Æfing nr. 884 þriðjudaginn 10. mars 2026 Það var náttúrulega tóm vitleysa að hafa þessa mögnuðu leið á dagskrá í mars... við reyndum færðum hana fram um tvær vikur... og geymdum Múla í Stardal aðeins... þar sem skollinn er á alvöru vetur með snjó og ófærð að fjallsrótum... en við hefðum átt að geyma þessa leið fram á sumarið eða haustið... Og við vorum næstum því búin að færa æfinguna yfir á Geithól... en afréðum að halda áætlum þó okkur grunaði að snjóþung gilin leyfðu ekki
Æfing nr. 882 þriðjudaginn 10. febrúar 2026 Öðruvísi ganga á Esjunni var æfing vikunnar... upp og niður formfagra sandhryggi sem sést í hér hægra megin við miðja mynd... alla leið að upptökum Hvítár í Esju... kringum Hvítárbotna með viðkomu á höfðanum ofan þeirra... Þetta var sólgleraugnaganga... þar sem við tökum alltaf hópmynd í upphafi æfingar... með til að fagna því að sólin sé ekki sest þegar gangan hefst á þriðjudegi... nú birtir óðum og myrkrið er á undanhaldi... Mætti