top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Hornfellsnípa og Drangshlíðarfjall um Fimmvörðuhálsleið meðfram Skógá

Tindferð nr. 308 laugardaginn 18. maí 2024


ree

Þjálfarar blésu til nýrrar leiðar á mjög spennandi sjaldfarin fjöll meðfram Fimmvörðuhálsleið þegar einstaklega góð veðurspá gafst um miðjan maí... en þessa helgi voru til vara margfrestaðar ferðir á Snæfellsnesi... en þjálfarar vildu ná sér í eina sumarlega göngu og þá er landsvæðið undir Eyjafjöllum það besta því þar vorar mánuði fyrr en í öðrum landshlutum...


ree

Við létum því gamlan draum rætast með að ganga á fjöllin sem skreyta Fimmvörðuhálsleiðina vestan megin... og stefndum loksins eftir öll þessi ár á Drangshlíðarfjall... og bættum Hornfellsnípu við... og kom leiðin verulega á óvart...


ree

Mjög sumarlegur dagur... alveg yndislegt... stuttbuxur og bolur... við vorum fljót að fara úr lopaleysunni...


ree

Skógafoss... fjöldi ferðamanna þó það væri maí... hér er kraðak alla daga allan veturinn...


ree

Hefðbundin hópmynd á þessum stað eins og í fyrri ferðum um Fimmvörðuháls:


Guðmundur Jón, Batman, Örn, Guðjón, Ragnheiður, Linda, Jaana, Ingunn, Katrín Kj., Siggi, Sighvatur, Sjöfn Kr., Aníta og Fanney en Bára tók mynd... alls 14 manns... loksins fleiri en eins stafs tala ! :-)


ree

Gengin var hefðbundin leið um Fimmvörðuháls...


ree

Sól og sumar í haga...


ree

Fjallið okkar þennan dag... Drangshlíðarfjall... einstaklega fagurt og sviðmikið... og hrikalega bratt að sjá... en við fundum samt svakalega leið norðan megin...


ree

Komin upp með fossinum... regnbogi og ferðamenn...


ree

Mergjað !


ree

Það kom á óvart hversu langt upp eftir er búið að setja malarstíg og handrið með reipum... og það var skrítið að sjá allan þennan mannfjölda ganga svona langt upp eftir...


ree

Hestvaðsfoss...


ree

Hver fossinn á fætur öðrum... Fosstorfufoss...


ree

Steinbogafoss...


ree

Komin á hefðbundinn slóða...


ree

Litið til baka...


ree

Drangshlíðarfjall í fjarska...


ree

Mjög sumarlegt... og minni skaflar en við höfum fengið í júní... þetta vor er milt...


ree

Magnaðir útsýnisstaðir á leiðinni... höfðingshjónin Guðmundur og Katrín voru með í för sem var alveg frábært...


ree

Þessi leið er svo falleg...


ree

Enginn dauður punktur...


ree

Bara ævintýri...


ree

Heilmikil grænka í grasinu...


ree

Litið til baka...


ree

Fremri Fellsfoss...


ree

Vel troðinn stígurinn...


ree

Sandeyjan er hjarta...


ree

Ferskleikinn var áþreifanlegur...


ree

Brátt hættum við að taka eftir nöfnunum og fjölda fossanna...


ree

Þeir runnu út í eina stóra veislu vatnsfalla...


ree

Ennþá erlendis ferðamenn á leiðinni...


ree

Frost í jörðu í rúmlega 400 m hæð...


ree

Kæfufoss... ekki beint glæsilegt nafn... en spurning... kæfa hvað ?


ree

Örn lagfærði festingarnar á skiltinu...


ree

Hvílík fegurð !


ree

Fjallið komið í meiri fjarlægð...


ree

Drangarnir í Drangshlíðarfjallinu...


ree

Hornfellsnípa að koma í ljós...


ree

Virkaði mjög sakleysisleg í fjarska... en var mun brattari þegar nær var komið...


ree

Veðursorfin torfa...


ree

Sláandi að sjá... þetta ætti að merkja og skilta...


ree

Áfram hélt fossaveislan... hvílík leið !


ree

Nesti í grænni lautu...


ree

Ingunn í mergjaðri riddarapeysu !


ree

Riddarapeysumynd... svo falleg !


ree

Ein án Batman :-)


ree

Áfram héldum við för upp eftir og aðeins ofan við Hornfellsnípu...


ree

Hér byrjaði gljúfrið...


ree

Myndatökur...


ree

Við eltum slóðann en fórum út af leið að skoða ef eitthvað sérstakt var...


