top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Húshöfði, Miðhöfði, Stórhöfði og Selhöfði kringum Hvaleyrarvatn

Æfing nr. 880 þriðjudaginn 13. janúar 2026


Við ákváðum að rifja upp þvælinginn á alla höfðana sunnan við Hvaleyrarvatn frá því forðum daga þegar við fórum ótrúlegustu leiðir í slæmum veðrum á þriðjudögum... af því ganga á eingöngu Stórhöfða var eiginlega of létt æfing úr því enn einu sinni viðraði eins og það væri sumar fyrir utan hitastigið og myrkrið...


... og enduðum mjög skemmtilega hringleið svipaða og áður þar sem við þveruðum endalaust stíga og vorum af þeim og á þeim til skiptis en það virðist ekki vera eiginleg hringleið á höfðana eins og við vorum að eltast við þá...


Dásamlegt veður... logn... frost og stjörnubjart... því miður ekki norðurljósasýning eins og svo oft í vetur en við getum huggað okkur við sjónarspilið á Akrafjalli í nóvember þar sem við fengum grænu og bleiku ljósin beint í æð...


Heilmikið brölt en létt í þessu notalega veðri þar sem endað var uppi á Stórhöfða og tekin svo smá útúrdúr upp á Selhöfða sem var fjórði og síðasti höfði dagsins en við töldum þó eingöngu einn "tind" í söfnuninni um að ganga á 100 fjöll eða gönguleiði ár árinu 2026...


Frábær mæting enda sumaraðstæður í raun...


Mættir voru alls 14 manns, Birgir, Gunnar G., Ása, Björg, Örn, Sjöfn Kr., Kolbeinn, Erik Maher, Brynjar, Ragnheiður, Hjörtur og Guðjón en Bára tók mynd og Batman og Myrra voru hundar kvöldsins...

Mjög skemmtileg leið sem við þurfum eiginlega að fara í dagsbirtu til að átta okkur á aðstæðum og reyna að finna skárri leið á stígunum sem þarna eru um allt...


Alls 6,4 km á 1:58 klst. upp í 186 m hæð með alls 246 m hækkun úr 35 m upphafshæð.


Takk elskur fyrir skínandi góða æfingu og alla þessa elju að mæta svona þriðjudag eftir þriðjudag í tæp 19 ár... þetta var síðasta æfing þjálfara í hverri viku... nú er frjáls mæting annan hvern þriðjudag og eftir viku er það Úlfarsfell frá Skarhólamýri þriðjudaginn 20. janúar...

Comments


bottom of page