top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Krossþjálfunin og vinafjöllin árið 2026

Toppfaraáskorunin árið 2026


Alls melduðu 6 manns sinn þátt í krossþjálfunaráskorun eða vinafjallsáskorun þjálfara árið 2026 þar sem skorað var á klúbbmeðlimi að ná fjórum ólíkum hreyfingum / líkamsrækt á viku eins oft og mögulegt var á árinu 2026 í viðleitni til að auka fjölbreytni í sinni líkamsrækt almennt og að sjálfsögðu var vinafjallaáskorunin á dagskrá eins og öll ár og hálftíminn er einnig farinn að festa sig í sessi hjá sífellt fleirum sem er frábær leið til að halda sér við í reglulegri heilsurækt.


Hér eru samantektir þátttakenda en Aníta var dregin út meðal þátttakenda enda sú eina sem tók krossþjálfunaráskorunina í nefið með 51 viku af 52 sem er alveg ótrúlega flott og fær hún árgjald í klúbbnum í vinning, glæsilegt hjá þér Aníta og takk öll fyrir meldingarnar ykkar og samantektir sem eru dýrmæt hvatning til okkar allra:


Aníta:



"Fjalla-annàllinn 2025:


Það er langt síðan ég ákvað að erfiðleikar og mótlæti myndu ekki lengur fá atkvæðisrétt í mínu lífi. Og þá er ég ekki að tala um einhverja fkn eitraða jákvæðni. Hún má fara sömu leið og prótínlausa tómatsúpa Sighvats  Heldur… sama hversu harkalega blæs á móti þá meikar það ekki diff. Jú jú… ég verð mögulega hljóð í smástund (sjitt hvað Þorleifur verður alltaf glaður þá ) en harða ákvörðunin stendur; lífið skal vera eitt fkn ævintýri þó það líti engan vegin út eins og markmiðið sem sett var.


Það skiptir nebblega engu andsk máli hvort maður nái markmiðunum eða ekki. Að ná þeim er bara skrautskrifuð vottun á seiglu og fyrirheit um að maður eigi miklu meira inni. Aðalatriðið eru ævintýrin sem markmiðin hrinda manni í.


Það var eiginlega alls konar sem hefði getað verið mitt stoppmerki en fokkit… nei.

Erfið ökklameiðsli í byrjun jan svo ég var verkjuð fram eftir hausti… en sko… ég á núna bleik gönguprik og uppgötvaði að ég fór hraðar yfir með minni orkunotkun… svo bregðast krosstré sem önnur tré… eins og Birgir sagði.


Öll plönuð skíða ævintýri voru því sett á ís… *pun intended

Ómanneskjulegt álag… pffftt… bikar ársins fer til mín fyrir forgangsröðun. Ég veit ekki um neinn sem situr í lok árs með stútfulla sál af minningum um organiseraða skápa, sófahangs eða tóman verkefnalista. Nú eða eins og anti draumaprins Bertu, áhugamála laus með öllu.

Baltasar varð stjórnlaus horní unglingur svo við stofnuðum okkar eigins klúbb, Mt. Wildlings. Formerkin voru; tjaaaa… fyrst við getum ekki verið memm, gerum þá alls konar kreisý. Þægindaramminn á fjöllum var teygður eins og spandex á spikaðri gellu. Fjárfesti í gps og æfðum okkar að vera pollróleg… á yfirborðinu sko… ein á fjöllum í þoku, myrkri og á óþekktum slóðum. Enginn veit hvaða Örn hann á þar til misst hefur … excellent sjokkþerapía, 5 stjörnur.


Svo bjó ég til söffer ævintýrafrí fyrir Toppfara vini mína Sjöfn, Ingu og Nonna með Ásgard Beyond… Monte Rosa Traverse í Ölpunum. Ég nennti ekki þessu dútli og tók þyrluna niður. Fannst meira pönk í því að fara í adrenalín overloaded klettaklifur bara fyrir Fanneyju… sko … sjáðu hvað ég geri alltaf fyrir þig!!!

Svo ákvað Matterhorn að vera ófært bara fyrir mig… sorrý elsku vinir… ég varð bara óstjórnlega glöð að þið kæmust ekki…*hóst… eða sko að við gætum farið saman á Perraturnana. En hey… 2026 og miði er möguleiki


Bestu ferðirnar… úff

Botna Skyrtunna, Ólafsvíkurfjöllin þar sem Brúnó nartaði í fótinn á Baltasar og Botnssúlurnar allar voru geggjaðar.

