top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Syðri Jarlhettur vestari hluti; "Hagavatnshetta", "Flathetta", "Hrunhetta" og "Stallhetta" (okkar nafngiftir)

5 hours ago
10 min read

Tindferð nr. laugardaginn 25. september 2026


Það voru komin þrjú ár síðan síðast... of langur tími... sem betur fer... náðum við að fafa þessa ferð... léttir og feginleiki... og enn ein uppgötvunin... á fjallstindum á þessu magnaða svæði...


Syðstu Jarlhetturnar á dagskrá dagsins... þær eru ekki einu sinni á myndinni hér... eru sunnan við Stóru Jarlhettu sem sést hér vinstra megin... Innsta Jarlhetta sem er hæst þeirra allra... er sú hægra megin á mynd með smávegis snjóföl...


Bláfell á Kili heilsar alltaf... þegar farið er á Jarlhettur... einu sinni gengið á það... í snjó í byrjun september...


Hér sjást syðri Jarlhetturnar... lágu tindarnir vinstra megin við Stóru Jarlhettu...


Strúthetta, Kirkjuhetta, Kambhetta og Innsta Jarlhetta og Nyrðri Jarlhettur...


En... syðri Jarlhettur eru ansi margar... alls níu talsins... í tveimur tindaröðum... fimm austan megin og fjórar vestan megin... og því sáust ekki okkar Jarlhettur þegar keyrt var á svæðið um Hagavatnsveg...


Hagavatnsskáli... við hittum Harald Örn og félaga í Fjallafélaginu í þjónustumiðstöðinni við Gullfoss (þar sem við þurftum að greiða 1.000 kr. fyrir að leggja bílunum) og þau voru á undan okkur keyrandi inn slóðann og lögðu bílunum við skálannn og fóru mjög flotta hringleið á Stóru Jarlhettu...


Lagt af stað kl. 10:38 eftir að hafa reynt að hringja í Einar og Loka sem við skildum ekki að voru ekki fyrir framan okur á leiðinni... en ekkert símasamband var þarna svo við lögðum af stað og vonuðum að þeir félagar myndu finna okkur...


Sjá hér hluta af syðstu Jarlhettum austan megin... þær eru alls fimm talsins... frá Stóru Jarlhettu... okkar syðstu Jarlhettur vestan megin voru fjórar talsins... og það var engin spurning eftir gönguna... að nefna þær til glöggvunar og aðgreiningar á öllum þessum níu fjallstindum...


Þessi ár... úr Hagavatni nefnist "Far"... og oft sagt "Farið"... og hún rennur í Sandvatn sem er sunnan við Hagavatnsveginn sem við keyrðum...


Brekknafjöll heita fjallstindarnir næstir útfallinu / Farinu sunnan megin... þau eru á vinnulistanum...


Mjög fallegt gljúfrið...


Líklega var þetta Leynifoss... ef marka má m,erkingar á kortum og staðsetningu á staðnum... en það voru fleiri fossar í gljúfrunum ofar...


Við leituðumst við að rekja okkur upp með gljúfrinu og láta ekki vegiaslóðann afvegaleiða okkur... en það tókst ekki þegar ofar dró...


Fossarnir tveir sem við sáum svo ofan frá síðar við vatnið... á korti er þetta merkt "Nýifoss"...


Á veraldarvefnum segir gervigreindin þetta:


Nýifoss og Leynifoss eru tveir fossar sem tengjast vatnasviði og jökulhlaupum úr Hagavatni við suðurbrún Langjökuls. [1, 2]


Leynifoss

  • Uppruni: Myndaðist í jökulhlaupi úr Hagavatni árið 1929 þegar vatniðbrotnaði fram og leiddi vatnið um Leynifoss-skarð.

