top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Litla Skarðsmýrarfjall, "Hengladala-brúnir" og Kýrgilshnúkur á Hellisheiði

Tindferð nr. 359 sunnudaginn 17. maí 2026


Aflýsa þurfti spennandi göngu í febrúar þar sem ætlunin var að þvera Hellisheiðina og ganga í leiðinni á Stóra Skarðsmýrarfjall, Kýrgilshnúk, Litla Skarðsmýrarfjall og Á(r)staðafjall ofan Hveragerðis þar sem koma átti niður um Svartagljúfur... en hvorki veður né áhugi gáfu grænt ljós á þá göngu á fleiri en einni dagsetningu og því var freistandi þegar færi gafst á veður að taka styttri útgáfu af þessari leið á ljúfum sunnudegi im miðjan maí þar sem ekki viðraði á Kattareyra (sem líka hefur frestast) og Guðnanípu og Uppistungnahaus frá Seljavallalaug... og í staðinn fengum við sumarfæri og sumarveður...


Farið var úr bænum klukkan 10 og ráðgerð heimkoma kl. 15 og höfum við nokkurn veginn geta staðið við áætlaðan heimkomutíma það sem af er ári en þó ekki alltaf... og þessi ganga varð ein af þeim... þar sem gangan var lengri og fóknari en við ráðgerðum... og komið í bæinn upp úr klukkan fjögur... en öll vorum við meira en sátt við daginn enda græddum við aukatind sem hefur ekkert nafn og við köllum "Hengladalabrúnir" en það skemmtilegasta við þessa ferð var hversu fagrar og svipmiklar þessa brúnir voru... en komu Kýrgilshnúk nákvæmlega ekkert við... sem þjálfarar uppgötvuðu ekki fyrr en komið var fram á brúnirnar austan megin og Kýrgilshnúkur blasti við saklaus og frístandandi með öllu frá brúnum Hengladala... drepfyndin og mjög skemmtileg uppákoma... könnunarleiðangrarnir eru skemmtilegastir !


Við byrjuðum á að fara upp á Litla Skarðsmýrarfjall... ákváðum að halda okkur sunnan / hægra megin við Hengladalaá og setja stefnuna á þetta mosagróna ávala fjall...


Hengladalaá hér... Hrómundartindur, Tjarnarhnúkur og Lakahnúkur hér vinstra megin og svo fjöllin ofan Reykjadals og ofar og innar út myndina til hægri...


Skálafell á Mosfellsheiði hér í fjarska hægra megin... þetta var ljúft og milt veður...


Litla Skarðsmýrarfjall teygir sig vel til suðurs... hér komin upp á suðurtaglið og tindur þess framundan...


Við héldum að við fengjum lítið brölt þennan dag og eltum því svona hnúka...


Litið til baka...


Maður sniðgengur aldrei tækifæri til að klöngrast...


Það var þungbúnara til vesturs og rigning í bænum að hluta en frá miðri Hellisheiði var bjart og sást stöku sinnum til sólar... við vorum heppin...


Uppi á Litla Skarðsfjalli blöstu þessar fjallsbrúnir við og við drógum þá ályktun að Kýrgilshnúkur væri einn af þessum hnúkum... sá eini með nafn... Örn hafði orð á því að stefnan á Kýrgilshnúk væri mun austar... en Bára vildi endilega fara þarna upp og yppri öxlum... kortið dottið út á skjánum í gps-tækinu (það á til að losna og þá þarf að opna og festa það aftur)... og sem betur fer breyttum við ekki um stefnu... því þetta var það fallegasta við göngu dagsins... þessar fjallsbrúnir...


Mættir voru alls 11 manns... Dina, Örn, Inga, Sjöfn Kr., Silla, Sighvatur, Birgir Martin, Hjörtur, Agnar, Sigríður Lísabet og Bára tók mynd... og Batman var eini hundurinn...


"Hengladalabrúnirnar" blöstu við formfagrar og litríkar... og Hengladalaá rann ljúflega niður dalinn... eftir á sáum við að þar sem um þrengist heitir "Þrengsli" en ekkert nafn er á þessum fjallshnúkum...