ree

Magnað !


ree

Lækjarsprænur sem svo þorna þega líður á... sjá andlitið vinstra megin í berginu...


ree

Mikið gljúfur...


ree

Niður...


ree

Til baka...


ree

Við gáfum okkur góðan tíma þennan dag...


ree

Magnaður staður !


ree

Hópmynd... en við hurfum bara í landslagið...


ree

Betra hér !


ree

Innar í gljúfrinu... svo fagur fossinn fremst á mynd...


ree

Hornfellsnípan...


ree

Aftur hópmynd til að reyna að fanga dýrðina...


ree

Eins gott að fara varlega...


ree

Dýptin...


ree

Niður eftir...


ree

Höfðingjarnir Katrín Kj. og Guðmundur Jón... sem farið hafa í ótal margar mergjaðar og krefjandi ferðir með okkur í gegnum tíðina...


ree

Fuglinn að verpa...


ree

Hallandi klettaveggurinn...


ree

Svo fallegt... sjá fuglinn... mosann... syllurnar... þarna var heill heimur sem iðar af lífi allt vorið og sumarið...


ree

Nú fór að styttast í að þvera ána...


ree

Litið til baka með síðara fjall dagsins þarna niðri... geggjuð leið !


ree

Fjallið okkar...


ree

Seinni gljúfurhlutinn var samt ennþá eftir...


ree

Fuglinn á Íslandi... aðdáun og virðing...


ree

Sjöfn alveg í stíl við náttúruna...


ree

Hér kemur svo fallegur kafli á leiðinni...


ree

Mjög lítill snjór á leiðinni...


ree

Þetta var ekki síðasti foss dagsins...


ree

Svo fagur...


ree

Við gáfum okkur góðan tíma...


ree

Farið fyrir ofan fossinn...


ree

Litirnir og lífið...


ree

Töfrar...


ree

Hópurinn að skila sér efst í fossinn...


ree

Með fyrri tindi dagsins...


ree

Flestir fengu mynd af sér þarna...


ree

Litið niður...


ree

Stórkostlegur staður að koma á...


ree

Vatnið svo ferskt og frískandi...


ree

Mosinn í góðum málum í þessari vökvun og þessu skjóli og samt með sólina á kafla...


ree

Jæja... hvar ætluðum við að vaða yfir... jú, aðeins ofar...


ree

Enn ein útgáfan af fegurð... hvílíkt land sem við búum í...


ree

Við vorum farin að hugsa til fjallgöngunnar...


ree

Síðustu fossar dagsins...


ree

Útlit Hornfellsnípu fór að birtast almennilega...


ree

Við vorum að komast alveg upp á heiðina...


ree

Nú var að finna gott vað...


ree

... en það var ekki nóg... það varð að vera fær leið niður að ánni líka...


ree

Jú, hér... hefðum getað farið aðeins innar á grasinu...


ree

En þetta var greiðfært...


ree

Jæja... vaða Skógá...


ree

Hvílíkur heiður...


ree

Svalt og frískandi... dýpst var þetta upp fyrir hné hjá sumum...


ree

Mjög skemmtilegt...


ree

Við vorum enga stund yfir... gott að gera þetta reglulega...


ree

Upp úr gljúfrinu frekar bratta en færa leið...


ree

Hornfellsnípa... skyldi tindurinn vera fær... við sáum að hann var ansi brattur...


ree

Mjög spennandi að fara á nýtt fjall... þetta er okkar uppáhalds... að finna nýjar leiðir um ótroðnar slóðir...


ree

Það kom á óvart að það var slóði hérna megin við ána líka... kinda og manna líklega...


ree

Sprænur á leiðinni...


ree

Okkur leist ágætlega á uppgöngu austan megin...


ree

Mændum á fjallið...


ree

Fínasta leið til að byrja með...


ree

Geggjaður hópur á ferð !


ree

Eyjafjallajökull í baksýn...


ree

Merkilegt... tindurinn gróinn...


ree

Smá pása hér meðan Örn kannaði leið upp á tindinn...


ree

Fimmvörðuhálsleiðin blasti þarna við hadnan árinnar... og við sáum göngufólk á henni...


ree

Jú, Örn var kominn upp og Bára fór hálfa leið... þetta var vel fært... með smá klöngri...


ree

Flott leið...


ree

Fara varlega...


ree

Brölt hér...


ree

Klöngur efst...


ree

Magnaður tindur !


ree

Hópmynd á þessum svipmikla fjallstindi sem mjög fáir hafa komið á... heiður að vera hér !