  • Örlög: Hvarf árið 1939 þegar nýtt jökulhlaup breytti útfalli vatnsins. [1, 2]


Nýifoss

  • Uppruni: Myndaðist í kjölfar jökulhlaupsins árið 1939 (tveimur árum/áratug seinna) þegar Hagafellsjökull Eystri hörfaði og vatnið fann nýjan farveg. [1, 2]

  • Staðsetning: Fossinn er í útfalli Hagavatns og niður í ána Farið, sem rennur milli Jarlhetta og Einfells. [1]

  • Umhverfi: Svæðið er öræfakennt, gróðursnautt og sandskotið og vatnið litast af jökulleir og ösku. [1]

  • Aðkomuleið: Komið er að svæðinu um slóðann/F-veginn F335 (krefst gjarnan fjórhjóladrifs og ár yfirferðar) og þaðan er stutt og auðveld ganga að fossinum. [1]

  • Virkjunaráform: Það hafa verið uppi áform um Hagavatnsvirkjun sem gætu breytt ásýnd svæðisins og haft áhrif á vatnsyfirborð og fossa, sjá nánar um Hagavatnsvirkjun á Heimildinni og umfjöllun í Bændablaðinu. [1, 2, 3]


Já, áhugavert...


Farið var einstaklega fagurt þennan dag... og vatnið hvítfyssandi ljóst...


Fórum upp með fossunum tveimur... en þarna hefðum við átt að elta göngustíginn enn ekki taka veginn sem fór austar og ofar...


Sé ekki stíginn hér en hann hlýtur að vera þarna einhvers staðar...


Þegar upp var komið blasti Hagavatn við lognkyrrt og gulblátt...


Lendingarstaður þyrlu ?


Friðurinn var alger...


og Eystri Hagafellsjökull í Langjökli ofar en hann hefur hopað ansi mikið síðustu ár... og já... þetta var Hagafell þarna handan vatnsins til vesturs (út af mynd vinstra megin, sjá mynd á undan betur).... en vestan við Hagafellið er Vestari Hagafellsjökull...


Fyrsta Jarlhetta dagsins reis við vatnið... og það var því borðleggjandi að nefna hana "Hagafellshettu"...en þjálfarar dauðsáu eftir því að biðja ekki hópinn að spá í nöfn á þessar Jarlhettur allar... eina afsökunin var sú að við áttum ekki von á að vilja gera það... en þegar gengið var um þetta landslag þá var það eiginleg anauðsynlegt... til að geta aðgreint og glöggvað sig á hvar menn eru staddir nákvæmlega á þessu margtindótta svæði...


Hér benti Dina þjálfara á að það væri þess virði að fara niður að útfallinu og skoða hvernig vatnið rennur úr Hagavatni um Nýafoss...


... og þegar við litum niður eftir þá var ekki aftur snúið...


Mikill kraftur og heilmikið rennsli...


Fossarnir tveir sem við sáum stuttu áður á leið upp eftir...


Menn ætluðu ekki að nenna hingað niður... en það var algerlega þess virði...


Óhugnanlegt...


Kyrrlátt vatnið... og svo skyndilega rennur allt af stað hér... eins gott að vera ekki í vatninu ofar og renna skyndilega af stað í kröftunum sem hér voru á ferð...


Ógnarkraftar... hverja einustu sekúndu... allan sólarhringinn... alla daga ársins...


Frá Wikipedíu:


Hagavatn er vatn við rætur Langjökuls. Farvegur úr vatninu er í gegnum Farið, í Sandvatn og áfram um Sandá og Hvítá út í sjó. Brú var byggð við Farið, en í dag má eingöngu sjá leifar hennar. Árið 1939 lækkaði mjög í vatninu og óttast var um það sama árið 1999 við framhlaup Hagafellsjökuls.[1]

14% lands við vatnið er gróið, 7% er moslendi, 4% mólendi og 2% graslendi.[2]Mikið landfok er við vatnið vegna jökulsins sem er á botni vatnsins. Árið 1996 var gefin milljón til stækkunar Hagavatns[3] og árið 2007 var möguleikinn skoðaður með samstarfi nokkra stofnana og fyrirtækja.[4] Orkuveita Reykjavíkur lét kanna hagkvæmni þess að virkja vatnið árið 2007 og gerð var forathugun að virkjun árið 1985.[5]

Ný göngubrú var reist á Farinu undir Einifelli 26. júlí 2006.


Magnað að koma hingað...


Kyrrðin við vatnið var áþreifanleg... hundurinn Loki naut hennar eins og við...


Og Gutti gerði það líka...


Sjá veginn handan vatnsins... merkingar til að sýna hvar skyldi fara yfir vatnið keyrandi... ekki of neðarlega til að missa ekki bílinn í kkrefta fallandi vatnsins niður í Farið...


Eystri Hagafellsjökull...



Hagafell handan vatnsins... milli Vestari og Eystri Hagafellsjökuls... í Langjökli...


