Æfing nr. 889 þriðjudaginn 19. maí 2026 Þjálfarar buðu klúbbmeðlimum núverandi og fyrrverandi til veislu þriðjudaginn 19. maí í tilefni af 19 ára afmæli fjallgönguklúbbsins þann 15. maí síðastliðinn... Tuttuguogfjögur manns þáðu boðið og mættu í blíðskaparveðri... Gengin var hefðbundin leið að Keili... en í stað þess að ganga svo upp stíginn á þetta þekkta fjall... fóru þjálfarar skemmtilega öðruvísi leið á móbergshryggina sem rísa litlir en formfagrir við norðurrætur Keilis.