ree

Til baka... hér sést hversu mikill snjór er enn upp að Fimmvörðuhálsi... Mýrdalsjökull þarna hægra megin og Skógá þarna niðri...


ree

Létt brölt að mati flestra en vert að fara varlega...


ree

Litið til baka...


ree

Snillingar í þessari ferð...


ree

Litið til baka...


ree

Hliðarhallinn... Katrín Kjartans bíður eftir aðgerð á augasteini og er eingöngu með sjón á öðru auga... það var magnað að hún væri með í þessari ferð...


ree

Úr hlíðum Hornfellsnípu sást til Drangshlíðarfjalls sem beið okkar þolinmótt...


ree

Litið til baka... gæti grátið að hafa ekki tekið mynd af þessum tindi svo þegar fjær var komið... gleymdum okkur alveg í hraðför niður eftir á spjallinu...


ree

Við tók heiðin á Hornfelli...


ree

Litið til baka jú hér...


ree

Mikið spjallað og spáð í sumarið og önnur ævintýri...


ree

Hringurinn á einu grjótinu...


ree

Smá sést hér í Hornfellsnípu vinstra megin...


ree

Eyjafjallajökull... niður af Hornfelli hér...


ree

Drangshlíðarfjall...


ree

Lítið vatn í lækjum...


ree

Nestisstund tvö...


ree

Jæja... seinna fjall dagsins...


ree

Friðsælar tjarnir á Hrútafellsheiðinni...


ree

Raufarfell og Skjannarnípa... þau verða næst gengin í nýrri söfnun okkar #Eyjafjöllin


ree

Eyjafjallajökull með tjörnunum... hér var alger friðsæld og mikil hugvíkkun...


ree

Þessi dagur var hugvíkkandi... sumarlegur og mildur og blíðkandi...


ree

Yndislegt...


ree

Við drukkum í okkur friðsældina og fegurðina og sumarsæluna...


ree

En var skyldum við komast upp þetta bratta fjall ? Eina leiðin sem þjálfarar fundu á veraldarvefnum var sunnan megin... leiðin sem við fórum svo niður... en hér upp virtist enginn fara...


ree

Margir spurðu hvar við myndum fara og þjálfarar reyndu að sjá út hvar væri leið... það var best að komast bara að því en stefna á skásta kaflann...


ree

Steinafjall fjær og svo Raufarfell... já, 2025 og 2026... engin spurning...


ree

Litið til baka upp að jökli...


ree

Klettabeltið efst virtist ófært að sjá...


ree

Brattinn var meiri í raunveruleikanum en á ljósmyndunum...


ree

En allt gróið og því þægilegt uppgöngu...


ree

Kindagötur hér bráðlega...


ree

Hvílíkt útsýni !


ree

Hér tók veðrið að breytast... það var spáð slagviðri um kvöldið og næsta dag voru gular viðvaranir...


ree

Eins gott að vera hér á þessum stað á þessari stundu... grípa góða veðrið...


ree

Klettarnir suðaustan megin voru hrikalega flottir... þjálfarar spáðu í að fara hér upp... kannski er það fært... en óvissan með hvað beið ofar stoppaði okkur af...


ree

Mikil náttúrusmíð...


ree

Kaldaklifsá og gljúfrið hennar... þetta verðum við að skoða síðar...


ree

Minnti á Fjarðárgljúfur...


ree

Sláandi fagurt...


ree

Hópurinnn þéttur... Katrín sleppti þessu fjalli með sjón á sínu eina auga... þar sem óvissan með leið upp var of mikil... en hún hefði vel getað komið með... hún fékk hins vegar mjög flotta leið um Yxnadal og Hækitungur til baka niður eftir og meðfram Skógá... leið sem við skulum fara síðar...


ree

Við héldum forvitin áfram...


ree

Farið að þykkna smávegis yfir...


ree

Raki kominn í loftið og þá komu þessar sólbogar...


ree

Jú... klettabeltið virtist fært... hér var kindagata og íslenska sauðkindin kann þetta best...


ree

Hvílíkur staður að vera á... þarna milli fjalla rís glæsibýlið Þorvaldseyri...


ree

Kaldaklifsáin...


ree

Brattinn... gróandinn...


ree

Klöngrið hófst...


ree

Ef Örn væri ekki svona ákveðinn í að finna leið... þá myndum við oft snúa við og ekki upplifa öll þessi ævintýri...


ree

Fögnuður !


ree

Mjög bratt... en gott hald og hægt að brölta hér upp í yfirvegun og lausnamiðaðri hugsun... hingað upp er ekki gott að fara ef maður hugsar í hindrunum...


