir þeim til enda fjallsins um mjög kyngimagnaðar fjallsbrúnir og einstaklega fallegt landslag og útsýni. Tekinn krókur yfir á Tinhyrnu innar á fjallinu og snúið þaðan við góða leið til baka að brekkunum ofan við bílana. 

Erfiðleikastig:

Um 2 - 3 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir frekar stutta dagsgöngu með ágætis brölti upp snarpar brekkur og svo eftir fjölbreyttym fjallsbrúnum. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér:  

Share This Event

bottom of page