top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Keilisbörn, Hrafnafell og Keilir á 19 ára afmælisgöngu í sól og blíðu

Æfing nr. 889 þriðjudaginn 19. maí 2026


Þjálfarar buðu klúbbmeðlimum núverandi og fyrrverandi til veislu þriðjudaginn 19. maí í tilefni af 19 ára afmæli fjallgönguklúbbsins þann 15. maí síðastliðinn...


Tuttuguogfjögur manns þáðu boðið og mættu í blíðskaparveðri...


Gengin var hefðbundin leið að Keili... en í stað þess að ganga svo upp stíginn á þetta þekkta fjall... fóru þjálfarar skemmtilega öðruvísi leið á móbergshryggina sem rísa litlir en formfagrir við norðurrætur Keilis...


... sem sjást hér hægra megin á mynd...


Þema kvöldsins var sixpensari og axlabönd... og margir mættu í hvítri skyrtu í tilefni kvöldsins...


Einstaklega gott veður og dásamlegt andrúmsloft ríkti þetta kvöld...


Fyrra Keilisbarnið gengið hér upp hrygginn í norðaustri... en þessi hryggur er samvaxinn fjallsrótum Keilis...


Skemmtileg leið sem við vorum að fara í þriðja sinn í sögu klúbbsins... fyrst hér árið 2015; Allar þriðjudagsæfingar frá aprí ... svo árið 2020; Allar þriðjudagsæfingar frá aprí ... og nú árið 2026...



Bröltum og klöngrumst sem oftast... þá verður maður öruggur og skjótur yfir svona landslag... göngur á stígum undirbúa mann síst fyrir fjallgöngur á Íslandi...


Gengið var eftir öllu austara Keilisbarninu... hér með Hrafnafell framundan...


Fyrra Keilisbarnið mældist 222 m hátt...


Hrafnafell svo framundan hér...


Gaman að sjá menn sparibúna ef þeir gátu komið því við... en þjálfarar lögðu mikla áherslu á að menn mættu þó þeir voru ekki sparibúnir... aðalmálið er að hittast og ganga saman...


Hrafnafell...


Fanney gleðigjafi í hundaskyrtunni sinni og stuttbuxum... sumarið er komið !


Keilir hér ofan af Hrafnafelli...


Hrafnafell var greiðfært eins og hinir móberghryggirnir í rótum Keilis...


Litið til baka með fyrra Keillisbarnið í baksýn...


Það var ekki annað hægt en taka hópmynd hér með norðurhlið Keilis í baksýn...


Mættir voru: Sighvatur, Birgir Martin, Arngrímur, Berta, Oddný T., Fanney, Halldóra Kr., Þórhildur á hækjum sér, Sjöfn Kr., Þorleifur, Olli á hækjum sér, Sigrún Eðvalds gestur, Sigríður Lísabet, Linda, Agnar, Örn, Kolbeinn, Ása, Jón Braga, Siggi, Silla, Hjörtur, Gulla og Guðjón en Bára tók mynd og það vantar Chr með á mynd eins og alltaf og með í för voru Batman, Kolka og Myrra og svo nýr hundur 4ra mánaða sem heitir ... aftur hvað... en hann stóð sig svo vel og féll vel inn í hópinn...


Myljandi fegurðin á Reykjanesi naut sín vel þennan dag...


Farið niður norðvestan megin af Hrafnafelli...


Keilir vinstra megin og vestara Keilisbarnið hægra megin...


Vestara Keilisbarnið...


Fínt brölt hér upp...


Það mældist 201 m hátt...


Skemmtilegt bergið í fjöllunum þarna...


Keilir framundan... leið okkar vestan megin upp hér hægra megin...


Allt skraufþurrt og brakandi blíða...


Heilmikið brölt hér upp en vel fært...


Nýi hundurinn svo fallegur... með blá augu... Ástralskur smalahundur...


Batman samur við sig í sníkjunum...


Áfram upp... þessi ganga var ekkert slor... eiginlega of erfið fyrir gesti... við vorum búin að gleyma hversu krefjandi þessi ganga er... hér áður fyrr fórum við endalaust svona erfiðar þriðjudagsgöngur...


