Nyrðra og Syðra Hádegisfell í Kaldadal í fyrstu vetrarferðinni
Tindferð nr. 371 laugardaginn 24. október 2026

Við vorum með Baulu og Heiðarhorn í huga sem aukaferð í lok október ef veður gæfist... en þegar á hólminn var komið og veðrið glimrandi gott... nenntu þjálfarar ekki... og vildu bæta nýjum fjöllum í safnið... og drifu í að fara á fellin tvö sem rísa við Prestahnúk og hfa lengi lokkað okkur...

Farið úr bænum kl. 08... Bára, þjálfari búin að liggja yfir upplýsingum um þessa gönguleið... og hugsanlegu akstursfæri... en fyrsti snjórinn í fjöllum var staðreynd og óvissan með bílfærið inn í Kaldadal var ekki til að einfalda málin en við ákváðum a láta slag standa og fara þá á annað fjall ef hitt brygðist... en vorum vongóð og trúðum því að þetta yrði alltaf fært...

Fjöll dagsins... með Prestahnúk þarna fjær á milli hægra megin...

Það var tíu stiga frost þegar lent var við malarstæðið í Kaldadal...

Algert logn og léttskýjað... snjóföl yfir öllu og töfrar allt í kring...

Lagt af stað kl. ... og fljótlega þurfti að vaða Geitá... ískalda í klakahröngli og ágætlega straumþunga í álunum en sandur í botninum svo það var allavega með okkur...

Hörkufólk í þessari ferð sem vílaði þetta ekkert fyrir sér...

Grjótið eftir ána... seinna fjall dagsins hér hægra megin... það syðra...

Tókum stefnuna beint á Nyrðra Hádegisfell yfir ásinn hér...

Fljótlega komin í sólina sem hækkaði á lofti og hlýjaða allt smám saman...

Veðrið gat ekki verið betra..

Suðurás Nyrðra Hádegisfells hér framundan fjær...

Móbergsfjöll með skálum og klettum og lausagrjóti ofan á en snjórinn yfir öllu var til bóta...

Dásamlegt byrjun á vetrinum...

Syðra Hádegisfell... seinna fjall dagsins...

Ok hér í baksýn... magnað að hafa það svona nálægt...

Baula og Litla Baula í fjarskanum fyrir miðri mynd...

Nærmynd af þeim... meiri snjór á Litlu Baulu en Baulu... sérkennilegt en svona fellur snjórinn misjafnlega...

Litið til baka...

Tjörnin nafnlausa (eða vatnið) sem var á vegi okkar í bakaleiðinni síðar um daginn að koma í ljós... og Syðra Hádegisfell vinstra megin...

Við vorum sannarlega heppin með veður...

Komin fram á brún Nyrðra Hádegisfells á uppleið...

Mögnuð birta !

Upp með brúninni...

Tókum klettana á hryggnum...

Misgreiðfært og tveir tóku neðri leiðina á sniðgöngu...

Ótrúlegur snjór...

Niður úr klettunum... það var betra að vera í keðjubroddum á þessum kafla...

Vestari hnúkurinn á Nyrðra Hádegisfelli...

Hafrafell að koma í ljós neðan við Langjökul... við eigum það alltaf eftir...

Útsýnið af vestari tindinum...

Áleiðis á hæsta tind Nyrðra Hádegisfells...

Himininn var ægifagur eins og landslagið... friðurinn í skýjafarinu sagði allt um kyrrðina á þessum degi...

Hafrafell... glæsileg sýn á það...

Hæsti tindur Nyrðra Hádegisfells var ekkert slor... mældist 895 m hár... og gaf magnað útsýni nfram af þverhníptum klettum austan megin... hér væri ekki gott að vera í þoku eða engu skyggni...

Litið til baka...

Fórum út eftir til suðurs...

Nestispása hér...

Dásamlegt í algeru logni og tæru skyggni...

Hópmynd á tindinum... verst að sólin skein ekki á þessum tímapunkti...

Niður fórum við um miðan hrygginn vestan megin...

Næst... var það þetta fjall...

Prestahnúkur hér milli Geitlandsjökuls og Syðra Hádegisfells...

Æðarnar í landslaginu...

Dásamlegt að ganga mót sólu...

Mikið stuð og mikið spjallað... sem er það besta... að skiptast á skoðunum og heyra alls kyns sjónarmið... auka víðsýnina og dýptina...

Bergsprungur neðst í dalnum... minntu á jökulsprungur á skriðjökli...

Litið til baka... tindurinn sem var að baki...

Við fórum beinustu leið upp á það Syðra...

Svalt í skugganum...

Greiðfær leið... svipuð og menn hafa farið áður á þetta fjall...

