top of page

Sun, Dec 31

|

Reykjavík

Úlfarsfell er vinafjallið okkar í desember #vinafjöllinokkarx52

Úlfarsfell er desember-vinafjallið í vinafjalls-áskoruninni þar sem við göngum á einhver af 12 vinafjöllunum okkar árið 2023 og reynum að ná að lágmarki 52 ferðum á árinu.

Registration is Closed
See other events
Úlfarsfell er vinafjallið okkar í desember #vinafjöllinokkarx52
Úlfarsfell er vinafjallið okkar í desember #vinafjöllinokkarx52

Time & Location

Dec 31, 2023, 11:00 AM – 1:00 PM

Reykjavík, Grafarholt og Úlfarsárdalur, Reykjavík, Iceland

About the Event

Tólfta og síðasta vinafjallið okkar árið 2023 er Úlfarsfell !

Göngum eina ferð (eða fleiri) á það í desember við öll sem erum að taka þátt í vinafjallsáskorun ársins 2023.  

Vinafjöllin árið 2023 eru tólf og fær hvert fjall sinn mánuð þar sem allir þátttakendur verða að ganga á það fjall í þeim mánuði. 

Fjallalistinn er eftirfarandi:

Janúar: Mosfell.

Febrúar: Helgafell í Hafnarfirði.

Mars: Ásfjall í Hafnarfirði.

Apríl: Akrafjall á Akranesi.

Maí: Hafrahlíð við Hafravatn.

Júní: Þorbjörn á Reykjanesi.

Júlí: Móskarðahnúkar.

Ágúst: Vífilsfell.

September: Esjan.

Október: Helgafell í Mosó.

Nóvember: Búrfellsgjá.

Desember: Úlfarsfell.

Þannig kynnumst við vinafjöllum hinna en getum annars gengið á okkar vinafjall í öll hin skiptin... bara gaman... og bara til hvatningar fyrir okkur öll... frábær leið til að koma sér í gott fjallgönguform og viðhalda því árum saman... 

Sjá viðburðinn yfir #vinafjöllinokkarx52 árið 2023 - verum öll með... bara gaman !

Vinafjöllin okkar 2023 | Toppfarar (fjallgongur.is) 

Share This Event

bottom of page