Arngrímur kom sem fyrrverandi klúbbmeðlimur og var mjög gaman að sjá hann...


Áð á miðri leið...


Smæð Keilisbarna sést vel hér... Vesturbarnið þarna niðri...


Komin upp á öxlina... mjög gaman að sjá alla svona sparibúna...


Síðasti kaflinn upp á Keili...


Áfram brölt í grjórhrugum...


Komin nánast upp...


Tindurinn á Keili... hér var áð og skálað áður en haldið var niður... Keilir mældist 390 m hár...


Gaman að spjalla og spá í útsýnið...


Gosstöðvarnar við Meradali og félaga á Reykjanesinu... umfang hraunsins gríðarlegt... en samt um leið dropi í hafið á þessum landshluta...


Þjálfarar buðu upp á freyðivín og nokkrar tegundir af bragðmiklu gosi... og smá konfekt með...


Skál ! ... fyrir 19 árum á fjöllum... allt árið um kring... við allar aðstæður birtu, færðar og veðurs... þar sem endalaust eru kannaðar nýjar slóðir... og ókunn lönd... áfram við að þora og hugsa í lausnum en ekki hindrunum... annars væru Toppfarar ekki til !


Gula liðið ! Þorleifur, Birgir Martin, Ása og Fanney...


Bláa og græna liðið... Arngrímur, Kolbeinn, Sighvatur, Linda, Siggi, Þórhildur, Hjörtur, Halldóra Kr., Jón Braga, Oddný T. og Agnar...


Svarta liðið... Sigríður Lísabet, Berta og Olli...


Hvíta skyrtuliðið... Þorleifur, Siggi, Silla, Bára, Örn, Halldóra Kr., Ása, Sjöfn Kr., og Agnar...


Auðvitað enduðu þjálfarar á að fara óhefðbundna leið niður af Keili... í stað þess að fara stíginn sem var búið að lofa... það var einhvern veginn stílbrot að fara ekki þessa leið niður af því við höfum farið hana áður í viðleitni til að búa til nýjar leiðir af þessu bratta, lausgrýtta fjalli... gott að vera öruggur og þora að fara öðruvísi...


Neðar verður sandurinn mjúkur og hægt að strauja hraðbyri niður...


Mjúkt og notalegt...


Litið til baka...


Þéttur hópurinn við fjallsrætur þar sem komið var aftur inn á stíginn...


Litið til baka... hefðbundin leið niður stíginn hægra megin... en við fórum beint niður vinstra megin... og komum svo meðfram Keili til baka á stíginn... gps-ferillinn er á wikiloc frá árinu 2015...


Svo var 3ja km stígurinn genginn til baka í sólargeislunum...


Litið til baka...


Yndislegt kvöld með meiru...


Kyrrðin og sumarfriðurinn önduðu hlýju og lygnu þetta kvöld...


Komin í bílana um tíuleytið... og þá átti eftir að keyra í tæpan hálftíma út jeppaslóðann slæma frá Keili... og svo Reykjanesbrautina heim...


Hundarnir í stuði eftir hágæða útiveru með göngufélögum sínum sem þeim þykir augljóslega mjög vænt um... ómetanlegur félagsskapur...


Trölladyngja og Grænadyngja...


Aksturinn heim var farinn í vímunni sem rennur á mann eftir góða kvöldgöngu...


Alls 9,1 km á 4:05 klst. upp í 390 m hæð hæst með alls 466 m hækkun úr 124 m upphafshæð...


TAKK elsku göngufélagar og vinir fyrir að mæta í afmælið okkar... við metum það mjög mikils... og erum full þakklætis að til skuli vera fólk... sem er til í þessi ævintýri, óvissu, forvitni, elju og einurð... sem þarf til að vera í þessum hópi... takk fyrir allt elskur !


Gps-slóðin á wikiloc frá 2020 (ferð tvö sömu leið nema hér er farið niður óbefðbundið eins og upp - sama leið var farin þetta kvöld núna 2026: Wikiloc | Keilisbörn Hrafnafell Keilir öðruvísi leið upp og niður Keili 120520 Trail

Comments


bottom of page