Æfing nr. 887 þriðjudaginn 21. apríl 2026 Við fórum öðruvísi leið á Stóra Reykjafell síðasta þriðjudag vetrar... og því miður var þoka svo stórkostlegt útsýnið og landslagið naut sín ekki sem skyldi... En það var milt veður og sumarfæri að mestu... Gengið var frá bílastæðinu við Hellisheiðarvirkjun greiða leið að Hádegishnúk þar sem fara þurfti undir vatnsrörin á góðum stað þar sem var nægt pláss... Hádegishnúkur fellur algerlega í skuggann af Stóra Reykjafelli... hann er inn