top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Hafrafell og Kerlingarfjall á Vatnaleið

3 hours ago
4 min read

Tindferð nr. 372 laugardaginn 14. nóvember 2026


Fimmta árið i röð gengum við á fjöllin við Vatnaleið á Snæfellsnesi í nóvember... og nú var komið að óþekktu fjöllunum tveimur sem við horfðum á ofan af hinum fjöllunum síðustu árin...


Lagt af stað kl. 11:21... eftir akstur úr Reykjavík kl. 09... og wc-pylsu-stopp í olís Borgarnesi...

Hafrafellið hér framundan...


Erlendir ferðamenn voru einnig á bílastæðinu... alltaf einhverjir að skoða Berserkjahraun... sama á hvaða árstíma maður er hér...


Selvallavatn... hluti af Krákuhyrnu... og Bjarnarhafnarfjall... og nær lægra eru Seljafell og Kothraunskúla sem við gengum í fyrra...


Elliðatindar efst vinstra megin... fjallið Horn hægra megin... Vatnaleið vegurinn nær...


Hafrafell framundan... mosi og mýri neðar sem við skoppuðum í gegnum...


Spáð var skýjuðu veðri en sólríkara austar... og okkar svæði var á þessum mmörkum skýjafarsins... og við vorum heppin.. fengum sólina þegar ofar dró...


Horn, Krákuhyrna og Gjafi eða Gjafamúli...


Bjarnarhafnarfjall... birtan var mögnuð þennan dag... og minnti á birtuna á Grímsfjalli 2024...


Fínasta leið upp norðuröxlina...


Stutt í sólina... Baulárvallavatn þarna upp frá og Elliðatindar hægra megin baksviðs...


Fínasta klöngur... og nokkuð frosið þegar ofra dró... keðjubroddarnir komu sér vel þegar farið var aftur niður...


Skemmtilegt klöngur hér upp nefið...


Rauðakúla hér... sú síðasta af fimm fjöllum í fyrra í nóvember... eftir gígaröðinni gegnum Berserkjahraun...


Kerlingarfjall... seinna fjall dagsins... margtindótt og flókið yfirferðar á göngu í móbergi með lausagrjóti... færið var skárra hjá okkur í snjónum...


Stutt eftir upp í skarðið...


Fjallið Vatnafell milli Baulárvallavatns og Hraunsfjarðarvatns... á Vatnfell gengið við árið 2019 í febrúar ásamt Horni... mögnuð ferð og mjög eftirminnileg...



Nyrðri tindur Hafrafells...


Kerlingarfjall...


Greiðfær leið...


Hvílík birta... breyttist stöðugt og gaf ómetanlega fegurð... í sálina...


Horn, Krákuhyrna og Gjafi...


Bjarnarhafnarfjall...


Niður af nyrðri tindinum og í skarðið á leið á hæsta tind... hér tók sólin að skína...


Frábær hópur á ferð...


Kerlingarfjall og Grímsfjall...


Sólin mætt...


Allt svo fallegt...

Hæsti tindur Hafrafells framundan...


Mosinn harðari eftir því sem ofar dró...


Litið til baka...


Fínasta leið en harður mosinn allra efst...


Litið til baka eftir Hafrafelli til norðurs... Bjarnarfhafnarfjall vinstra megin og Rauðakúla hægra megin...


Síðustu metrarnir upp á hæsta tind...


Horn, Smérhnúkur og Háakast í Seljaelli efst á Vatnaleiðinni... þarna vorum við í apríl í vor...


Hæsti tindur Hafrafells 576 m hæð...


Flottur tindur og mjög mikið útsýni...


Dásamlegt að vera á fjöllum í nóvember þó það sé kalt, vindur og hálka !


Alls 16 manns... Björg, Sighvatur, Helgi, Guðrún Geirs., Oddný T., Hjörtur, Friðrik gestur, Áslaug, Jaana, Inga, Olli, Silla, Sjöfn Kr., Berta og Örn en Bára tók mynd og Batman var eini hundurinn...


Nesti neðan við tindinn í skjóli með miklu útsýni...


Næsta fjall... seinni áskorun dagsins... Kerlingarfjall... héðan var ekki hægt að sjá augljósa færa leið í gegnum klettana í efri hluta fjallsins... og því afréðu þjálfarar að fara upp sunnan megin...


Mikill kuldi og ágætis vindur en við nutum hvers augnabliks...


Stórkostlegt útsýni...


Við ákváðum að taka þriðja og nyrsta tindinn á Hafrafelli líka...


Smávegis brölt að honum...


Mjög fallegur tindur...


Hér var gott að vera kominn í keðjubroddana en lítill snjór þarna uppi samt...


