top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Húsfell á þriðjudagskveldi í janúar

Updated: Feb 9

Æfing nr. 881 þriðjudaginn 27. janúar 2026



Sextán manns mættu á Húsfellið í lok janúar í smá dagsbirtu í byrjun... en auðu færi, stífum vindi, sumarfæri og úrkomulausu... og rúlluðu upp þessu fallega felli sem er fjærst bílastæðunum á svæðinu...


Hörkugóð æfing þar sem gengið var rösklega enda á láglendi að mestu með smávegis brölti upp á sjálft fellið... og verður að segjast að nýliðar klúbbsins standa sig með prýði og mæta bæði í erfiðar þriðjudagsgöngur og tindferðir þessa dagana...


Mættir voru: Bára, Birgir, Chr, Erik, Frímann, Guðjón, Guðný Ester, Gunnar G., Halla, Hjörtur, Kolbeinn, Silla, Snorri, Steindór, Tína og Örn, en Halla og Snorri sneru við á miðri leið þar sem Halla þurfti að mæta á fund klukkan átta... og í staðinn bættust Tína og Frímann við hópinn uppi á tindinum, svo við vorum í raun alls 16 manns þetta kvöld.


Alls 10,6 km á 2:46 klst. upp í 311 m hæð með alls 329 m hækkun úr 91 m upphafshæð.


Ljósmyndir úr göngunni hér en í þessu myrkri og snjóleysi er myndefnið alls ekki gott og því af litlu að taka en við tókum aðra hópmynd í lok göngu þar sem mætingin breyttist :-)



Takk fyrir gönguna snillingar ! Vel af sér vikið að ganga tæpa 20 kmum Ölfusalpana síðasta laugardag og mæta svo í tæpa 11 km á Húsfellið þremur dögum síðar ! Nýliðarnir láta ekki að sér hæða... og eigum við að ræða heldra fólkið í þessum klúbbi sem gefur ekkert eftir... þó fjögur af þeim nái 70 ár aldri á þessu ári svo það fjölgar hratt í höfðingjahópi klúbbsins !

 
 
 

Comments


bottom of page