top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

18 fjöll á 18 dögum af því Toppfarar eru 18 ára á árinu 2025 !

Árleg áskorun í maí mánuði í tilefni af afmæli Toppfara þann 15. maí ár hvert og nú var það 18 ára afmælið :-)


Aníta:


AFMÆLISÁSKORUN 2025


18 dagar, 18 ólíkar leiðir, 36 toppar, 118km og 8925 í hækkun

Eins og áður var mesti höfuðverkurinn að finna tíma í þetta vesen svo sumar voru styttri en aðrar… LOL


Hápunkturinn var Þverártindsegg en Botnssúlur narta fast í hælana


14.5. Helgafell Mos

1 2.11km 138hm

Ammælis #1 toppur #1 Skottaðist undir miðnætti


15.5. Úlfarsfell frá litla bílastæði

1 3.38 198hm

Flýtti mér hægt enda nálgast miðnættið eftir langan dag.


16.5. Esja - róleg ganga að Nípu

1 3.02km 272hm

Aðeins að ná þreytunni úr kroppnum


17.5. Úlfarsfell frá Sólbakka - Litli/Stóri/Litli

3 2.73km 240hm

Hálftíminn og afmælis á skokki fyrir aksturinn austur


18.5. ÞVERÁRTINDSEGG

1 14.54km 1600hm

Hólí sjitt hvað þetta var geggjað. Algjörlega á topp 10 !!


19.5. Úlfarsfell frá Skarhóla með hangsi

1 3.54km 206hm

Kannski var ég smááá lúin... LOL


20.5. Múli, Trana og Möðruvallaháls

3 9.49km 681hm

Þriðjudags tekin snemma í brakandi sólskini og 19° hita


21.5. Mosfell

1 3.72km 221hm

Ekki mitt uppáhalds en allt í besta. Ammælis #8 tindur #10



22.5. Æsustaða fkn fjall

1 1.77km 130hm

Grjóthrúgan tekin í þvílíku rok og rigningarves


23.5. Úlfarsfell

1 4.01km 205hm

Þræddum skemmtilega hjólastíga. Ammælis #10 tindur #12


24.5. Esja - Arnarhamar og Smáþúfur

2 7.51km 601hm

Frekar tíðindalaust en alltaf ljúft Ammælis #11 tindur #14


25.5. Úlfarsfell

2 4.08km 280hm

Rigningarrölt upp Hamrahlíðarskóg, Stóri og svo Hákinn


26.5. Esja að Steini

1 6.12km 568hm

Tímamæling; 40:27 að Steini. Upp og niður 1:02


27.5. Esja hringleið

8 14.1km 1060hm

Nípa, Rauðh, Geith, Rauðhamrar, Steinn, Þverfellsh, Virkið, Gunnlaugsskarð


28.5. Úlfarsfell að Hákinn og Stórahnjúk

2 4.21km 219hm

Frá stóra bílast. Hitti Öllu vinkonu og stoppuðum í spjall


29.5. HHH-Hangs á Helgafelli fyrir háttinn

1 3.29km 229hm

Upp frá Skammadal og svo þvers og kurs og út um allt


30.5. Helgafell grasslóði vestanmegin

1 2.02km 141hm

Fundum einhvern slóða upp og týndum honum svo... LOL


31.5. Botnssúlurnar allar

5 28.47km 1936hm


Afmæliskorun lokið með GEGGJAÐRI ofurgöngu


-------------------------------------------------------------------


Bára:


Hér koma 18 fjöllin mín á 18 dögum. Hélt ég myndi ekki ná þessu, sérstaklega af því ég sá ekki fram á að komast á Botnssúlurnar en lausnin að hver og einn gæti valið hvaða 18 daga samfellu þeir tækju í maí-mánuði bjargaði mér. Hér með verður áskorunin alltaf á þennan veg, að hver og einn tekur þá samfelldu daga sem henta honum í afmælismánuðinum maí 😊 


1.       Tindfell, Hrói, Rjúpnabrekkur og Enni ofan Ólafsvíkur 10. Maí = 3 fjöll

2.       Svartagjá í Víðihamrafjalli og Glymur 14. Maí = 1 fjall

3.       Raufarfell og Skjannanípa um Kaldaklifsgil og niður Seljavelli = 2 fjöll

4.       Ölfusvatnsfjöll, Gildruklettar, Lambhagi og Einbúi 20. Maí = 2 fjöll

5.       Geithóll upp Rauðurð og niður Kollafjarðará í Esju 21. Maí = 1 fjall

6.       Úlfarsfell 3ja tinda hringurinn 22. Maí = 1 fjall

7.       Rauðhamar í Esju ásamt Nípu, Rauðhóli og Geithóli = 4 fjöll

8.       Hnefi í Lokufjalli, Melahnúkur og Dýjadalshnúkur í Esju 26. Maí = 3 fjöll

9.       “Krýsuvíkurtindur”, Hetta, Hverafjall og Hattur á Sveifluhálsi 27. Maí = 4 fjöll

 

Alls 21 “tindur” á 18 dögum og aldrei sami tindur nema Geithóll tvisvar. Esjan er vinafjallið mitt á þessu ári og það kemur virkilega á óvart hversu skemmtilegt það er að hafa hana sem vinafjall. Það er lengri akstur… en það er einfaldlega margfalt þess virði því fjölbreytnin er svo mikil og erfiðleikastigið er hærra og maður ósjálfrátt fer oft lengra og hærra en maður ætlaði þegar  maður lagði af stað því líðan og veður kallar á það svo þetta er stórgróði… að hafa Esjuna sem vinafjallið sitt.


Ótrúlega gaman að gera þetta, bjástra við að ná 18 fjöllum á 18 dögum. Þetta krefst úthalds, einurðar og útsjónarsemi sem er gefandi og styrkjandi og skilar sér á endanum í öðrum verkefnum í lífinu. Mæli svo með því að gera þetta við þá sem hafa ekki prófað og eru ákveðnir í að þeir geti aldrei náð þessu.


Á næsta ári… þá verða það 19 fjöll á 19 dögum og við hættum ekki fyrr en við náum 31 fjöllum á 31 degi árið 2039… ef heilsan leyfir 😊 … við getum þetta ef hugarfarið er jákvætt og lausnamiðað, en bara… ef það er einmitt það þannig… 😊 


Sjá fleiri samantektir næstu daga frá þátttakendum !

Comments


bottom of page