top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Efstadalsfjall um Miðdalsgljúfur - "Við erum aldrei of gömul" !

Tindferð nr. 364 laugardaginn 8. ágúst 2026


Efstadalsfjall er búið að vera talsverðan tíma á lista yfir fjöll sem gott gæti verið að grípa í þegar ekki viðrar til lengri og flóknari tindferða... og það kom að því að það komst á lista Toppfara... fyrsta laugardag í ágúst árið 2026... þegar ekki viðraði nægilega vel til að ganga á fjallakransinn kringum Frostastaðavatn... en nægilega viðraði á suðvesturhorni landsins til stuttrar göngu á fjall vel undir 1000 metrum...


Það var spáð rigningu til 09 - 10 um morguninn en svo átti að stytta upp og vera þurrt og jafnvel sjást til sólar þennan laugardag á þessu svæði við Laugarvatn... en Laugarvatnið er frekar blautt svæði að fenginni reynslu... og það rigndi hressilega þegar við keyrðum inn á svæðið og lögðum bílunum við Golfvöllinn Dalbúa... svo við fórum öll í regnfatnað áður en lagt var í hann...


Þess skal getið að umsjónarmaður golfvallarins, hann Gummi leit við og gaf okkur góðfúslega leyfi til að leggja bílunum þarna þennan dag... sjá Efstadalsfjallið hér gnæfa yfir golfvellinum...


Lagt var af stað kl. 10:23 eftir akstur kl. 09 úr bænum... notalegt að fara ekki klukkan 07 og vera búin snemma... þessar stuttu og léttu tindferðir eru ansi ljúfar...


Við ákváðum að ganga frá golfvelllinum og upp með Miðdalsgljúfri frekar en að keyra upp jeppaslóðann á Miðdalsfjallið þar sem okkur sýndist að fegursti hluti gönguleiðarinnar yrði meðfram gljúfrinu... og það reyndist rétt...


Við gengum á stíg sem sjá mátti meðfram gljúfrinu austan megin... jeppaslóðinn er vestan megin... girðingarstaur hér nánast kominn á kaf í gras og mosa...


Miðdalsgljúfrið var ægifagurt... sjá efri hlíðar Efstadalsfjalls hér ofar...


Falleg og ljúf leið í gegnum kjarr og skóg...


Þetta fjall er sundurskorið giljum og gljúfrum og í bakaleiðinni reyndi á að velja réttan rana niður... en það er auðvelt að taka rangan og lenda í smá ógöngum eins og Birgir Martin og Magga Páls sannreyndu...


Öll veður voru í þessari göngu... hlýtt niðri, kalt uppi, logn niðri en stífur vindur uppi... rigning til að byrja með en svo þurrt og smá sól... svo aftur dropar... og svo aftur þurrt...


En skyggnið hvarf aldrei og það er fyrir mestu... það hefur enga þýðingu að eiga allan þennan útivistarfatnað ef við ætlum aldrei að leggja á fjall í smá rigningu... því yfirleitt rætist úr og það er þurrt að mestu eins og þennan dag...


Gljúfrið...


Ofar var þetta smávegis spræna sem við stikluðum nokkrum sinnum yfir á upp- og niðurleið...


Gott að hafa svona hreint rennandi vatn lungað úr leiðinni... sérstaklega fyrir hundana...


María Elísabet var í sinni fyrstu göngu með klúbbnum eftir að hafa skráð sig aftur inn eftir nokkurra ára hlé...

+

Yfir lækinn nokkrum sinnum...


Einar Ársæll var gestur í göngunni og skráði sig svo í klúbbinn í kjölfarið... frábærir nýliðar á ferð í þessari göngu...


Hér þrengdist aftur um ána...


Og við enduðum á að fara upp úr gljúfrinu...


Skemmtileg leið og allt hægt í sumarfærinu...


Komin upp úr gljúfrinu og þá tók berskjölduð heiðin við... ef menn keyra upp Miðdalsfjallið og ganga þaðan á Efstadalsfjall... þá er þetta landslagið allan tímann... ekki fegursta landslagið en samt heilandi og ljúft...


Litið til baka... kjarrið... áin... og gilið að baki... blómlegar sveitir Suðurlands svíkja engan... í fjarska má sjá Vörðufellið sem við gengum á í fyrra... með Mosfellið framan við það ljósara á lit... og Hestfjall stingandi upp úr vinstra megin við miðju... sem bíður okkar á dimmasta tímanum í desember... þegar það hentar vel að ganga stutta og létta göngu á ávöl fjöll í vetrarfæri...


Þorpið við Laugarvatn hér og Laugarvatn og Laugarvatnsfjall hægra megin... Apavatn svo lengst til vinstri...


Apavatn hér og fyrrnefnd fjöll... við eigum þá ennþá eftir Mosfellið sem er stutt ganga... og svo eigum við náttúrulega eftir Miðdalsfjallið sjálft sem er við hliðina á Efstadalsfjalli...


