Stekkatúnshnúkur og Húsatorfuhnúkur um Stórkonugil í Reykjafjalli ofan Hveragerðis
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 1 day ago
- 3 min read
Æfing nr. 899 þriðjudaginn 25. ágúst 2026

Í 6 tinda Ölvusalpaferðinni í febrúar á þessu ári... slepptum við Húsatorfuhnúk... og í staðinn ákváðum við að taka hann á þriðjudagsæfingu um haustið...

Nú var komið að því... og við vildum fara aðra leið en síðast... og studdumst við gps-slóð frá Hugrúnu Hannesdóttur á wikiloc á uppleið... en ætluðum svo aðra leið niður...

Mjög falleg leið... gegnum skóginn og upp brattar grónar brekkurnar...

Þegar upp var komið tók heiðin við...

Sjá bæinn hér fyrir neðan...

Stekkatúnshnúkur (ekki á mynd) var tekinn með þar sem ganga eingöngu á Húsatorfuhnúk hefði verið of lítið...

Við höfðum engan gps-punkt á Húsatorfuhnúki og þar sem við komum ofan að á hann... vissu þjálfarar ekki hvar hann var nákvæmlega en giskuðu á þennan hér...

Sjöfn, Hjörtur og Guðjón skelltu sér á Lambhagahnúk á miðri leið sem var tilvalið að gera fyrir röskari hluta hópsins... en þjálfarar héldu áætlun þar sem þeir vildu standa við það að þetta væri þriðjudagsæfing í léttari og styttri kantinum...

Á Húsatorfuhnúki hittum við heimamann sem var heldur ekki viss hvar Húsatorfuhnúkur væri, hann var einfaldlega að ganga á Reykjafjall með hundinum sínum... en við spurðum hann um uppkomuleiðina hans um Stórkonugil... og þar sem hann sagði að leiðin væri jú ágætis klöngur en fær... þá ákváðu þjálfarar að fara niður um þetta gil frekar en gilið sem upphaflega var ætlunin að fara niður um...

Mjög flott leið þar sem við létum landslagið ráða og hittum á slóða öðru hvoru...

Stórskorið og mis greiðfært eftir því hvoru megin menn eru... og enginn augljós leið í raun að sjá um gilið...

Heilmikið klöngur og mjög hollt og gott...

Hér komin hægra megin við gilið... en svo fórum við ofan í það...

Með því að klöngrast hér niður...

Aldrei of mikið af svona klöngri á þriðjudögum... góð æfing...

Síðasti maður niður... þetta var létt og fínt...

Hópmynd svo tekin á einu grjótinu í gilinu sjálfu... mættir alls 17 manns...
Standandi: María Elísabet, Ása, Hörður, Birgir, Hjörtur, Örn, Guðjón.
Sitjandi: Þorleifur, Sjöfn Kr., Oddný T., Stína, Siggi, Kolbeinn, Björg, Silla og Bára tók mynd og Batman, Kolka og Myrra voru hundar kvöldsins...

Tré um allt í gilinu... svo ótrúlega fallegt... hér verðum við að koma aftur... eftir svona fimm ár... vitið til... það verður áður en við vitum af !

Eftir þetta fórum við niður um gilið sjálft... en heimamaðurinn sagði gilið fært alla leiðina... en það er mjög stórgrýtt ofar og krefst eflaust smávegis útsjónarsemi...

Stórkonugil í allri sinni dýrð...

Bratt og grýtt... og fallega gróið í neðri hlutanum...

Slóði var hér bæði í hlíðunum og niðri við botninn...

Já... hollt... og gott... þriðjudagar eru fjallgönguæfingar...

Undurfagurt...

Risavaxið bjarg í miðju gili... eins gott að það vari ekki af stað í jarðskjálftum...

Takk fyrir okkur Stórkonugil...

Komin niður á stíg í botni gilsins og sá stígur lá niður í byggð...

Farið að húma að... það er kominn höfuðljósatími á þriðjudögum... stutt í sólsetur þegar göngu lauk...

Meðfram lauginni...

Yfir tæra ána...

Að íþróttahúsinu...

Kolbeinn hundavinur... einn af nokkrum sem sýnir hundunum alltaf mikla hlýju, þolinmæði, umburðarlyndi... og svo auðvitað er alltaf nóg að borða hjá Kolla... hver vill ekki eiga slíkan vin ? Takk innilega elsku Kolbeinn :-)

Alls 5,1 km á 2:23 klst. upp í 355 m á Stekkatúnshnúki og 280 m á Húsatorfuhnúki með alls 321 m hækkun úr 41 m upphafshæð...
Vinátta... virðing... umhyggja... þakklæti... það voru gildi kvöldsins... þau eiga alltaf við... verum þakklát númer eitt...




Comments