Eftir dágóða stund við útfallið var haldið upp fyrstu Jarlhettuna... og það lá beinast við að nefna hana "Hagavatnshettu"...


Hún var ágætlega brött við vatnið... og þjálfarar enduðu á að velja beinustu leið upp með ágætis klöngri...


Fullkomleiki... í fjarska tóku fjöllin sunnan Langjökuls að birtast... Kálfstindur, Hlöðufelll, Högnhöfði, Rauðafell og Skjaldbreiður...


Jökullinn kominn ansi langt frá vatninu...


Lausagrjót ofan á móbergi ? ... já, nóg í boði af slíku á Jarlhettum...


Friðsælt veður gaf mildi og kyrrð þennan dag... miklu meira logn síðustu ár en frá upphafi Toppfara...


Hlöðufell með smá ský á toppnum...


Þetta var ágætis klöngur og brölt...


En sterkur hópur sem hikaði ekkert...


Skemmtileg leið...


Best að stíga næsta skref... ekki líta til baka og ekki hika...


Farið þarna niðri... Hagavatnsskáli vinstra megin í grasbalanum sem sést lítillega í... Einifell vinstra megin... og hægra megin voru Brekknafjöll og Fagradalsfjall... þau eru á framtíðarlistanum...


Bröltið...


Oftast gott hald í þessu móbergi...


Já... "Hagavatnshetta" var ágætis réttnefni...


Hrafninn... sem krunkaði reglulega á okkur... hafði greinilega skitið berjum hér...


Frábær hópur og glimrandi gleði...


Grjóthetta er nafn sem bíður ennþá eftir að fá að vera á einhverri Jarlhettunni...


Það reyndi á fótafimina í þessu lausagrjóti...

Fyrsti tindurinn af fjórum... í 599 m hæð...


Hinar Jarlhettur dagsins hér framundan... og Innsta Jarlhetta þarna lengst með snjóföl... og Stóra Jarlhetta svört og hvöss mest áberandi þennan dag... þarna voru félagarnir í Fjallafélaginu...


Við enduðum á að nefna þessar þrjár sem hér liggja í röð "Flathettu", "Hrunhettu" og "Stallhettu"...


Syðri Jarlhettur austan megin... sem rísa sunnan við Stóru Jarlhettu... í fjarska er Bláfell á Kili... í dalnum rann Jarlhettukvíslin sem við áttum svo eftir að fylgja á bakaleiðinni í loks dags...


MÆttir voru alls 23 manns... ótrúlega góð mæting þessa mánuði...


Efri: Dina, Olli, Björg, Maggi, Linda, Silla, Einar, Áslaug, Hjörtur, Örn, Frímann, Tína, Sjöfn Kr., og Guðjón.


Neðri: Gulla, Sigrún E., Oddný T., Berta, Kristrún, Stína, Inga og Bára tók m ynd, Chr vantar á mynd og hundarnir Batman, Gutti, Kolka og Loki voru með...


"Flathetta" var næst... eina Jarlhettan sem tók ekkert í við upp- né niðurgöngu...


"Hagavatnshetta" að baki...


Aflíðandi greiðfær leið...


"Hagavatnshetta, Hlöðufell, Hagavatn og Hagafell... úr hlíðum "Flathettu"...


Ávöl og ljúf...


Jæja... smá brekka hér efsta hlutann...


Sama lausagrjótsfærið...


Útsýnið til suðvesturs af tindinum...


"Flathetta" mældist 629 m há...


"Hrunhetta" og Stóra Jarlhetta hér... fjær voru K"Krúnuhetta" og "Konungshetta" (okkar nafngiftir)...


Nestispása hér á tindi tvö af fjórum... hluti af syuðri Jarlhettum austan megin... og Einifell... og Sandfell fjær og fjærst sést svo í Bjarnarfell líklega...



Mikið landflæmi neðan við Eystri Hagafellsjökul...


Notaleg nestispása...


Við reyndum að koma auga á Fjallafélagið.. en þau voru líklega á uppleið hinum megin...


Þriðja Jarlhettan var framundan...


Sjá gljúfrið sem er að myndast... þarna voru fossar sem við sáum... hægra megin er "Hrunhetta" og "Stallhetta"... þær tvær sem við áttum eftir þennan dag...


Hrátt landslagið... beint undan jökli...