Aldan og Barmur þegar Toppfarar gerðust gangsterar

Hrómundartindur í kapphlaupi við myrkur og endaði með sprungið dekk

Geirmundartindur um Pytta í kreisý veðri

Múli, Trana og Möðruvallaháls í maí hitabylgju með massa sólbruna

Svaðilfarir á Hróarstindum með Sjöfn

Sólstrandaútilega með Fanneyju og Sjöfn í Skaftafelli + svitapartýi á Kristínartindum og Múlagljúfri ásamt einvígi við Öræfakindur

Þverártindsegg og versta pylsa í heimi á heimleið með Ingu

The Crochues Traverse, Index kletturinn í Aiguilles Rouges og svo Perron Traverse *á innsoginu

Tröllakirkja og Skessuhorn… loksins

Jarlhettur í svo miklu úrhelli að reglulega þurfti að hella úr vettlingum

Blikdalshringur Esju

Kálfstindar… geggjað alveg en helvítis skriðurnar… læt ekki sjá mig þarna aftur nema í snjó eða þangað til ég gleymi þessu

Skildingafell, Mælifell, Litla Baula og Baula… epísk ferð með Sjöfn. Fokk niðurgangan samt vestanmegin…. Arrrrggg!!!


Síðari hluti des… þokugöngurnar töldu örugglega 8000m hækkun… svaðalegasta hugleiðsla allra tíma held ég bara


Skrautskrifaða vottunin 2025

 Top 0.4% á Strava… það er eitthvað. Alltaf gaman að fá legend stimpil

 100.003m / 100.000m hækkun á árinu… vúbb vúbb

 1455km / 1321km vegalengd ganga + hlaup

 209 fjallgöngur, klifur og fjallahlaup

 191 þrek/styrkingar/lyftingaræfingar

 50 jógaæfingar

 38 láglendisgöngur… boooooring

 1 fjallahjólaæfing… sko… kannski datt ég á hjólinu… ég sver ég var örugglega með glannaskap


 54 Esjur… besta sagan er pottþétt í myrkri á leið niður af Dýjadalshnúk þegar ég hélt að GPS tækið væri að verða batteríslaust og treysti á Baltasar að finna bílinn. Komst svo að því heima að ég hafði einhvern veginn lækkað birtustigið á skjánum…


 122 Úlfarsfell… 30.12. gleymist seint. 1.728m dælt inn í svartaþoku og myrkri með litla ljóstýru á höfðinu sem gerði ekki rassgat. Bara af því ég gaf mér ekki tíma í hlaða glænýja ofur höfuðljósið mitt sem hefði gert þetta miklu auðveldara. Nei, gerum þetta EKKI auðvelt.


 Krossþjálfun… sko… hóst… 51 af 52 vikum. Ég meira að segja fór í sund í Chamonix, daginn eftir þyrlu slash spítalavist með háfjallaveiki. Og drukknaði næstum haldandi í bakkann með annarri á meðan há aldraðir þutu fram úr mér. Bara til að ná krossþjálfun vikunnar. En steingleymdi þessu svo í jólavikunni… í alvöru kona !!!


Hálftíminn á hverjum degi… CHECK, annað árið í röð."


---------------------------------------


Bára:



"Ég var með sex hreyfingar í sigtinu í krossþjálfunaráskoruninni; ganga, fjallganga, skokk, sund, hjól og lyftingar og lét garðvinnu í bænum og í sveitinni vera sjöundi hreyfinguna enda auðvitað brjáluð crossfit æfing og ekkert annað að slá, moka, stinga, bera þunga poka eða tré o.s.frv., hahaha... þetta eru ketilbjöllur í sinni náttúrulegu mynd, haha, og ég skil þá sem vilja láta heimilisþrif vera hluti af hreyfingu í Lífshlaupinu sem dæmi, þar sem ég tek þau alltaf með hamagangi til að ljúka þeim leiðingum af sem fyrst og sit rennsveitt á eftir, haha, en hver og einn velur bara eins og þeim hentar enda aðalmálið að hreyfa sig og reyna vel á sig.


Ég náði að krossþjálfa 44 vikur ársins, náðið ekki 12 vikum en þetta var ótrúlega gaman. Ég hefði hvorki synt eins oft og ég gerði né farið að lyfta svona oft nema út af þessari krossþjálfunaráskorun. Eftir árið fann ég hversu undurgott það er að hafa sundsprett með í hverri viku svo sundið er komið til að vera í minni rútínu. Lyftingarnar hins vegar... þetta er svo skelfilega leiðinlegt og eins og ég veit hversu hollt þetta er fyrir eldra fólk... þá bara get ég þetta ekki og ætla að skokka, ganga, hjóla og synda frekar og taka stykrtaræfingar með eigin þyngd heima eins og ég hef oft gert í gegnum tíðina.


Ég var svo lánsöm að fara aftur í dagvinnu á árinu í stað vaktavinnu og auðvitað fór ég þá aftur að hjóla í vinnuna svo hjól x2-3 í viku er orðinn fastur liður og nú er bara að halda sundinu inni og taka styrktaræfingar í hverri viku, helst úti eftir skokk. Allra best... er að vera úti...