Mjög fallegur staður og glæsilegar fjallsbrúnir... Kýrgilshnúkur... sem við ætluðum á... er hins vegar hér lengst hægra megin á mynd... og tók 18 mínútur að fara upp á hann eftir drjúga stund upp og yfir þetta fjalllendi hér fyrir miðri mynd... og við verðum manna þakklátust ef einhver getur sagt okkur hvort einhvers lags nafn er til af þessum hnúkum hér og við nefnum "Hengladalabrúnir" meðan ekkert annað er til...


Allt orðið þurrt og frostlaust meira og minna... yndislegt... hér var nestispása en engin mynd tekin...


Gengið að "Hengladalabrúnum"...


Þrengslin heita þessi þrengsli hér milli nafnlausra hnúka beggja vegna...


Hengladalaáin hér rennandi...


Mjög fallegur staður hér...


Þessar fjallsbrúnir urðu glæsilegra þegar nær dró...


Að þetta skuli ekki hafa nafn...


Litið til baka...


Þrengslin framundan...


Þurftum stun dum að fara fyrir oran... sjá litina hér...


Áþreifanlegt að sumrið er komið...


Jarðhitasvæði eins og allur Hengillinn... magnað náttúrufyrirbæri þessi Hengill...


Við fórum upp vinstra megin... en sáum fleiri leiðir hér upp...


Litla Skarðsmýrarfjall fjærst... nafnlausir hnúkar hægra megin...


Við gengum fram á brúnirnar í Þrengslunum og komumst ekki lengra... þurftum að lækka okkur og fara hér yfir ána...


Rjúkandi hiti og litir hér...


Einstakur staður...


Upphitun fyrir sumarið... stikla hér eða vaða...


Gott að gera þetta sem oftast...


Sumir tóku vaðskóna og kældu fæturna...


"Hengladalabrúnir"...


Þrengslin... þar sem áin þrengir sér milli fjalla.,..


Hér opnaðist svo smám saman aftur ofar...


Spriklandi sumarið er komið... græni liturinn er mættur...


Mýrargult...


Náttúran er með augun hjá sér...


Eitt stykki íshellis hér við Þrengslin...


Allt að kvikna...


Yndislegt...


Ofan við Þrengslin fórum við ofar...


Nafnlaus hnúkur... mjög fagur.. fjær hægra megin er Stóra Skarðsmýrarfjall...


Stórs Skarðsmýrarfjall fjær...


Hengladalaá rennandi í gegnum Þrengslin... Litla Skarðmýrarfjall fjær vinstra megin...


Yndisleg samvera og ljúf útivera... en þetta var samt ágætis fjallganga...


Þétt upp hér að kanna með leið alla leið upp...


Fórum vinstra megin...


Litið til baka...


Skálafell á Hellisheiði fjærst hægra megin...


Brattara ofar og þjálfarar tóku hópinn bak við brúnirnar og lóðsuðust þar upp en Birgir tók hrygginn og lék sér að því en grjóthrunið var ekki fyrir hóp að fara um að hans sögn svo það var ágætt að við tókum bakdyraleiðina...


Litið til baka...


Þessi leið minnti á Hraunsnefsöxlina... brattinn...sveigjan á bak við... klöngrið upp efst...


Hér fór Birgir upp hrygginn en við völdum bakbrekkurnar...


Fínasta leið og mjög gaman að kanna nýjar slóðir og vita ekkert hvort við komumst upp nema prófa...


Jú, saklausara hér og grónara...


Komin upp... hæsti tindur dagsins var á þessum nafnlausu hnúkum... 611 m


Þessi gæi... kláraði 20 tinda á 12 dögum í 19 fjalla áskorun Toppfara í maí... hann elskar þessar afmælisáskoranir... því þá eru fjallgöngur en ekki eitthvurt malbikslabb í borginni í boði dag eftir dag...


