Hrafnabjörg við Hellismannaleið kringum Hrafnabjargavatn #FjöllinaðFjallabaki
Tindferð 370 laugardaginn 6. október 2026

Spáð var hæglætisveðri fyrstu helgina í október og við létum slag standa... þó óvíst væri með úrkomu og skyggni... og rættist vel úr veðri... þó ekki fengjum við skyggnið sem við hefðum viljað fá ofan af fjalli dagsins... en rigningarsuddi var í bænum... og þegar keyrt var inn Dómadalinn en fljótlega létti til þegar innar dró... eins og á leiðinni yfir heiðina...

Lagt var af stað gangandi kl. 10:23 eftir 1:40 klst. akstur úr bænum kl. 08 að Dómadalsafleggjaranum... og um 20 mín akstur að góðum stað við Helliskvíslina...

Helliskvíslin vaðin eða stikluð fljótlega...

Nafnlausir fjallsásar hér vestan við Sauðleysur...

Sko... það var stutt í sólina... og úff... það var snjór í fjöllunum innar á hálendinu...

Við komum fljótlega inn á gönguleið sjálfrar Hellismannaleiðar... miðleggjarins... sem fer framhjá Hrafnabjörgum, Sauðleysum og Herbjarnarfelli... fjöllin sem átt hafa októbermánuð síðustu þrjú árin...

Örn ákvað að taka stefnuna beint á björgin hrafnanna yfir þennan ás hér...

... sem gaf fallegt útsýni að Hrafnabjörgum...


Frábær mæting... Kjartan hennar Sigrúnar var gestur í göngunni og með í för voru nýliðar og sjaldseðir hrafnar ásamt þeim sem vel mæta árum saman...

Snjór að smakka... Batman var ekki lengi að finna þennan til að væta kverkarnar...

Skyggnið tók að lagast... og við sáum Rauðufossafjöll hvít af snjó... Sauðleysur hér snjólausar að mestu framar...

Svarta suðuröxlin...

Fjall dagsins...

Lungamjúkt...


Komin á suðuröxl Hrafnabjarga...

Litið til baka...

Sjá snjófölina á Herbjarnarfelli...

Mjög skemmtilegt fjall verður að segja...

Sauðleysur... Sauðleysuvatn sést þarna milli fjalla... hvítt í fjöllum innar á hálendinu... magnað !

Okkar beið mjög skemmtilegt klöngur og btölt...

Og þú landslagið hafi blasað við... þá kom það á óvart þegar nær var komið...

Svipmikið landslag...

Krókar og kimar...



Gáfum okkur góðan tíma...






Nestispása hér...


Þokan læddist við tindinn...

Farið að þyngjast svolítið neðar...

Skyggnið breyttist stöðugt...

Það var næstum því skýlaust ofar... sólbjart og fallegt... en smá þoka...

Upp brúnirnar...

Hrikalegt landslag...








Við vorum dolfallin yfir þessari hrafnalegu fegurð sem var alltumlykjandi á þessu fjalli...

Næstum því þokulaust...

Klettarnir voru um allt...

Já... komin í snjó...

Lítið útsýni því miður...



Komin á tindinn... í 900 m hæð... algert logn... mikill friður... sólbjart... en lítið skyggni...

Litið niður af tindinum...

Litið til baka... hvassar brúnirnar sjást vel...

Hópmynd ? Nei.... ekki nægilega fallegt hér...

... en hér... jú, takk !

Mættir alls 17 manns... nafnlisti við seinni hópmynd dagsins við vatnið...

Við hugsuðum til Ásu sem var þarna niðri og ætlaði að hitta okkur við vatnið...




Hvítur regnbogi var á þessari stundu á niðurleið... alltaf eitthvað nýtt á fjöllum...

Við gengum frá tindinum til norðurs með fjallinu...

Klettaaugu um allt...

Skyndilega sáum við stóra steinbrú yfir klettagat í hlíðunum austan megin...

Regnboginn... og Hrafnabjargavatn sást loksins...


Það var freistandi að fara niður um þetta klettagat... virtist vel fært... og ganga upp á það... en það bíður eftir okkur í næstu ferð...

Klettagatið séð neðan frá - mynd frá Ásu sem gek meðfram fjallinu....

Litið til baka...

Glæsilegar fjallsbrúnir...




Sólin skein í gegnum þunnan þokuslæðinginn...

Bröltið hélt áfram...

Útsýnið til vesturs...

Aukatindur á leiðinni...

Hann var brattur og laus í sér...



Ekki fyrir alla...

Fórum neðan við tindinn sem ekki vildum klöngrast þarna uppi...

En komið við á tindinum fyrst...

Litið til baka...

Áfram klöngur...

