top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Grafartindar í Dölunum í sól og sumri bak við fræg fjöll yfir fögrum dölum

Tindferð nr. 361 laugardaginn 6. júní 2026


Eftir fleiri en eina frestun á þessari ferð... gripum við tækifærið í byrjun júní... þar sem ekki viðraði nægilega vel á Kattareyra né Guðnanípu og Uppistungnahaus frá Seljavallalaug... eftir margar tilraunir allan maímánuð...


Baula veifaði vinalega og þakkaði fyrir allar sjö heimsóknirnar í gegnum árin frá 2008...


Mælifellið vinstra megin...


Eftir akstur yfir Bröttubrekku niður í Dalina... blasti fljótlega við þessi fjallsmúli... Grafartindar hér ofar og leiðin okkar þennan dag hér upp múlann... bærinn Breiðabólsstaður í forgrunni...


Bjartara yfir en við áttum von á... og þurrt þegar stigið var út úr bílnum...


Og sólin tók skyndilega að skína... það létti til og skúraleiðingarnar sem voru í spánni létu ekki sjá sig yfir okkur nema í lok ferðarinnar... við vorum stálheppin með veðrið...


Dásamlegt að byrja í sólargeislum...


Lagt af stað kl. 11:01... ljúft að fara svona úr bænum klukkan níu en ekki átta...


Sumarið hafið og ilmurinn ómetanlegur...


Hvílík sæla...


Þessi kafli í gegnum skógræktina var yndislegur... en við fylgdum slóðanum sem lá að mestu meðfram skóginum sunnan megin...


Grafartindar hér ofar... lungamjúkar fjallsbungur... en meira landslag og brúnir austan megin þegar ofar dró...


Fjallið Öxl hér ofan við bæinn...


Vesturbrúnir neðri fjallsaxla Grafartinda...


Litið ttil baka... hringvegurinn F1 þarna í dalbotninum... handar rís Hlíðartúnsfjall með Nónklungri hér á mynd...


Slóðinn meðfram skóginum... við önduðum að okkur kviknandi sumrinu... og áttum eftir að lifa á þesasri göngu út júnímánuð...


Komin í fjalllendið... nýliði með í för... hann Bjarni K., vinur Birgis Martins, frábær viðbót við hópinn...


Uppgangan var ljúf og snörp í kjarri og lyngi og svo möl og grjóti ofar...


Smávegis klungur...


Himininn heiður og sumarið yljaði...


Beigaldadalur... svakalegt nafn !


Þegar eitthvað er glöggvað á veraldarvefnum núorðið... kemur gervigreindin fyrst upp... forheimskandi að öllum líkindum... en óhugnanlega þægilegt...


Baula farin að kíkja á okkur...


Breiðabólsstaður þarna niðri... blómlegt og fallegt bæjarstæði... eyðibýli sem er vel við haldið...


Ofar tóku ljúfar fjallsbungur við inn með fjallinu...


Baulan okkar... hvöss og snörp...þyngra yfir til suðurs...


... en sólríkara okkar megin...


Yndislegt að hafa sólina svona nánast allan daginn... við drukkum í okkur þetta veður... og það var gott að vita ekki... að þetta yrði baráttan þetta sumar 2026... að grípa fá sólargeisla sem gáfust...


Léttari yfirferð en við áttum von á... en sælan við að fara nýjar slóðir hríslaðist um okkur... þetta... nákvæmlega þetta... að fara ótroðnar slóðir.. og vita lítið hvað var framundan... nema út frá glöggvun á vefnum og skoðun á kortum... er það besta við fjallgöngurnar...


Nú tók landslagið á Vesturlandi til vesturs að blasa við... vá... fjalladalurinn norðan Tröllakirkju í Hítardal... við eigum ekki eitt fjall í safninu á þessum slóðum... og þurfum að bæta úr því næstu árin...


Það var vindur... sem gaf okkur sólina... og feykti burt rigningarskýjunum... og við leituðum að skjóli til að fá okkur að borða... en fundum lítið nema þessa litlu klettaborg... hún varð að duga...


Beigaldadalurinn innstur... fallegt var það...


Skúraleiðingarnar hótuðu að koma yfir... en létu okkur svo alltaf í friði... einmitt þegar við bjuggum okkur undir að fá rigningu en ekki sól...


Bjartara yfir til norðurs...


Búðardalur og nágrenni...


Fínt að hafa vindinn... miklu betra en vera í þoku og rigningu takk fyrir...


... sem var aftan við okkur... og við héldum að væri að leggjast yfir... en fór svo framhjá... ótrúlegt...


Mikið spjallað og hlegið... frábær stemning og vel þegin útivera...


Breiðafjörður blasti við okkur... og Barðaströndin þarna handan við fjörðinn...


Tröllakirkja í Hítardal og félagar í vestri...


Þjálfarar höfðu til hliðsjónar gps-slóð frá Elínu Stefáns á Wikiloc sem og aðra leið frá Ísleifi fyrrum Toppfara en hann fór frá norðurtagli Grafartinda og upp sem var lengri leið og með meiri hækkun...


Litið til baka...


Baula þarna í fjarska í suðri... mjög skrítið að vera gangandi norðan megin við hana...


Hvílíkur fjallstindur ! Að við skulum vera búin að fara þarna upp í janúar, febrúar og mars... ótrúlegt !


Nú tók landslagið á sig Baululegra landslag... enda eru þessir tindar líkir Baulu þegar keyrt er suður í gegnum Dalina...


Komin upp á eina öxlina þar sem Litla Baula var farin að sjást líka...


