top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Selfjall og Sandfell við Hólmsheiði

Æfing nr. 885 þriðjudaginn 24. mars 2026


Þar sem ófært var að Múla og Bakhæðum í Stardal vegna fannfergis... marsmánuður hefur aldeilis safnaði vetrinum saman í einn þéttan mánuð eftir snjóleysi og logn í vetur fram að því... afréðu þjálfarar að ganga á fellin tvö við Waldorfskóla við Hólmsheiði...


Selfjallið mældist 275 m hátt...


Brakandi blíða í bænum... en nístandi vindur á svæðinu en fínt skyggni og færi...

Sandfellið hér framundan eftir góðan spöl upp á Selfjallið...


Við tókum nokkuð hefðbundinn hring en þó aðeins öðruvísi frá neðra bílastæðinu sem var pínulítið skemmtilegri en þeir fyrri...


Harðfenni undir lausamjöll og við enduðum í keðjubroddunum hér á miðri leið enda lúmskt hált og ljóst að við kæmumst aldrei hér niður nema á broddunum...


Einhverjir slepptu þeim samt þar til komið var á tindinn en það var léttir að fara í þá og þurfa ekkert að sniðganga svellbungurnar ofar...


Mjög falleg birtan þetta kvöld en möstrin og landslagið þess lags að við náum ekki nógu góðum myndum af þessari fegurð...


Komin upp á Sandfellið... við tókum hæstu hnúkana og mældis það 354 m hæst....


Skemmtilegur tindur með miklu útsýni...


Sjá svellað færið hér undir mjöllinni...


Frábær mæting þrátt fyrir nístandi kuldann:


Siggi, Björg, Linda, Sjöfn Kr., Örn, Kolbeinn, Erik, Helgi, Birgir Martin, Hjörtur, Guðjón og Sighvatur en Bára tók mynd og Batman var eini hundurinn...


Þjálfarar skoðuðu með leið beint niður af Sandfelli... þeir mundu eftir því að við þurftum að leita lags við að fara niður hér um árið þegar við gengum líka á Rjúpnabrekkurnar... en það var ljóst að engin góð leið var niður hér norðan megin að vetri til... harðar og brattar langar brekkur sem enginn vill renna af stað niður um...


Svo við tókum sömu leið niður og upp... og þá reyndi á að vera á keðjubroddunum... þegar farið er niður í mót og þunginn leggst öðruvísi á fæturna...


Sjá hér Jaðarinn... flotta leið hjólreiðamanna og hlaupara... það væri gaman að fara hér að hausti í dagsbirtu áður en snjórinn mætir og sjá þetta fallega hraun í jaðri borgarinnar...


Litið til baka í síðustu brekkunni niður Sandfellið...


Í stað þess að fara aftur upp á Selfjallið tókum við hliðarleið meðfram því... hér með Sandfellið í baksýn...


Slefið hjá Batman fór í klakabönd á feldinum hans í þessum kulda... það var ótrúlega kalt !


Alls 5,7 km á 2:01 klst. upp í 275 m á Selfjalli og 354 m á Sandfelli með alls 308 m hækkun úr 135 m upphafshæð...


Skínandi góð æfing en þó skyggði á að Sjöfn datt á svelluðum bletti síðasta kaflann eftir að komið var niður, vonandi jafnar það sig fljótt en það var ágætis áminning um að fara ekki úr broddunum meðan enn er svellað fær, agalegt að lenda í þessu !

Comments


bottom of page