top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Grímmannsfell í þriðjudagsslagviðri tvö á þessu hausti

Æfing nr. 868 þriðjudaginn 30. september 2025


Aftur var slagveður á þriðjudega eins og í síðustu viku en það hafa verið stöðugar rigningar frá fallega deginum okkar á Laufafelli í lok ágúst í frosti og heiðskíru veðri... og af því það var svo frískandi síðasta þriðjudag á Úlfarsfellinu þá vorum við auðvitað í gírnum fyrir aðra eins endurnæringu vikuna á eftir... og tókum Grímmannsfellið um Helgufoss á stígnum sem nú er kominn vel troðinn og fjölfarinn alla leið upp á hæsta tind og niður sömu leið... en þetta var í fyrsta sinn sem þjálfarar fara með hópnum þessa leið, ótrúlegt er satt þar sem við fengum leiða á þessu fjalli fyrstu ár klúbbsins þegar þessi fína leið var ekki komin... og vorum alltaf að fara upp Flatafellið með tilheyrandi langri vegalengd í tíma og kílómetrum... svo þessi leið er komin til að vera og ekki furða hversu fjölfarin hún er...


Alls 5,6 km á 1:56 klst. upp í 511 m hæð með alls 416 m hækkun úr 200 m upphafshæð...


Mikið var þetta nærandi og skemmtileg ganga og veðrið... það lét okkur eiginlega alveg í friði þó ótrúlegt sé !


Ljósmyndir og nafnalisti undir hópmyndinni hér neðar:



Hjörtur, Guðjón, Björg, Örn, Sighvatur, Kolbeinn, Ása, Sjöfn Kr., Lilja Sesselja og Myrra og Batman bestuvinir léku sér með okkur en Bára tók mynd... alveg jafnt hlutvall kynja í þessari göngu... fimm karlmenn og fimm konur... ein tík og einn rakki... gaman að tölfræðinni stundum :-)



Takk elskur fyrir alveg dásamlegt kvöld... og enn eina æfinguna þar sem við mætum með höfuðljós en notum það ekki... vel sloppið með veður og birtu !

Comments


bottom of page