top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Ljósárfossar um Ljósártungur frá Launfitjarsandi í birtu og hlýju af öðrum heimi...

Tindferð nr. 366 laugardaginn 29. ágúst 2026


Það var allt hrímað laugardagsmorguninn á síðustu helginni í ágúst...


Eins stigs hiti... breyttist rétt eftir að þessi mynd var tekin...


Þjálfarar gleymdiu sér aðeins... og hóuðu öllum á Hvolsvöll en ekki Hellu.... en það tók þrjár mínútur að keyra til bakaað aflegjaranum inn með Keldum...svo þetta kom ekki að sök.. enda mun betri aðstaða á Hvolsvelli en á Hellu til að hittast...


Aksturinn upp með Keldum er jepplingafær... og tók alls 3 tíma... eftir óþarflega miklar tafir á Hvolsvelli og við Keldur... á svona öngum dögum þurfum við að passa tímann vel... það munar alveg um að vera kominn 45 mín fyrr í bæinn um kvöldið...


Hafrafell... við ætlum á það einn daginn...


Mættum krossurum... á leið niður eftir... fjöldinn allur af jeppafólki var á leiðinni...


Leiðin er greið að mestu og fljótfarin... hægt að gefa vel í á þessum sandi... en svo koma kaflar með hraunnibbum líka... Laufafellið hér framundan...


Gulla, Oddný T. og Sigrún Eðvalds gistu í tjaldi við Laufafell nóttin á undan... aðdáunarvert...


Við þurftum jeppa til að komast meðfram Laufafelli og yfir Laufalæk, Markarfljót og Ljósá... og það voru of margir neppar... þannig að einn var m.a.s. skilinn eftir við Keldur... eins og í gamla daga... ótrúlegt !


Laufafell... þarna vorum við í fyrra í september... og sáum þá Ljósártungurnar blasa við... og þannig varð þessi ferð til...


Akstursleiðin í skarðinu milli fjalla er stórkostleg...


Þaðan er eingöngu jeppafært... enda keyrt í læknum hluta af leiðinni... sjá myndbandið...


Laufafellið svo fagurt þennan dag... og skipti stöðugt litum...


Sprænur hér...


Markarfljótið...


Þjálfarar þekktu ekki leið dagsins... voru eingöngu búnir að teikna hana á gps-kortið... og tið viðmiðunar voru göngur annarra á wikiloc... sem voru úr alls kyns áttum... erfitt að átta sig á landslaginu en við vissum að það yrði giljótt... og við leituðum hér að jeppaslóðanum sem við héldum að lægi upp með Ljósá... en fundum ekki þann rétta...


Snerum við á fleiri en einum stað...


Og enduðum á að leggja bílunum eftir Ljósá við Launfitjarsand... grunlaus um að jeppaslóðinn upp með Ljósártungum væri steinsnar ofan okkar... út frá leiðinni sem við höfum áður farið með Toppförum að Álftavatni...


En þetta km ekki að sök... var um 1,3 km viðbót aðra leið... og þrammið eftir veginum í lok dags hefði vel mátt missa sín... þá var fyrsti kaflinn mjög fallegur og svolítið umlykjandi með því að ganga upp með Ljósá þar sem hún fellur fram úr fjöllunum... af þeim kafla hefðum við ekki viljað missa...


Lögðum af stað kl. 11:30... hefðum getað verið 30 mín fyrr á ferðinni með minna hangsi... það er okkar þjálfaranna að strjórna þessu... en um leið er gott að vera aldrei að flýta sér...


Við bókstaflega gengum meðfram fjallgarðinum...


Óskaplega fallega leið...


Hvílík fegurð... Laufafell...


Dýjamosinn svo skær...


Litið til baka... Hagafellið hér hægra megin...


Litirnir voru mjög skærir þennan dag...


Komin í aura Ljósár...


Hér þurftum við að koma okkur upp úr árfarveginum...


Sandurinn mjúkur ólíkt harðneskjunni þar síðustu helgi kringum Frostastaðavatn...


Á leið upp fyrstu Ljósártunguna...


Enn eitt kyngimagnað sjónarhornið á Laufafell...


Hér blasti Ljósá við í allri sinni ljósu dýrð... úr þessum fjöllum kom hún... og við vissumn ekkert... hvað beið okkar...


Mændum á fjöllin ofan alls... þarna þurfum við að fara einn daginn...


Við gengum meðfram ánni upp eftir...


Ofar tókum við eitt gil sem var á milli... vildum vera nær ánni... vorum komin of langt frá í eltingaleik við gps-slóðir annarra...


Ljósi liturinn réð ríkjum þennan dag...


Og allir mögulegir aðrir litir mættu líka á svæðið...


Appelsínugulir lækir niður eftir fjöllunum...


Hnefinn... í berginu... magnað !


Ýmir og Ýma... Tindjallajökull í allri sinni síðsumarsdýrð... sjaldgæft sjónarhorn...


Litið niður eftir... Hagafell hér grænt hægra megin við miðja mynd...


Nestispása hér meðan Hermína og Örn skutust niður eftir að leita að mittistösku Hermínu sem gleymdist í fataskiptum neðar... hún fannst sem betur fer...