Heiðin uppi... nú fékk gps-tækið loksins að ráða... en ekki landslagið... og þá var nokkur spölur á Kýrgilshnúk... sem við héldum lengi vel að væri ysti hnúkurinn á þessum brúnum... en svo var ekki...


Þessi hrikalega fallegi tindur var einn af nokkrum í "Hengladalabrúnum"...


Við gengum til enda... Hrómundartindur og félagar hér vinstra megin í fjarska...


Heilmikil vegalengd þarna uppi...


Komin fram á brúnirnar... og neðan við þær blasti Kýrgilið við... nafnlaust hnúkur vinstra megin... og Kýrgilshnúkurinn svo hér hægra megin...


Jæja... þá var ekkert annað í stöðunni en lækka sig hér niður og ganga á þennan Kýrgilshnúk... ha, er það ekki annars ? jú... allir til í það !


Þjálfarar leituðu að leið niður og völdu fyrstu sem gafst bratt... en vel fært... og ágætlega gróið... svolítið grjóthrun en við gættum okkar...


Mjög skemmtilegt klöngur...


Komin niður... við þurfum að ganga á þennan hnúk vinstra megin við tækifæri... þjálfari spann nýja leið fyrir næsta ár hér...


Kýrgilshnúkur... þjálfari giskaði á að við yrðum 15 mín upp... til að telja kjark í menn... við vorum 18 mínútur... þetta var nú ekki meiri viðbót en það...


Litið til baka á brúnirnar og leiðina okkar niður hér hægra megin...


Heilmikið brölt en í sumarfæri og aðstæður gátu ekki verið betri úr því þetta var svona mikill könnunarleiðangur !


Litla Skarðsmýrarfjall og Skálafell á Hellisheiði hér í fjarska... Hjörtur hér á leið upp Kýrgilshnúkinn...


Kýrgilið í allri sinni dýrð...


Útsýnið niður af hnúknum... svo falleg... hann mældist 544 m hár...


Nesti hér með fæturna spriklandi fram af brúnunum...


Dásamlegur nestisstaður... logn og hlýtt...


Og útsýnið upp á fjöll Þingvalla og yfir Þingvallavatn að hluta...


Hengladalabrúnirnar hér hægra megin...


Best að tygja sig af stað til baka...


Önnur hópmynd með Þingvelli í baksýn... enn erum við að safna nýjum fjöllum í safnið á tuttugasta starfsári sem eru svona nálægt borginni... það er frábært...


Við fórum til suðurs út eftir Kýrgilshnúk... hann er auðveldur uppgöngu frá þeim hluta...


"Hengladalabrúnir"... já, þær eiga skilið nafn þessar fjallsbrúnir er það ekki ?


Heilmikið jarðhitasvæði hér... fórum niður á grasinu hérna næst...


Niðri beið okkar struns yfir móa og þúfur...


Hengladalabrúnirnar enn einu sinni... heilmikið landslag og víðfeðmt...


Bakaleiðin var drjúg... og fínasta æfing fyrir þá sem lítið hafa gengið í vor...


Hengladalaá...


Þúfurnar voru rosalegar á köflum !


Komin í bílana... eftir aðeins lengri göngu en við áttum von á... og óvænt aukafjall í farteskinu... eins og þjálfari sagði á fb: "Maður hefur ekki lifað"... fyrr en maður hefur spáð í eytt orku í að finna leið og klöngrast upp fjall sem maður hélt að væri aðalfjall dagsins... en kemst að því að það er við hliðina á þessu sem tók alla orkuna og tímann... og fer þá auðvitað líka upp á það... og skilar sér heim með þrjú ný fjöll í safnið en ekki bara tvö... við mælum með þessu !


Mikið spjallað og hlegið og spáð í nafngiftir... og allir ánægðir þó við værum heldur seinna í bæinn en við áætluðum eða rúmum klukkutíma...


Alls 10,9 km á 5:11 klst. upp í 465 m, 611 m og 544 m hæð með alls 575 m hækkun úr 345 m upphafshæð...



Takk elskur fyrir ljúflingsdag sem var skínandi góð æfing og eftirminnilegur könnunarleiðangur !



Comments


bottom of page