Út á yztu nöf...


Litið til baka...


Frá þessum kletti var beinasta leið niður að gömlu Vatnaleiðinni milli fjalla...


Ljúf og góð leið...


Litið til baka...


Snjórinn mjúkur hér...


Góð leið niður...


Komum okkur svo yfir á brekkuna þarna austan við gljúfrið...


Yfir þennan háls...


Mjög falleg birtan á þessum kafla...


Litið til baka... Hafrafellið hér í baksýn...


Nokkrir tindar á því...


Seljafellið...


Gegnum nokkur gil...


Hér voru veiðimenn á ferð og nokkrir bílar og fótspor í snjónum... meðal annars upp á Kerlingarfjallið...


Litið til baka...


Létt og greiðfær leið... þjálfarar ákváðu að sniðganga með öllu klettana til að flækja ekki uppgönguna...


Fallegt landslag þegar ofar dró...


Flókið landslag í móbergsklettunum... sjá Hafrafellið hér vinstra megin...


Grímsfjallið...


Seljafellið og Geirhnúkur...


Komin ofan við gljúfrið langa...


Tókum núna stefnuna beint á hæsta tind Kerlingarfjalls...


Drápuhlíðarfjall... og Írafell... þarna vorum við árið 2022 í nóvember...


Jötunsfell og Svelgsárkúla...


Komin upp á meginland fjallsins...


Klettarnir efst í fjallinu svo fallegir...


Bjarnarhafnarfjall og Breiðafjörður...


Stykkishólmur og Drápuhlíðarfjall...


Grímsfjall og Jötunsfell...


Hæsti tindur framundan...


Mjög fallegur staður...


Mikið af klettum...


Hér var sólin farin en ennþá skyggni...


Ótrúlegar bergmyndarnir í móberginu...


Litið af tindinum til baka...


Nokkrar svona steinvölur... Hafrafell fyrir aftan...


Við horfðum á snjókomuna sem spáð var upp úr klukkan tvö ganga yfir Snæfellsnesið að vestan... Bjarnarhafnarfjallið að hverfa...


Magnaður staður !


Hálka á berginu...


Seinni hópmyndin í viðleitni til að fanga landslagið og útsýnið...


Þjálfara treystu því ekki að komast gegnum klettana greiðfæra leið niður beint af tindinum vestan megin... og ákváðu að fara sömu leið til baka niður... og sáu ekki eftir því... því stuttu síðar dundi snjókoman á okkur og það var eingöngu klukkutími eftir af dagsbirtu... og þá hefðum við ekki viljað vera í vandræðum að finna leið í gegnum kletta á fjalli sem við þekktum ekki...


Alls kyns kynjamyndir í klettunum... hér einn mjög ábúðarfullur...


Gömlu hjónin...


Eðlan...


Mikið spjallað og hlegið...


Við drifum okkur niður sömu leið og við komum upp...


Komin niður og snjókoman farin að dynja...


Ákváðum að fá okkur samt seinna nesti því drjúgur spölur var í bílana... rúmir 3 km...


Snjókoman var svo þétt að allt hvítnaði strax...


Maður hafði ekki við að dusta af sér...


Nestisboxið strax fullt af snjó...


Skyggnið hvarf... við vorum dauðfegin að vera ekki þarna einhvers staðar að leita að færri leið...


Við tók létt leið til baka í hliðarhalla meðfam Hafrafelli...


... í þungri snjókomu og mikill friðsæld...


Dásamlegt...


Allir hvítir af snjó... og eftir smá dustun... varð allt hvítt aftur...


Þetta var hreinn og beinn jólasnjór !


Komin að veginum... þessi bakaleið var fljótfær... og það var gott að sjá veginn... við sluppum án höfuðljósa til baka sem var markmiðið... og reyndar að vera komin í bæinn fyrir myrkur en látum það liggja milli hluta :-) :-) :-)


Alls 11,2 km á 5:49 klst. upp í 675 m á Hafrafelli og 602 m á Kerlingarfjalli með alls 949 m hækkun úr 108 m upphafshæð...


Ekkert tækjanna er sammála frekar en fyrri daginn... !


Bílarnir á kafi í snjó... þetta var einstaklega fallegt og jólalegt...


Mjög gott bílastæði og heilmikil umferð þarna um Vatnaleið...


Þæfingsfærð á heimleið í ljósaskiptunum og svo myrkri... rétt rúmlega 1,5 klst. án þess að stoppa á leiðinni...


Gullfalleg ganga... enn ein á þessu svæði norðan megin á Snæfellsnesi... og það um hávetur... þetta er kárlega ett besta fjallgöngusvæði landsins... #þakklæti



 
 
 

Comments


bottom of page