Laugarvatnsfjall hér útbreitt... Snorrastaðafjall svo lengra til hægri... hluti af sama fjallabálki...


Við nutum góðs af gps-slóð Birnu frá Wikiloc... og voru líka búin að sjá slóðir Toppfaranna Ísleifs og Stefáns og Dínu... steingleymdi að taka mynd af nestispásunni þarna á uppleið...


Þegar ofar dró kom útsýnið til norðurs í ljós... Rauðafell, Högnhöfði og Kálfstindur...


Spriklandi sumarið í hámarki... tærir lækir, tjarnir og pollar í skærgrænum móanum...


Það dimmdi yfir á köflum og svo létti til á milli... rysjótt veður eins og spáð var og á slíkum dögum getur brugðið til beggja vona með veðrið...


Ágætis landslag þarna uppi og lítið hægt að sjá hvar tindurinn var nema elta hækkunina og svo var gott að hafa gps-slóðina í tækjunum til viðmiðunar...


Tindurinn þarna uppi...


Mosinn... magnaður...


Upp þennan hjalla til að komast á tindinn.. klettaborgin þarna lengra hægra megin er ekki hæsti tindur...


Komin áleiðis upp og útsýnið til norðurs var glæsilegt...


Tindurinn í augsýn...


Hann var rétt merktur á korti og passaði við gps-slóðina sem þjálfarra miðuðu við...


Útsýnið af tindinum í 644 m hæð... Rauðafell... Högnhöfði, Kálfstindur... og svo taka Jarlhetturnar við enn innar... í sömu tindaröð... þetta land okkar... á sér fáa líka...


Þetta var róleg ganga þar sem menn gátu lagst til svefns ef þeim hugnaðist svo... nei, það er nú ekki rétt... smá grín...


Frábær hópur... Hjörtur, Magga Páls, Fanney, Sjöfn Kr., Einar Áskell., Bjarni Kr., Örn, María E., og Birgir Martin... en Bára tók mynd og Batman er þarna með á myndinni...


Ákveðið að fara niður í betra veður og taka nesti tvö í góðu skjóli...


Hér tók sólin að skína og við hentum af okkur regnfötunum...


Orðið tærara til fjalla... og allt betra þegar hvorki vindur né rigning truflaði för... gleymdi líka að taka mynd í seinni matarpásunni...


Falleg birtan í svona breytilegu veðri...


Litið til baka...


Gaman að koma ofan af heiðinni aftur niður í gróðursælar neðri lendurnar...


Litið til baka... gróðurinn er í hámarksgrósku núna og allt svo fallega grænt...


Gljúfrið byrjað að myndast... og hér þarf að gæta þess að fara réttu megin við Miðdalsgljúfrið...


Nokkrir ásar...


Brekkarn þar sem við fórum upp...


Gott að fá smá verkefni í þessari léttu göngu...


Þessi ganga var fínasta æfing fyrir stiklun yfir læki...


Komin í kjarrið og skóginn...


Hér lokaðist gilið ofan við foss...


Og við fórum upp austan megin... en Birgir Martin valdi að fara bient niður eftir því sú leið virtist freistandi létt... og Magga Páls fór á eftir honum...


Mjög fallegt gil...


Fossarnir sem flæktu för niður gljúfrið...


Við litum eftir Birgi Martin og Möggu en sáum þau ekki...


Hryggurinn milli gilja hér að enda í gljúfrinu...


Hér sáum við til tvímenninganna... þau voru að ganga niður hrygginn milli gilja...


Bæði þaulvön gjallgöngum svo við vissum að þau myndu koma sér út úr þessum útúrsnúningi...


Fóru niður nefið hér og upp á ásinn vestan megin...


Komin niður og litið upp eftir gilinu...


Alls 9,8 km á 4:47 klst. upp í 644 m hæð með alls 634 m hækkun úr 112 m upphafshæð...

sagði Base Camp forritið við niðurhal úr þessu tæki...


Efstadalsfjallið ofan við bílastæðið og golfvöllinn Dalbúa...


Mikið hlegið og spjallað í lok göngunnar... klukkan bara rúmlega þrjú á laugardegi og okkur fannst við hafa nægan tíma...


Takk fyrir okkur Efstadalsfjall... við eigum Miðdalsfjallið eftir... frekar löng og aflíðandi ganga... gæti hentað vel að vetri til... hvergi tæpistigur og frekar greiðfær leið...


Kálfstindar vinkuðu á leið heim...


Þungbúið til fjalla í borginni... Skálafellið skýjað niður að fjallsrótum... við þökkuðum alsæl fyrir að hafa fengið gott skyggni alla gönguna okkar...


Takk elskur fyrir yndisgöngu sem loksins bætti þessu fjalli í safnið okkar, það var löngu kominn tími til !



Myndbandið hér:

Comments


bottom of page