ree

Það voru bara snillingar með í för...


ree

Magnaðir göngufélagar...


ree

Fínasta leið hér... komið hérna megin...


ree

Steinafjall þarna milli klettanna...


ree

Reynt að fanga brattann...


ree

Guðmundur Jón sem nú er á áttræðisaldrei er með öruggustu göngumönnum sem við höfum haft í klúbbnum...


ree

Komin upp versta kaflann...


ree

Við nutum þess að vera þarna... þetta var heiður...


ree

Mergjað fjall ! Takk fyrir okkur Drangshlíðarfjall...


ree

Áfram upp...


ree

Jú, klöngrið var ekki búið...


ree

Brattinn... það var alveg grátlegt að fleiri skyldu ekki vera með...


ree

Vestmannaeyjar... þokumóða komin úr suðri... veðrið var að breytast úr fersku léttskýjuðu veðri í milt skýjað veður... við rétt sluppum þennan dag...


ree

Æj, móða á linsunni...


ree

Magnað að sjá breytingarnar yfir sjónum...


ree

Smá heiði hér uppi...


ree

Steinafjall... Lambafellsfjall... Raufarfell...


ree

Tindurinn á Drangshlíðarfjalli...


ree

Vá ! Komin upp og við blöstu Skógar í allri sinni dýrð !


ree

Útsýnisstaður á heimsmælikvarða og ekkert minna !


ree

Jöklarnir tveir blöstu við... Eyjafjöllin og Vestmannaeyjar... og blómleg byggðin undir Eyjafjöllum...


ree

Skógafoss... þarna niður fór Katrín Kjartans meðan við þvældumst þarna uppi...


ree

Þokumóðan í himninum ekki... ekki komin niður til okkar en farin að skyggja á sólina... enn var alveg logn og smávegis sól...


ree

Skógá á leið til sjávar... magnað að fá að upplifa þessa sýn...


ree

Útsýnið niður til Skóga... hér gekk faðir minn í skóla, Skógaskóla og hafði margar merkilegar sögur að segja af þeirri veru... mest man ég eftir því að hann var alltf svangur... náði aldrei að vera saddur... við getum sannarlega verið þakklát fyrir okkar tíma og velmegun... #þakklæti


ree

Við svöldum lengi hér uppi og nutm uppskerunnar af krefjandi fjallgöngunni...


ree

Við máttum vera þakklát fyrir þennan dag... eftir margar kyngimagnaðar ferðir í vetur og vor þá stendur þessi upp úr einfaldlega af því það er svo heilandi að fá sumarið eftir allt volkið og kuldann í vetur...


ree

Nestisstund þrjú þennan dag... okkur var alveg sama þó klukkan væri margt... hvergi vildum við vera annars staðar...


ree

Yndislegt...


ree

Þetta var fjallið hennar Sjafnar... í æsku klifu þau þtta fjall galvösk nokkur saman upp brattar hlíðarnar austan megin og lentu í grjóthruni svo hún fótbrotnaði... það var góð tilfinning að sigra það loksins á svona degi...


Jú, og þetta var ný riddarapeysa...


ree

Linda var líka í nýrri tiddarrapeysu sem var einnig alveg í stíl við landslagið... magnaðar prjónakonur báðar tvær !


ree

Hópmynd ferðarinnar... hvílík snilld að ná svona degi og upplifa bæði þessi mögnuðu fjöll !


Batman, Guðjón, Ingunn, Ragnheiður, Guðmundur Jón, Jaana, Siggi, Sighvatur, Örn, Linda, Fanney, Sjöfn Kr., og Aníta... fíflaskapur ? Já, auðvitað... annars er svo leiðinlegt og miklu erfiðara að lifa ! :-)


ree

Fimmvörðuhálsleiðin þarna niðri...


ree

Við tímdum varla niður...


ree

Niður fórum við hefðbundna leið sem hægt er að finna á wikiloc... hún var mun betri en leiðin upp og mjög gaman að ná þessari þverun yfir fjallið...


ree

Drangslegt útlit Drangshlíðarfjalls var augljóst hérna megin... við verðum að skoða þessa dranga betur í næstu ferð... því við ætlum sannarlega að klífa þetta fjall aftur.... það er alveg mergjað !


ree

Drangarnir suðvestan megin... alveg í stíl við Vestmannaeyjar... þetta fjall kallast á við Heimaklett, Klifið og Dalsfjallið í Vestmannaeyjum... af sama kyni... ótrúlegt landslag !