Nyrðra Hádegisfell í sólinni.... Strútur vinstra megin... Hafrafell hægra megin...

Tindurinn framundan svipaður hryggur og á nyrðra fellinu...

Siggi þurfti að halda sig utan við hópinn með Brúnó þar sem Baltasar lét Brúnó ekki í friði...

Komin í sólina...

Fjöllin norðan megin að koma í ljós... Holtavörðuheiðin að Baulu...

Ferðaþjónustan á Langjökli sást vel hér upp eftir... mikil umferð af trukkum að fara í íshellinn...

Prestahnúkur kemur í ljós...

Tindurinn framundan... hann leyndi á sér í vegalengd þegar ofar dró og var talsvert innar en hér sést...

Ágætis snjómagn þegar ofar dró...

Og snjóhengjur hér efst í skarðinu...

Það er kominn vetur...

Aftur komin í sólina...

Drjúgt hér upp eftir...

Litið til baka... fyrra fjallið okkar hvassbrýnt og glæsilegt en talvert lægra en seinna fjallið...

Prestahnúkur...

Skemmtileg leið...

Komin upp... Syðra Hádegisfell mældist 1.077 m hár...

Hér nutum við afrakstursins... útsýnisins... og seinni nestispásunnar... í rólegheitum og notalegheitum...

Hvílíkt útsýni...

Baula og félagar...

Langjökull og Geitlandsjökull...

Geitlandsjökull...

Prestahnúkur...

Þórisjökull...

Kaldidalur...

Nærmynd af klettabrúnunum í dalnum...

Ok...

Myndavél þjálfara fraus á tindinum en þessi náðist með herkjum af síma hins þjálfarans...

Niðurleiðin var ægifögur...

Niður sama hrygginn...

Fórum svo beinni leið niður af hryggnum... sem stytti aðeins bakaleiðina...

Gott að rúlla niður úr bítandi frostinu sem var uppi og fá í sig hita...

Fallega nafnlausa vatnið lokkaði okkur til sín í bakaleiðinni...

Að komast úr skugganum...

Litið til baka...

Þetta vatn var dáleiðandi...

Fórum að því og svo meðfram því vestan megin...

Við vatnið brast snjórinn undan okkur... það var greinilega mýri eða álika þarna undir...

Fallegur kafli...

Takk fyrir okkur Syðra Hádegisfell...

Og takk fyrir okkur Nyrðra Hádegisfell...

Stutt eftir að Geitánni...

Þar sem okkar beið að vaða yfir íshröngl og framhjá klakabunkum...

Ekki árennilegasta árin sem við höfum vaðið... en vön að vaða að vetri til...

Helgi dreif sig yfir og fór á gönguskónum enda örstutt í bílana og einfalt að skipta bara um skó og sokkar... þetta gerðu nokkrir...

En flestir fóru í vaðskóna...

... og sumir í keðjubrodda yfir vaðskóna þar sem svellbunkar voru á árbakkanum beggja vegna...

Örn varð að halda á Batman... áin var of djúp fyrir hann...

... enda leitaði hann af örvæntingu að stað... og var svo dauðfeginn að komast í fangið...

Upp að hné í ágætis straumþunga þegar verst lét en annars ágist vöðum í góðum sandbotni... þessi botn var með okkur í liði...

Berta. Olli og Áslaug... Áslaug á keðjubroddum yfir vaðskóna...

Maður hefur ekki lifað... fyrr en maður er búinn að gera einmitt þetta...

Alls 12,6 km á 6:07 klst. upp í 895 m á Nyrðra Hádegisfelli og 1.077 m hæð og Syðra Hádegisfelli með alls 1.014 m hækkun úr 517 m upphafshæð...

Komin í bílana og sólin ennþá hátt á lofti... um fjögurleytið... dásamlegt...

Greiðfært til baka með Strút hér framundan gegnum Húsafell og Hvítársíðu gegnum Borgarnes í bæinn... aksturinn tók 1,5 klukkustund og við vorum komin í bæinn fyrir myrkur...

Nyrðra Hádegisfell kvaddi með virktum...

Baula og Litla Baulu kvöddu í síðdegissólinni...

Skarðsheiðin vinkaði... Skessuhorn og Heiðarhorn mest áberandi...

Skessuhorn... það er næstum því að komast á 12 mánaða safnlistann...
Gullfalleg ganga og einstök byrjun á vetrinum... sem er okkar uppáhaldstími... hvað varðar tærleika og ferskleika...
Gps-slóðin hér: https://loc.wiki/t/293871257?wa=sc
Myndbandið hér: https://youtu.be/H-dPyU488wg





Comments