Nípa í Esju upp Litla Sandhrygg #Esjanöðruvísi
Æfing nr. 905 þriðjudaginn 17. nóvember 2026

Ef vel er að gáð sést dökk stríta hægra megin við miðja mynd stingast upp úr snjónum eins og agnarsmá keila... þangað ætluðum við... og þræða okkur um sandhryggina á uppleið...

Enn ein veðurblíðan... logn og þurrt... þessi vetur fer að slá metið hvað þetta varðar í 20 ára sögu okkar...

Lagt af stað kl. 17:36 þar sem bílar lentu í smá vandræðum í svellaðri hálkunni á innleið að bílastæðinu... en það bjargaðist allt saman...

Mjög jólaleg ganga... farið upp slóðina milli sandhryggjanna þar sem skógur, brýr og lækir skreyta för...

Seinni brúin hér og skógurinn framundan... neðri hlíðar Esjunnar eru ævintýri líkast... og það er kominn tími á fleiri svona öðruvísi göngur í hlíðum hennar...

Keðjubroddarnir komu sér vel í þessu færi en það var ótrúlega mikill ferskur snjór yfir öllu...

Þjálfarar ætluðu að taka slóðann milli hryggja... en þar sem Litli sandhryggur var auður og skaflar fyrir neðan enduðum við á að rekja okkur upp eftir honum á uppleið...

Mjög falleg leið... sjá stjörnurnar á himni...

Nípa í allri sinni dýrð... fagurmótaður tindur sem líktist jólatré í snjónum og ljósunum í myrkrinu... gerum jólatré næst !

Uppi á Nípu settumst við niður og slökktum ljósin og virtum stjörnuhvolfið fyrir okkur með hvíta tinda Esjunnar yfirgnæfandi... kyrrðin gefandi og heilandi...

Notaleg stund þarna á tindi dagsins...

Klöngrið niður af Nípu... eftir nokkrar ferðir tekur maður þennan tind í nokkrum stökkum...

Jólakúlan í ár !
Mættir alls 20 manns... Ása, Bára, Björg, Ch, Erik, Guðjón, Guðný Ester, Halldóra Kr., Hjörtur, Kolbeinn, Kristín Björg, Linda, Sighvatur, Sigríður Lísabet, Siggi, Silla, Sjöfn Kr., Sólveig, Örn og Batman og Myrra nutu lífsins með okkur...

Niðurleiðin var svo um hefðbundinn slóðann...

... sem okkur tókst að týna.... en það koma ekki að sök... við skutluðumst bara aftur yfir sprænurnar milli gilja og vorum strax komin á rétt ról...

Alls 3,5 km á 1:30 klst. upp í 187 m og 287 m með alls 266 m hækkun úr 28 m upphafshæð...
Gps-slóðin hér: https://loc.wiki/u/77475?wa=uc - fórum aðeins út af stígnum á niðurleið en leiðréttum okkur fljótlega, en þessi aukakrókur var mjög fallegur um lækina og kemur ekki að sök.
Yndiskvöld eins og þau gerast best... okkar árlega aðventuganga á Háahnúk í Akrafjalli er svo eftir tvær vikur... jólin nálgast óðfluga...





Comments