Æfing nr. 880 þriðjudaginn 13. janúar 2026 Við ákváðum að rifja upp þvælinginn á alla höfðana sunnan við Hvaleyrarvatn frá því forðum daga þegar við fórum ótrúlegustu leiðir í slæmum veðrum á þriðjudögum... af því ganga á eingöngu Stórhöfða var eiginlega of létt æfing úr því enn einu sinni viðraði eins og það væri sumar fyrir utan hitastigið og myrkrið... ... og enduðum mjög skemmtilega hringleið svipaða og áður þar sem við þveruðum endalaust stíga og vorum af þeim og á þeim