ree

Já, niðurleiðin var samt brött þó ekki væri hún í líkingu við uppgönguna... það kom á óvart...


ree

Kaflinn niður var svo lengi brattur að við þurftum að hvílast á miðri leið... þetta var mjög krefjandi fyrir hné og læri...


ree

Við nutum þess að horfa til Vestmannaeyja og þakka fyrir daginn í huganum...


ree

Hvílíkur dagur að baki !


ree

Komin niður í grænkuna sem alltaf er mætt fyrst undir Eyjafjöllum...


ree

Þessi græni litur... þetta fjall... þessi hópur... við vorum sannarlega lánsöm...


ree

En ævintýrið var ekki búið...


ree

Við tók ægifögur leið niður síðasta kaflann...


ree

Ef sumarið var ekki komið í hjartað... þá mætti það á þessum kafla...


ree

Ölvuð af sumrinu...


ree

Megi sumarið vera sem mest í þessum græna lit...


ree

Foss tók við úr berginu...


ree

Og ærslabelgirnir Aníta og Fanney gengu í gegnum hann...


ree

Skríkjandi af sumargleðinni sem greip okkur þarna...


ree

Þetta heitir að fanga augnablikið og vera í núinu... njóta þess sem kemur á borð manns af öllu hjarta...


ree

Hópurinn allur... síðasta hópmynd dagsins... takk fyrir magnaðan dag elsku bestu félagar í heimi !


ree

Þessi staður var töfrandi fagur...


ree

Þessi græni litur var hugbreytandi....


ree

Hann gerir eitthvað sem enginn annar litur gerir...


ree

Njótum einföldu hlutanna...


ree

Undir fossinum...


ree

Gróðurinn í berginu...


ree

Áður en við vitum af er sumarið liðið og þá er betra að hafa staldrað sem oftast við til að anda inn og fanga fegurðina allt í kring...


ree

Vera þakklátur með það sem á vegi manns verður... við erum öll menn...


ree

Hundarnir minna mann stöðugt á þetta... barnabörnin... fuglarnir...


ree

Mannskepnan hefur það best en um leið er hún sjálfri sér verst... og minnst í takt við náttúruna af öllum skepnum jarðar...


ree

Hreiðrin...


ree

Fossinn...


ree

Við lent í byggð...


ree

Við vorum hinum megin við Skógá og þurftum því að ganga út að brú eða vaða ána...


ree

Stutt að brúnni...


ree

Við munum alltaf minnast þessarar ferðar hér með þegar komið er að Skógum... ég vildi að pabbi hefði verið með í þessari göngu... ég get ekki spurt hann hvort hann hafi gengið á Drangshlíðarfjallið... ekki ólíklegt... hann kleif mörg fjöll þrátt fyrir allt hans annríki... hér var hann jú í skóla... en hann var með mér í hjartanu...


ree

Í stað þess að ganga svo veginn inn að Skógum tókum við Skógána og vissumn að það beið okkar smá vað ofar...


ree

Falleg leið... hér eigum við minningar af hestaferð í boði Ágústar Rúnarssonar, snillings og fyrrum Toppfara:


ree

- skrolla aðeins niður þetta hér: Allar þriðjudagsæfingar frá aprí (toppfarar.is)


ree

Tré í miðri Skógá...


ree

Æj, smá vöðun hér... það var þess virði til að stytta kaflann beint í bílastæðin...


ree

Katrín tók á móti okkur...


ree

Alls16,3 km á 7:55 klst. upp í 574 m hæð á Hornfellsnípu og 493 m hæð á Drangshlíðarfjalli með alls 1.012 m hækkun úr 35 m upphafshæð...


ree

Tækin mældu þetta mismunand langt...


ree

Teygjur, viðrun og gleði...


ree

Einn á svifflugvél yfir fossinum...


ree

Veðrið og skýjafarið var gerbreytt í lok göngunnar... sjá skýin yfir jöklinum... þetta fjall... gleymist aldrei !


ree

Hornfellsnípa þarna lengst upp frá...


ree

Skriða í Drangshlíðarfjalli keyrandi heim...


ree

Sláandi að sjá...


ree

Við þurfum að kynnast þessu fjalli ennþá betur...


ree

Raurarfell tók af okkur loforð... 2025... eða fyrr...


ree

Hornfellsnípa sést hér þarna upp frá... Kaldaklifsá og gljúfur hennar hér uppfrá...


ree

Steinafjall... já... við komum 2026...


Hjartansþakkir fyrir alveg mergjaða sumarferð ! Hvílík perla, veisla, ævintýri !



Comments


bottom of page