Náði 57 ferðum á Esjuna á árinu sem vinafjallið mitt (aldurinn minn) og var þetta kærkomin tilbreyting frá Úlfarsfellinu sem hefur átt hug okkar Batmans síðustu ár en fljótlega fundum við að við söknuðum Úlfarsfells og vorum farin að telja niður árið til að geta frekar farið þangað enda grét og spangólaði Batman bókstaflega í hvert sinn sem við keyrðum framhjá Úlfarsfelli á leið á Esjuna og skildi ekkert í mér að fara enn einu sinni á þessa Esju... ótrúlegt að upplifa þetta... og ef við þá sjaldan sem það var, fórum á Úlfarsfellið þá skoppaði hann næstum því upp úr þaki bílsins af gleði, elsku ÚlfarsfellsBatman minn.


Ég náði hálftímanum næstum því á hverjum degi á árinu en veikindi trufluðu það svolítið en það er geggjað gaman að eltast við hann eins og alltaf og taka göngutúra í millilendingum innanhúss á flugvöllum og svona, hálftíminn er kominn til að vera í lífi okkar Arnar.


Árið 2025 var mergjað fjallgönguár hjá Toppförum og margar stórkostlegar ferðir farnar enda sérlega lygnt og milt veður og mikill kraftur í hópnum núna sem er alveg frábært enda er árið 2026 framundan svakalega spennandi !


Árið 2026 er 100 fjalla áskorun sem mun líklega trufla það að ná Úlfarsfelli sem vinafjallinu mínu en ég gæli við það í laumi að ná 58 ferðum þar upp á 58nda aldursárinu mínu en læt 100 fjalla áskorunina ráð a för, auðvitað geri ég bæði, hvaða hvaða !"


Tölur ársins af strava:


3.082 km

556 klst.

92.350 m hækkun



Ótrúlega flókið að ná einhverri tölfræði út úr strava en gat handtekið alls 32 sundferðir, 134 hjól, 24 skokk, 13 garðvinna, 22 lyftingar og 120 fjallgöngur og enn fleiri göngur á láglendi.



-------------------------------------------


Fanney:



"Ég var ekkert sérstaklega að reyna að ná krossþjálfuninni, en tók hana þó saman til gamans. Ég flokkaði allar göngur saman sem eina hreyfingu, þ.e innanbæjar og fjallgöngur. Kannski hefði ég náð þessu ef ég hefði haft það sitthvort. Ég ákvað að vera slakari með hálftímann. Leyfði mér einn hvíldardag í viku. En hér er amk smá samantekt frá mér. Nokkuð fjölbreytt hreyfing myndi ég segja."


-------------------------------------------


Hjörtur:



Alls 231 ferðir á Mosfellið á árinu 2025.


"Læt fylgja með mynd af hólnum "mínum" þar sem sést vel hvernig hóllinn er eins og vængur í norðanáttinni."


-------------------------------------------


Sjöfn Kr:



"Árið 2025 var ágætis gönguár hjá mér. Hér á Fróni gekk ég um 1400 km í fjallgöngum og kringum 140 km á láglendi. Svo fór ég í tvær stórar og miklar utanlandsferðir, þá fyrri til Perú hvar ég gekk m.a. Inkastíginn og hina seinni til Sviss þar sem ég fór Monte Rosa hringinn á jöklunum þar og klifraði svo Perron hrygginn af því Matterhorn var ófært. Ķílómetrafjöldinn í útlöndunum var ekkert svakalegur en lífsreynslan þess meiri

Það fór þó lítið fyrir markmiðssetningu í fyrra, en nú set ég mér nokkur.


Árið 2026:

Ganga 1800 km til fjalla

Fara á 100 mismunandi toppa

Taka Úllann 66 sinnum

Og takið nú eftir - synda 100 km.

Síðast en ekki síst: Alltaf fá mér pulsu á Olís þegar ekið er gegnum Borgarnes á leið í göngu."


-------------------------------------------


Sighvatur:



"Hreyfiuppgjör fyrir 2025:


Árið 2025 var samfelld gönguveisla eins og árið 2024.

Þar ber hæst ótal frábærar ferðir með Toppförum, hin árlega Hornstrandaferð með tjald, Laugavegurinn með tjald, Gönguvika Fjarðabyggða, Gönguhátíð Súðavíkur um verslunarmannahelgina, göngur á Tenerife í janúar og að ganga Fishermen´s trail í Portúgal í nóvember.


Ganga 2.350 km. Þar af 700 km. í Portúgal og á Tenerife.

   Hækkun 68 km.

Hjól 1.230 km.

Sund 32 km.

Sjáumst sem flest á Heklu á morgun.

Gleðilegt nýtt gönguár."


-------------------------------------------


Takk öll fyrir þátttökuna, meldingarnar á ykkar hreyfingu og alla jákvæðnina og gleðina... án þess... værum við ekki að gera það sem við erum að gera... áfram við að hreyfa okkur fjölbreytt og sigra fjöllin sama hvað !


Comments


bottom of page