Þær tvær sem eftir voru... þjálfarar ætluðu upp sandkaflann þarna á þessari fremri...


... en þegar nær var komið...


... freistuðumst við til þess að fara bara beinustu leið upp klettabeltið...


Fljótlega byrjaði grjótið að hrynja niður á neðri menn...


... og við reyndum að stilla hópinn saman þannig að grjót færi ekki niður á þá sem neðar voru... en það var flókið í 23ja manna hópi... með fjóra hunda sem voru ekkert að spá í að gæta að grjóthruni... með loppunum sínum...


Þessi kafli tók vel í en gekk ágætlega þó vel mændi á öftustu mönnum að verjast grjótinu sem kom niður...


Við enduðum á að fara nokkrir aðeins aðra leið en hópurinn... allir að klöngrast og bjarga sér á sinn máta sem var vel...


Best að halda ró sinni og yfirvegun... þó Bára þjálfari hafi ekki verið mannanna best í því þegar verst lét...


Flott útsýnið úr hlíðunum...


"Flathetta" og "Hagavatnshetta" þarna til suðurs...


Efri kaflinn var mun skárri en þessi um mitt klettabeltið...


Komin upp á þessa grýttu hettu sem fékk næstum því nafnið "Grjóthetta" en tillagan frá Sjöfn Kristinsdóttur um "Hrunhettu" var of góð til að standast hana...


Innsta Jarlhetta... "Krúnuhetta", "Konungshetta" og svo Stóra Jarlhetta...


Við mældum "Hrunhettu" í 688 m hæð...


Enn sáum við ekki Fjallafélagið á tindi Stóru Jarlhettu...


Við enduðum á að kalla hana "Stallhettu" þar sem hún var öll í stöllum...


Eina sem við gátum gert... var að vona að brekkurnar niður af Hrunhettu væru ekki eins grjóthrunsvænar og sú á uppleið...


Jú... mun betri leið... í mjúkum sandi... svolítið hart reyndar á köflum en slapp...


... og síðustu menn nutu góðs af slóðanum sem myndaðist eftir hópinn...


Þjálfarar veltu því fyrir sér að fara upp hornið hér suðvestan megin… en afréðu eftir reynsluna af uppleiðinni á Hrunhettu að fara frekar undir klettastallinn og aflíðandi sönduga leið upp suðaustan megin…


Loksins sáum við Fjallafélagsgöngumennina á tindi Stóru Jarlhettu… sjá fólkið fyrir miðju fjallsins (ekki á klettinum vinstra megin né hægra megin)…


Móberg og grjót...


Inn með syllunni hér...


Litið til baka á "Hrunhettu"...


Farið að þyngjast yfir í suðri...


Mjög góð leið...


Komin að sandbrekkunni... Jarlhettukvísl sést hér vinstra megin... bakaleiðin okkar var eftir henni...


Létt leið upp á "Stallhettu"...


Komin upp á stallinn og lágir tindar framundan...


Innri Jarlhetturna farnar að birtast...



Nýtt snjónarhorn á Stóru Jarlhettu... hún var einstaklega hrikaleg frá Stallhettu...


Innsta Jarlhetta… “Kirkjuhetta… “Strútshetta… “Rauðhetta… “Krúnuhetta”… “Konungshetta”… allt okkar nafngiftir nema Innsta Jarlhetta sem er með nafn á kortum…


Komin upp á Stallhettu... á hæsta tind héldum við fyrst... en sáum fljótt að tindurinn norðar var eilítið hærri...


Eystri Hagafellsjökull...


Leiðarendi... við vorum innan áætlunar ef bakaleiðin yrði fljótfarnari og styttri en innleiðin...


Hrunhetta... Flathetta... Hagavatnshetta... með Hagavatni... og Hlöðufell og félagar í skýjaþoku...


Jú... verðum við ekki að fara yfir á þennan þarna... hann er hærri... síðast þegar við horfðum hér yfir þá lá jökull yfir á milli tinda... ótrúleg breyting...


Stallhetta mældist 816 m há... hæsta og síðasta Jarlhetta dagsins...


Gáfum okkur góðan tíma til að skoða útsýnið...


Eigum þá eftir að ganga á þessa tinda sem koma hér bókstaflega undan jöklinum...


Englar á ferð... Einar, Berta, Olli og Tína...