Í austri tók að blasa við fjallsgarður sem við höfum ekki áður augum litið...


Og nær voru formfagrar og litríkar fjallsbungur sem tóku af okkur loforð um göngu á næsta ári... #Dalafjöllin ... jebb... ekki er ráð nema í tíma sé tekið... nú söfnum við fjöllunum á þessu svæði næstu árin...


Skyldi þetta vera hæsti tindur ?


Til vesturs...


Yfir Breiðafjörð...


Dásamlegt veður... við prísuðum okkur sæl allan daginn... enda voru margir í rigningu nær borginni sem gengu þar þennan dag...


Ljúft og notalegt...


Litið til baka... hlýr litur Grafartinda að koma í ljós...


Jú... hæsti tindur blasti hér við... en eftir eitt gil samt...


Ofan af brúnunum blasti Reykjadalur við sem svo heitir... og við sáum jeppaslóða þarna niðri... skyldi vera hægt að keyra hann að sumri og ganga þaðan á þessi fjöll ?


Næst síðasta fjallsbungan...


Hér sást skyldleikinn við Baulu vel... efsti kaflinn á Baulu norðan megin er svipaður þessum á smá kafla...


Litla Baula og Baula í fjarska...


Fyrri hópmyndir hér... alls 12 manns og þar af Bjarni nýliði í sinni fyrstu ferð...


Síðasti og efsti tindurinn...


Létt og greiðfært... lungamjúk útgáfa af Baulu...


Reykjadalur... og næstu fjallstindar á þessu svæði... þessir blámóleitu... Hrístindahnúkur, Breiðukinnarhnúkur og Kálfagilshnúkur... það verður veisla...


Gamalhnúkar þarna í fjarska... þeir kalla líka á árið 2027... og skipta kannski við þrennuna á árinu 2028...


Síðasti kaflinn upp... allt svo skært og tært...


Komin upp á efsta tind...


Litið til baka...


Heilmikil heiði uppi...


Þungbúnara yfir hér og við héldum að það færi að rigna... en það gerði það ekki... þetta minnti á Hrafntinnusker á Laugavegsgönguleiðinni... bjart á upp- og niðurleið... en einhvern veginn alltaf skuggalegt og dimmt í Skerinu...


Óskert útsýni upp á Holtavörðuheiði vestan frá...


Hæsti tindur Grafartinda mældist 901 m hár...


Miklar snjóhengjur ennþá í norðurhlíðunum...


Reykjadalur hlýr og bjartur þarna niðri...


Litið til baka... þetta var mjög Baululegt...


Svo tók sólin að skína...


Og við ákváðum að ná hópmynd í sólinni...


Biðum eftir einum...


Litla Baula, Mælifell og Baula... glæsileg fjöll en Baula er þeirra allra glæsilegust...


Seinni hópmyndinni... á tindinum !


Skær og tær birta þennan dag... óskaplega dýrmæt orkuhleðsla og sumarhleðsla á þessu rigningarsumri suðvestan langs sumarið 2026...


Glæsilegr landslagið til norðurs...


Gamalhnúkar og Tröllakirkja á Holtavörðuheiði...


Hér hallaði aftur niður til austurs...


Við tókum nestispásu hér uppi og héldum svo rösklega af stað til baka...


Með skúraloftið yfirvofandi... en ekki náði það í skottið á okkur...


Mögnuð birta þennan dag !


Mjúk form og hlýir litir... einmitt það sem við þurfum eftir veturinn...


Hver á sínum hraða... og spjallað sem aldrei fyrr...


Dásamlegt...


Mynd ferðarinnar... hlýjan... mýktin... birtan...


Einstaklega ljúf fjallganga...


Ljúft og löðurmannlegt var það þennan dag...


Við erum farin að heillast sífellt meira af svona styttri og ljúfari göngum... í blandi við þessar löngu og erfiðu...


Silla er snillingur í myndatökum og skilur eftir sig ótal ómetanlegra mynda af félögunum á veraldarvefnum...


Farin að skáskera okkur að niðurleiðinni...


Margar fjallsbungur en allar ávalar og greiðfærar...


Sveitin þar sem við lögðum upp...


Sauðafell þarna niðri... það væri þriðjudagsfjall... ef við byggjum aðeins nær...


Fórum greitt og nutum þess að skrolla niður í mót en ekki erfiða upp í mót...


Skyndilega tók að þyngjast yfir fjöllunum...


Og það grámaði yfir öllu...


En áfram gengum við í þurru ennþá...


Jebb... upp og niður allar þessar bungur...


Eina klöngrið á leiðinni... hornið á klettabeltinu ofan við skóginn...


Létt og greiðfært þó það tafði okkur smávegis á niðurleið...


Komin í lyngið ljúfa...


Stutt í skóginn... rigningardroparnir voru mættir hér...


En við tókum ekki eftir þeim... vorum að anda að okkur skógarilminum...


Yndislegur endir á göngunni...


Mjög fallegur staður og heilmikil skógrækt... staðarhaldarar eiga heiður skilið...


Lending við bílana rúmlega þrjú um daginn... í smávegis rigningu og mun þungbúnara veðri en var allan daginn...


Alls 9,3 km á 4:14 - 4:19 klst. upp í 901 m hæð með alls 855 m hækkun...


Jahérna hér... þetta sluppum við við !


Dásamleg ganga í tæru og sólbjörtu skyggni í engri rigningu fyrr en í blálokin... þakklæti er efst í huga manns eftir svona dag... og ef við bara vissum... hversu fáir dagar gáfust í sól sumarið 2026...



Comments


bottom of page