top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Stóri og Litli sandhryggur um Hvítárbotna í Esju #Esjanöðruvísi

Æfing nr. 882 þriðjudaginn 10. febrúar 2026


Öðruvísi ganga á Esjunni var æfing vikunnar... upp og niður formfagra sandhryggi sem sést í hér hægra megin við miðja mynd... alla leið að upptökum Hvítár í Esju... kringum Hvítárbotna með viðkomu á höfðanum ofan þeirra...


Þetta var sólgleraugnaganga... þar sem við tökum alltaf hópmynd í upphafi æfingar... með til að fagna því að sólin sé ekki sest þegar gangan hefst á þriðjudegi... nú birtir óðum og myrkrið er á undanhaldi...


Mættir 14 manns... Inga, Oddný T., Sighvatur, Þorleifur, Örn, Linda, Hjörtur, Björg, Silla, Gunnar G., Erik, Guðný Ester, Frímann og Bára tók mynd og Batman og Kolka voru hundar kvöldsins...


Dásamlegt... að hafa sólina með í för á þriðjudagskveldi aftur...


Þetta er mjög skemmtileg leið... á breiða neðsta stígnum til að byrja með... en svo tekin hægri beygja fljótlega upp einn af hjólastígunum...


Enn ein veðurblíðan á göngu þessa síðustu mánuði... veðrið veturinn 2025 - 2026 fer í sögubækurnar...


Hvílík fegurð !


Stígurinn fer yfir tvær trébrýr og inn í skóginn sem nú stækkar óðum í Esjunni austar en áður...


Ótrúlega falleg leið sem fáir hafa farið... og gott dæmi um ótal stíga og leiðir í Esjunni sem menn eru ekki að nýta í líkindum við leiðina upp að Steini þar sem allt kraðakið er öllum stundum...


Stígurinn liggur meðfram Stóra sandhrygg... en við skelltum okkur upp á hann... sést hér á mynd vinstra megin... sá Litli er svo hægra megin en stígurinn niður hann liggur á hryggnum sjálfum...


Fínasta leið þó enginn væri stígurinn...


Náði því miður ekki nægilega góðri mynd til að fanga fegurðina á Stóra sandhrygg...


Ofan af Stóra sandhrygg fórum við aftur á stíginn sem lá alla leið upp að Hvítárbotnum...


Litið til baka...


Hvítárbotnar... stífla hér og smá vatnslón... í stað þess að taka stíginn áfram hér gengum við meðfram Hvítá að upptökum lítið eitt ofan...


Þar áðum við og tókum notalega nestispásu í ágætis veðri þó febrúar væri...


Eftir nestispásuna afréðum við að taka þennan höfða áður en snúið var við til baka um Litla sandhrygg...


Á niðurleiðinni skall myrkrið á í rólegheitunum en við komumst upp með að sleppa höfuðljósunum lungað úr göngunni...


Litið til baka...


Yndislegt að kveðja smám saman höfuðljósin hér með... á nítjánda vetrinum í röð... á fjöllum á þriðjudögum allt árið um kring... ótrúlegt...



Alls 4,2 km á 1:39 klst. upp í 370m hæð með alls 317 m hækkun úr 53 m upphafshæð.


Dásamleg kvöldæfing eftir frekar erfiða æfingu síðast... gott að taka léttar og erfiðar þriðjudagsæfingar til skiptis svona eins og hægt er !

Comments


bottom of page