Seinni hópmynd dagsins...

Hjörtur, Guðjón, Dina, Oddný T., Stína, Kristrún, Örn, Linda, BNjörg, Inga, Sjöfn Kr., Sigrún E., Olli, Einar, Silla, Áslaug, Berta, Gulla, Tína, Frímann, Maggi og Chr ekki á mynd og Bára tók myndina... og fjórar hundar... Kolka, Batman, Loki og Gutti í réttri röð þeirra...


Þá var bakaleiðin eftir um Jarlhettukvísl milli vestari og austari Syðri Jarlhettna... mjög flott leið...


Sjá dökku slóðina sem myndaðist eftir Fjallafélagsfólkið... magnað að sjá þau fara hratt og örugglega niður af Stóru Jarlhettu vestan megin... við heyrðum fyrst af þessari leið hjá Björgólfi leiðsögumanni hjá Útivist... en þá var leiðin líklega ný og er greinilega orðin algengari... mjög smart leiðarval !


Slóðin dökka...


Bakaleiðin útbreidd hér...


Hrunhetta hægra megin...


Nesti hér...


Notalegt það sem eftir var... á nýjum slóðum... leiðin var einfaldari og léttari en við reiknuðum með...


Sorfinn árfarvegur Jarlhettukvíslar skreytti leiðina alla leið niður eftir...


Grýtt á köflum...


Upp úr og niður í árfarveginn eftir forvitni og hentugleika...


Austari hluti Syðri Jarlhettna gnæfði yfir og sagðist bíða þolinmóður eftir okkur...


Það var eins og þær óskuðu eftir því að fá nöfn... eins og hinar... hver með sínu lagi... formi... áferð... lit...


Stóra Jarlhetta hér...


Flathetta hér...


Hvíta hjartað sem Björg myndaði ofan af henni... var hvítt plastkar beyglað og fokið langan veg... líklega eftir kvikmyndatökufólkið í Tom Cruise myndinni Oblivion...


Hrunhetta... Stallhetta... Stóra Jarlhetta... nafnlausar syðri Jarlhettur austan megin svo hægra megin...


Hrátt landslag fjallanna speglaðist vel í jökulsársorfnum farvegi Jarlhettukvíslar...


Hér dýpkaði árfarvegurinn og við héldum okkur fyrir ofan...


Komin í bílana... klukkan orðin fimm...


Allt Toyota Land Cruiser nema einn jepplingur hans Einars... og það sama átti við um bílaflota Fjallafélagsins... Hjörtur vakti athygli á þessu og þetta var merkilegt...


Alls 13,7 km á 6:24 klst. upp í 599 m, 629 m, 688 m og 816 m hæð með alls 1.070 m hækkun úr 357 m upphafshæð...


Rúmlega 2ja klst. akstur framundan í bæinn... við héldum tímaáætlun innan marka... og allir voru alsælir með magnaðan dag...


Keyrt er í árfarvegi Jarlhettukvíslar að hluta á þessum innsta kafla... en allt þurrt og vatnslaust að mestu...


Hagavatnsskáli...


Einifell í fallegum haustlitum...


Batman frammí með eiganda sínum... Oddný gaf þjálfurum far eins og oft áður... en nú ætla þjálfarar a´fá sér jeppa fyrir næsta sumar og þá þarf elsku vinurinn ekki að kremjast svona um jeppaslóðana...


Kolka töffari aftur í í sínum bíl... án efa vitrasti og yfirvegaðasti hundurinn í sögu Toppfara...


Já... við erum búin að skrá ykkur á framtíðarlistann...


Það fór að rigna þegar við keyrum til baka... ótrúlegt lán með þetta hæglætisveður...


Sandvatn... sjá vinina í eyðimörkinni þarna við vatnið... ekki tekið eftir þessu áður...


Grenjandi rigning á leiðinni að hluta...


Takk fyrir okkur kæru tignarlegu og gullfögru Jarlhettur... við eigum tvær eða þrjár ferðir eftir... 2027... 2029... 2031... og þá lýkur 20 ára yfirferð á þessum fjallgarði þar sem við munum hafa náð að ganga á alla tindana 20 - 25 talsins... en talan er á reiki þar sem fleiri tindar koma undan jöklinum...


Samantekt á Jarlhettuferðunum hér: Jarlhetturnar| Toppfarar




Comments


bottom of page