top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Kollafjarðará að Gunnlaugsskarði #Esjanöðruvísi

Æfing nr. 884 þriðjudaginn 10. mars 2026


Það var náttúrulega tóm vitleysa að hafa þessa mögnuðu leið á dagskrá í mars... við reyndum færðum hana fram um tvær vikur... og geymdum Múla í Stardal aðeins... þar sem skollinn er á alvöru vetur með snjó og ófærð að fjallsrótum... en við hefðum átt að geyma þessa leið fram á sumarið eða haustið...


Og við vorum næstum því búin að færa æfinguna yfir á Geithól... en afréðum að halda áætlum þó okkur grunaði að snjóþung gilin leyfðu ekki þræðingu eftir ánni alla leið uppeftir... hér við kalda pottinn flotta í gilinu... ótrúlegt að hafa bara gengið framhjá honum si svona !


En þetta reyndist falleg æfing og við nutum þess að ganga í þessu góða veðri sem var þetta kvöld... og dagsbirtu sem varði út gönguna...


Kollafjarðarárfossinn sem við skoðum reglulega... hér bað þjálfari menn um að stoppa og ekki þétta hópinn til að ná betri hópmynd...


Og það tókst ágætlega en hefði verið enn betra að hana menn dreifða alla leið til enda hægra megin... mættir voru 13 manns; Örn, Kolbeinn, Hjörtur, Guðjón, Linda, Inga, Sjöfn Kr., Björg, Helgi, Birgir Martin, Siggi og Oddný T. en Bára tók mynd og Batman og Kolka röltu með í rólegheitunum... það sveið í hjartað að sjá Anítu og Baltasar handan við ána þegar við vorum nýlögð af stað og hún kallaði til okkar... við reyndum að segja henni að koma bara aftur með okkur upp eftir... þeirra er sárt saknað á þriðjudögum...


Snjóþunginn í giljunum var eins og við var að búast... og áður en við vissum af vorum við komin upp á Kúpuhrygg... af því snjórinn var erfiður og misþéttur þannig að erfitt var að vita hvort skaflinn væri þunnur eða þykkur þegar stigið var næsta skref... ekkert mál fyrir aftari menn... en mun meira mál fyrir þá sem fara fyrstir...


Gullin birta marsmánaðar er mætt á þriðjudögum... og þá eru okkur allir vegir færir... dásamlegt alveg !


Sólarlagið þetta kvöld var gyllt með bláum, hvítum og gráum... þessi bleiki og ljósblái hefur kvatt í bili... og mætir aftur í nóv til feb eða aðallega des og jan...


Hér fórum við yfir eina kvíslina af þremur á uppleiðinni... og menn fóru í gegnum skaflinn og Helgi fékk slæmt högg á hnéð sem vonandi jafnar sig en hann ásamt fleiri Toppförum er að fara í margar spennandi ferðir í sumar hérlendis sem erlendis...


Vorið er á næsta leyti... það kíkti upp úr snjónum... en við erum þakklát fyrir hann... því annars hefði okkur ekki fundist hæg tað fagna vorinu... enginn vetur búinn að vera fyrr en í mars... svo við fyrirgefum mars allt... óveður, snjóþunga, ófærð, harðfenni, skafrenning, kulda... allt !


Komin á stíginn ofan við gljúfrið sem var orðið of snjóþungt og varasamt að ganga niður í þeim vegna snjóflóðahættu... (taugaveiklaði kvenþjálfarinn sko ! :-) )...


Litið til baka... snjórinn lífgar fallega upp á... og hefði alveg mátt vera í myrkrinu í jan og feb...


Sólin settist meðan við vorum á uppleið... stutt í Gunnlaugsskarð...


Snjóþungt færi og engin auð jörð ofar...


Litið til baka...


Þegar síðasta brekkan var framundan niður í mót að Gunnlaugsskarði létu þjálfarar þar til sitja og voru að vona að við myndum ná niður án þess að þurfa að nota höfuðljósin... og það tókst naumlega...


Við VERÐUM að fara þessa leið í sumarfæri... það var nú ætlunin... hér var mun snjóþyngra en vestar í Esjunni... og ef við hefðum verið hér í snjólausu þá hefðum við komið upp hér hægra megin meðfram læknum... og ekki stoppað fyrr en í Gunnlaugsskarðinu miðju... en þetta var fínt í þessu færi...


Farið að rökkva og það gerðist hratt á niðurleiðinni sem var á stígnum góða...


Myrkrið skall á á bílastæðinu í lok göngunnar... andstæðukennt að keyra frá Esjunni í myrkri eftir dagsbirtu alla gönguna...


Alls 4,5 - 5,5 km á 2:30 klst. upp í 508 m hæð með alls 437 m hækkun úr 113 m upphafshæð...


Dásamlegt kvöld og komið heim kl. 20:30 með höfuðljósin ennþá í bakpokanum... þar næsta þriðjudag ætlum við sjaldfarna leið um Múla í Stardal og þræða okkur niður með Stardalsá í dal sem fáir skoða... það verður ævintýri !



Comments


bottom of page