Kúpuhryggur upp Kollafjarðará í Esju í roðagylltu sólsetri og logni
Æfing nr. 901 þriðjudaginn 6. október 2026

Í mars á þessu ári var Kollafjarðará æfingin einn þriðjudaginn... en mikið fannfergi einkenndi þessa daga og við komumst ekki upp með gljúfrinu þegar ofar dró... svo við ákváðum að breyta æfingunni þennan októberdag og gera aðra tilraun til að skoða gljúfur Kollafjarðarár og bættum Kúpuhrygg við leiðina... til að halda áfram að ná 100 mismunandi fjöllum / leiðum á árinu 2026...

Óskaplega falleg leið upp með ánni austan megin... ekki þar sem stígurinn er heldur handar árinnar...

Heilmikið brölt og klöngur... einmitt eins og við viljum hafa það á þriðjudögum...

Fossinn fallegi sem við uppgötvuðum fyrir ekki svo mörgum árum síðan... þegar við gengum fyrst á Sandhryggina...

Sólarlagið var bókstaflega gyllt þetta kvöld... við vorum ljónheppin með veðrið... eins og fyrir tveimur vikum síðan á Háhrygg í Dyrafjöllum...

Sjá klettana ofar... klofningurinn milli ársprænanna... sem liggja fleiri en ein niður eftir milli fjallshryggja... landslagið þarna er með ólíkindum fallegt...

Upp Kúpuhrygg... vesturhornið á Kistufelli gnæfir yfir...

Fín mæting... 14 manns og þar af tveir nýliðar sem mættu reyndar fyrir viku síðan á frjálsa æfingu án þjálfara, þær Kristín Björg og Sólveig...
Kristín Björg fremst sitjandi, Sólveig, Linda, Helgi, Sigrún Bjarna., Hjörtur, Guðný Ester, Örn, Inga, Kolbeinn, Gunnar G., Rakel, Þorleifur og Bára tók mynd en Batman var eini hundurinn...

Kúpuhryggur er fagurmótaður og fjölbreyttur hryggur...

Við gengum upp með honum endilöngum...

Kollafjörður... sem áin þetta kvöld er kennd við...

Borgin og Úlfarsfellið okkar með vökul augu sín á henni...

Flott leið...

Hvílík fegurð þetta kvöld... algert logn... og sólarlag á heimsmælikvarða...

Skyndilega gengum við fram á jarðfall á Kúpuhrygg... hluti af jarðveginum hafði fallið niður og leit út eins og skriða sem ekki hefði svo fallið fram... ótrúlegt að sjá þetta...

Höfum ekki gengið fram á svona jarðfall áður...

Minnti á þau sem fallið hafa á ýmsum stöðum á landinu síðustu ár eftir miklar rigningar...

Erfitt að mynda þetta en við reyndum...

Sólin sest nú á þriðjudagskvöldum... og það er skollið á myrkur í kringum sjöleytið...

Svo það var eins gott að njóta fegurðarinnar áður en myrkrið tekur alveg yfir um miðjan nóvember...

Ofa n af Kúpuhrygg gengum við aftur niður í gljúfrið og upp með ánni...

Sprænurnar eru fleiri en einar sem renna hér niður eftir svo það er hægt að búa til fleiri en eina útgáfu af svona göngu upp með lendum og lækjum...

Upp síðasta kaflann ofar...

Snúið var við í dalverpinu þar sem skil verða milli fjallsbunga eða hóla en þar var stutt áning með nesti og spjalli... áður en gengið var niður stíginn til baka hefðbundna leið...

Myrkrið skall á en flestir komust upp með að ná ekki í höfuðljósin... það mátti ekki vera tæpara...

Alltaf jafn fallegt þegar það er komið höfuðljósatími... við fögnum breytileikanum í veðri, birtu og færð allt árið... myndum aldrei vilja hafa þetta öðruvísi... hver árstíð á sinn sjarma... ef við hefðum ekki allar fjórar árstíðirnar... myndum við deyja úr leiðindum...

Alls 4,4 km á 2:04 klst. upp í 431 m hæð með alls 392 m hækkun úr 58 m upphafshæð...

Yndiskvöld með meiru... betri, sterkari, bjartari... fórum við heim... endurnærð á sál og líkama... Hrafnabjörg á Hellismannaleið næstu helgi... síðasta ævintýrið á hálendinu á þessu ári... nema við tökum upp á því að ganga á Heklu í byrjun desember... sem við ætlum að gera... EF bílfæri leyfir... því við eigum alltaf eftir desember á Heklu... nú svo eru Baula og Heiðarhorn líka að bíða eftir sínum haust- og vetrarmánuðum... það er af nægu að taka... fyrir utan tvær tindferðir í mánuði samkvæmt dagskránni...
Takk fyrir að mæta... fyrir vinsemdina og notalegheitin... svona kvöld næra ekki síður sál en líkama... og þess vegna erum við ennþá að...





Comments