top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Valahnúkar í enn einni veðurblíðunni

49 minutes ago
1 min read

Æfing nr. 904 þriðjudaginn 3. nóvember 2026


Hefðbundin leið á Valahnúka var fyrsta æfing nóvembermánaðar... enn einu sinni í kyrrlátu logni og sólsetri...


Frábær mæting... alls 14 manns... Þorleifur, Dina, Einar, Örn, Hjörtur, Sighvatur, Guðrún nýliði, María Kr., nýliði, Björg, Ása, Kristín Björg og Helgi en Bára tók mynd og tveir nýir hundar bættust í hópinn, þær Hetja og Viska ? ásamt Batman og Loka og var mikið fjör hjá þeim...


Klöngrast var í klettum eins og unnt var...


Fljótlega gripið til höfuðljósa...


Enginn snjór og sex gráðu hiti...


Fallegt sólsetur og mikið friðsæld á þessu kvöldi...


Heilmikið brölt upp og niður sem er einmitt það sem við viljum á þriðjudögum...


Töfrandi fjallshryggur sem svíkur aldrei... það er eiginlega kominn tími á að fara þarna um í dagsbirtu ha ?


Síðasti stóri tindurinn...


Tókum aldrei þessu vant ekki hópmynd með klettastrítunum góðu...


Nestistími á síðasta tindinum í myrkrinu með stjörnuhvolfið að hluta ofan okkar milli skýjanna... Einar hér með Loka sínum, þeir eru frábært teymi...


Bakaleiðin var svo strunsuð til baka á stíg... alls 6,0 km á 2:04 klst. upp í 203 m hæð með alls 278 m hækkun úr 88 m upphafshæð...


Dásamlegt kvöld og frábærir nýliðar með í för, þær Guðrún og María Kr. ásamt nýlegum klúbbmeðlimum þeim Einari og Kristínu Björgu ásamt okkur gömlu hundunum... frábær samvera og útivera... á hversdagslegu þriðjudagskveldi sem getur gefið öll þessi verðmæti... hvílík gæfa...

Comments


bottom of page