Hrafnabjargavatn farið að sjást vel...

Magnaðar fjallsbrúnir !

Norður og niður...


Þetta fjall hætti ekki að koma okkur á óvart...

Það minnti okkur þjálfara á Ljónstind á Skaftársvæðinu... brattinn... klöngrið... þokan...


Enn ein klettanösin...

Litið til baka...


Áfram hér niður eftir með brúnunum...

Dulúðin í þokunni var falleg...


Litirnir í fjallshlíðum Hrafnabjarga...

Reynt að fanga fegurðin á annarri hópmynd...

Klettanös sem minnti á Ljónssögu... Lion King...



Sauðleysur í þokunni...

Hér tók aftur að þyngja yfir....

Við reyndum að sjá Ásu þarna niðri... og sáum hana við vatnið...

Mynd frá Ásu af okkur á fjallsbrúninni...

Mynd frá Ásu af okkur að koma niður...

Litið til baka...

Hér í skarðinu þar sem ásýnd fjallsins breyttist úr mosaslegnum efri tindum í hrafnsvart móberg og grjót... ákváðu þjálfarar að fara niður af fjalllinu og að vatninu... þessi kafli hér hefði verið of tafsamur... enda bara norðurtaglið á Hrafnabjörgum...

Vatnið lokkaði...

Þessi kafli um móbergið niður að gilinu var krefjandi í sleipu móbergi með lausagrjótmulningi yfir svo maður gat runnið og dottið í hverju skrefi...

Fínt ennþá hér...

En krefjandi hér...

Tafsamt og sagði allt um hversu ógreiðfært þessir tindar hér hefðu orðið...

Agalegt...

Hlíðarnar svo fallegar...

Færið um gilið...

Fín leið...

Orðið lungamjúkt hér...

Strunsað að vatninu þar sem Ása beið okkar...

Þokan lagðist yfir vatnið og fjöllin...

Við ákváðum að sleppa ekki hringleið kringum það og sáum að það var fært... tókum smá áhættu með það þegar við ákváðum að lokka okkur fyrr niður úr fjallinu þar sem æflunin var upphaflega að taka svörtu klettana í norðurtaglinu...

Þjálfari giskaði á 45 mínútur í þessa hringleið... 1 klukkutími og svo 1:20 klst. var og giskað á...

Áþreifanlegur friður var við vatnið...





Heilu torfurnar af laufblöðum voru í vatninu...

Greiðfært og notalegt...

Nesti við norðurenda vatnsins... nesti tvö af tveimur þennan notalega dag...

Vorum fljót til baka austan megin og hér tók aftur að létta til...

Gefandi samræður og yndissamvera...

Sólin mætt aftur...

Jú... svei mér þá... vorum 45 mín á þessari hringleið... að frátöldum 15 mín í nestispásu... ótrúlegt !


Einstök kyrrð... lengst upppi á hálendi...

Þriðja hópmynd dagsins... Bára, Maggi, Guðný Ester, Kjr--jartan gestur, Sigrún Bj., Linda, Hjörtur, Björg, Sjöfn Kr., Inga, Siggi, Örn, Oddný Sif, Guðrún Geirs., Ása, Helgi og Batman og Myrra voru með...

Þá var ekkert eftir nema strauja í bílana...

Dásamleg útivera...

Á smá jeppaslóða á smá kafla hér... lítið keyrt hingað greinilega...



Fjallið ofan okkar í þokunni ennþá...

Stutt í bláan himininn...

Einstök birta og töfrar einkenndu þennan lokakafla göngunnar...





Sauðleysur...








Komin á Hellismannaleið...

Sauðleysur...

Þokunni létti...

Hellismannaleið...

Fljótlega fórum við svo út af henni og tókum stefnuna beint í bílana...


Helliskvíslin þarna hjá hópnum...

Óðum hana eða stikluðum aftur...





Stutt í bílana frá kvíslinni...


Komin í bílana klukkan 16:40...


Alls 17,6 km á 6:21 klst. upp í 900 m hæð með alls 857 m hækkun úr 509 m upphafshæð...


Hundarnir eiga marga góða vin i í hópnum...


Fjall dagsins þarna vinstra megin í sól og þoku í bland...

Flestir stefndu á Mathöllina á Selfossi á heimleið að frumkvæði Helga sem var frábær hugmynd... en annars beið okkar rúmlega 2ja tíma akstur í bæinn... magnaður dagur í dúlúðugri þoku og gullinni birtu... þetta fjall verður gengið aftur eftir nokkur ár í tæru skyggni... engin spurning !
Gps-slóðin hér: https://loc.wiki/t/291063711?wa=sc
Myndbandið hér: Hrafnabjörg á Hellismannaleið / Landmannaafrétti 101026





Comments