top of page

Tröllakirkja í Kolbeinsstaðafjalli á einstaklega flottan fjallstind

Sat, Jul 23

|

#Snæfellsnesfjöllin

Frekar stutt en mjög flott leið á eitt af svipmestu fjöllum Snæfellsness þar sem gengið er fallega leið um Hrútagil og Hrafnatinda og klöngrast í klettum bratta en vel færa leið upp á efsta tind sem er einn sá sérstakasti sem maður upplifir í fjallamennskunni.

Registration is Closed
See other events
Tröllakirkja í Kolbeinsstaðafjalli á einstaklega flottan fjallstind
Tröllakirkja í Kolbeinsstaðafjalli á einstaklega flottan fjallstind

Time & Location

Jul 23, 2022, 8:00 AM – 5:00 PM

#Snæfellsnesfjöllin, Snæfellsnes, 342, Iceland

About the Event

Uppfært x

Skráðir eru x manns og Örn.

Hámark 15 manns, lágmark 10 manns.

Nýjustu tilkynningar:

*Farið ef 10 manns skrá sig í þessa ferð og ath, ekki fleiri en 15 manns þar sem lítið pláss er á tindinum. 

*Sunnudagur til vara ef veðurspá þróast á þann veg en eins og staðan er núna þá er laugardagurinn sólríkur og spáð logni og hlýjindum. 

*Mynd viðburðar: Tröllakirkja vinstra megin og Hrútaborg hægra megin, tekin á göngu á Smjörhnúk og Tröllakirkju í Hítardal 6. ágúst 2011. 

*Ferðasagan af Tröllakirkju í Kolbeinsstaðafjalli þann 5. október 2013 - mögnuð ferð í vetrarfæri þar sem allir komust upp á efsta tind, ógleymanlegt með öllu ! 

Verð:

Kr. 7.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 10.000 fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 13.000 fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Ferð er ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: 

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 17:00 miðað við 1,5 klst. akstur, 6 klst. göngu og græjun við bíla fyrir og eftir göngu.

Aksturslengd:

Um 1,5 klst.  

Sameinumst í bíla og ökum í samfloti að fjallsrótum. Skiptumst á að skaffa bíl og fá far og deilum bensínkostnaði - viðmiðið er 1.500 kr. fyrir hvern hálftíma í akstri sem deilist niður á alla í bílnum (bílstjóri undanskilinn bensínkostnaði ef farþegar eru fleiri en einn). Endurskoðum reglulega þessa reglu frá FÍB og slípum hana til ef mönnum finnst þetta ekki rétt viðmiðunarupphæð.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Vesturlandsveg, Hvalfjarðargöng, gegnum Borgarnes og út á Snæfellsnesið þangað til komið er að Kolbeinsstaðafjalli þar sem beygt er inn veg nr. 55 (um Heydal) og sá vegur ekinn framhjá bæjunum Hrauntúni og Mýrdal og upp á heiðina þar sem bílar eru skildir eftir við vegakantinn. 

Hæð:

Um 876 m.

Hækkun:

Um x-888 m miðað við  82m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 10 - 11  km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 6 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið upp grasi grónar brekkurnar meðfram Hrútagili og upp þéttar grýttar brekkur Hrafnatinda áleiði á tindana ofar þar sem endað er með klöngri í klettum efst á Tröllakirkjunni. Farin svipuð leið til baka nema veður og hópur afvegaleiðis yfir á Hrútaborg í einhverju bríeríi :-) 

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir frekar stutta dagsgöngu á nokkuð einfaldi leið lengstum en þó með brölti í klettum efst alla leið á tindinn þar sem kraftur hópsins kemur öllum upp á efsta tind en tindinn þann vilja allir sem ganga á fjöll einhvern tíma upplifa !

Búnaður:

Sjá upptalningu undir búnaður - farið vel yfir listann og passið að hafa allan tindferðabúnað meðferðis, góða skó, hlý föt, góðan hlífðarfatnað, vettlinga og höfuðfat og höfuðljós. Keðjubroddar, jöklabroddar og ísexi nauðsynlegur búnaður allra þar sem reyna mun á búnað í þéttum brekkunum. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér: 

Share This Event

bottom of page