top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Rauðuhnúkar við Bláfjöll í fyrsta snjónum

1 hour ago
2 min read

Æfing nr. 903 þriðjudaginn 20. október 2026


Fyrsti snjórinn veturinn 2026 - 2027 var á Rauðuhnúkum við Bláfjöll...


Skemmtilegt klöngur á þessari leið frá upphafi til enda hryggjarins...


Litfagurt sólarlag skreytti kvöldið...


Algert logn... og töfrandi kyrrð einkenndi kvöldið...


Bröltið er það besta við þessa leið...


Fjölbreytt landslag þar sem hver hnúkur er með sínu lagi...


Á mörkunum að grípa þurfti til keðjubroddanna...

Þorleifur fór hér upp og niður og mælti ekki með því... á meðan hópurinn fór neðan við hann...


Bláfjöll, Drottning og Stóra Kóngsfell í baksýn...


Þetta er stærri útgáfa af Valahnúkum í Hafnarfirði... sem eru á dagskrá tveimur vikum síðar í myrkri stóra hluta göngunnar....


Svo fallegt að eftir þetta kvöld sat sæla og kyrrð sem varaði dögum saman...


Frábær mæting eins og alltaf þessi misserin... alls 14 manns... Siggi, Halldóra Kr., Hjörtur, Guðjón, Þorleifur, Sólveig, Kristín Björg, Linda, Birgir Martin, Kolbeinn, Örn, Sjöfn Kr. og Batman var með sem og Bára sem tók mynd...


Hvítara þegar innar dró...


Og áfram hélt bröltið...


Myrkrið skall á í lok hryggjarins...


En rétt áður lýsist allt upp eftir að sólin er sest og hún nær að lýsa upp með geislum upp í himinhvolfið... þessi stund er alltaf svo sérstök... rétt áður en myrkrið skellur svo á...


Eitt þriðjudagskvöld... fullt af ótrúlega fallegum upplifunum og augnablikum...


Næst síðasti tindurinn...


Þessi æfing er holl og góð fyrir þá sem elska klöngur og vilja styrkja sig í því en ekki bara ganga á stígum og slóðum...


Snjófölin gaf mikla birtu...


Hér... í síðustu brekkunni... náðum við í höfuðljósin...


Fremri hlutinn tók þennan aukatind áður en við fengum okkur smávegis nesti í skarðinu...


Auðvelt að hafa nesti að vetrin til þegar það er logn og úrkomulaust...


Myrkrið tók alveg yfir í bakaleiðinni...


Bröltið var lítið minna á köflum meðfram hnúkunum...


En höfuðljósin eru orðin svo góð að það er allt hægt í myrkrinu...


Bjarminn á himni frá höfuðborginni sem varpast upp í skýin...


Svo fór að snjóa... já... merkilegt... enn eitt skrautið þetta yndisfagra kvöld...


Tunglið heilsaði svo yfir Bláfjöllum þegar komið var í bílana...



Alls 4,7 km á 2:15 klst. upp í 452 m hæð með alls 279 m hækkun úr 401 m upphafshæð... klöngrið bætti sannarlega fyrir litla hækkun þetta kvöld...


Yndiskvöld af bestu gerð sem hægt er að hugsa sér á októberkveldi... takk fyrir okkur #þakklæti


Comments


bottom of page