Ljósárgil...


Við héldum áfram eftir góða nestispásu...


Birtan einstök þennan dag...


Laugavegsfjöllin þarna í fjarska... með Mýrdals- og Eyjafjallajökli... þarna fórum við svo helgina á eftir... á Bláfjöll upp með Bláfjallakvísl... nær eru Brattháls og Torfatindar... þau verða gengin á næsta ári kringum 'Alftavatn...


Komin á stíg hér...


Neðri fossarnir nálgast... en það vissum við samt ekki á þessum tímapunkti...


Laugavegsgönguleiðin steinsnar frá... niður Jökultungurnar... að Álftavatni...


Neðri fossarnir... allt í einu sáum við hann... og vissum nokkurn veginn að þetta væri sá neðri... miðað við ljósmyndir á veraldarvefnum...


Sáum að það voru stígar þarna niðri... og ákváðum að elta þá...


Áttum eftir að standa á brúnunum þarna seinna um daginn...


Hugsanlega sést í efsta tind Bláfjalla aftast um miðja mynd...


Niður í dalinn að fossunum...


Inn með fossunum...


Hvílíkir litir á þessum fjöllum...


Þröngt gilið og fleiri fossar þarna niðri...


Upp ásinn meðfram fossunum...


Hvílík mynstur... hvílíkt sköpunarverk...


Sá sem gaf Ljósá nafnið sitt... átti alla okkar aðdáun... allt í umhverfinu var nefnt í höfuðið á henni.. Ljósártungur, Ljósárgil, Ljósártungur, Ljósárfjöll, Ljósártangi...


Mynstrið...


Magnaður hópur á ferð...


Ljósárgil... og Hagafell í botninum handan Launfitjarsands...


Við gengum ofan við fossana... nóg vatn á leiðinni í þetta skiptið...


Komin nær aðalfossinum....


Út á ystu nöf þeir sem lögðu í það...


Torfatindar og Brattháls...


Sjá mynstrið í berginu...


Eins og tákn...


Kletturinn ofan við fossana...


Þetta var magnaður dagur...



Við héldum áfram... vissum að það væri annar foss eða réttara sagt aðrir fossar ofar...


Landslagið minnti á svæðið við Landmannalaugar... og Laugavegsgönguleiðina enda vorum við á þeim slóðum í raun...


Hér eltum við ána... en vorum fljótlega komin út af þeirri leið sem þjálfarar ætluðu...


Komin í Jökulgil sem svo heitir... ekki þetta eina sanna við Landmannalaugar heldur annað... og slóðinn á gps var ofar og innar...


Harðir snjóskaflar... þeir eru minni nú orðið en voru hér áður fyrr á þessu svæði...



Mjög falleg leið...




Kaldaklofsfjöll hér efst í dalnum... og neðan við þau eru Laugavegsgönguleiðin...


Sjá klettana í hverri fjallstungu... mjög sérstakt landslag...

Þjálfarar áttuðu sig á því hér að þeir voru í röngum dal... gps-slóðin sem þeir studdust við var handan við fjallshlíðarnar vinstra megin... þetta var Jökulgil hér...


Og þá var ekkert annað í stöðunni en fara upp hlíðarnar og setja stefnuna á efri fossinn þar sem okkur grunaði að hann væri... en við vorum ekkert viss um staðsetningu hans.. eingöngu hvar menn hafa verið að ganga á svæðinu og hér virum við komin úr alfaraleið...


Áin hér niður er nafnlaus og áin þar sem efri fossinn er í er t. d. ekki merkt Ljósá heldur áin í næsta gili... en líklega er réttast að líta á allar þesar kvíslar sem hluta af Ljósá þar sem hún dregur til sín allar kvíslarnar smám saman úr fjöllunum...


Þessi á í Jökulgili var allavega ljós...


Við vorum í ríki Torfajökuls...


Sterkir litir og miklar andstæður...


Sami konfektkassinn og við Landmannalaugar... í Torfajökli... við Grænahrygg... o.s.frv...


Þjálfarar sáu út leið upp hlíðarnar... og stefndu þangað... en sáu svo að þessi á væri líklega fær og tóku slaginn upp...


Fínasta leið upp...


Hvergi torfærur né hindranir...


Laufafellið og Hagafellið farið að birtast aftur... niður þessar bungur komum við svo eftir efri fossinn... þarna upp hefðum við átt að koma.. gilin eru fljót að afvegaleiða mann í þessu landslagi...


Bröltið gekk vel upp...


Um leið og við komum upp á brún... blasti þetta við okkur... svakalegt !


Þarna var hann... fossinn... og bláu hryggirnir kringum hann... umluktir gulu hryggjunum... og rauðu... hvílíkt landslag...


Rétt missti af strákamyndinni... þeir voru samt fleiri karlmennirnir í þessari ferð...


Hópmynd ferðarinnar, alls 20 manns - 12 konur og 8 konur:


Gulla, Hjörtur, Bjarni, Sighvatur, Fanney, Erik, Sjöfn Kr., Olli, Örn, Sigrún E., Helgi, Oddný Sif, Dóra Thorsteinsson gestur, Áslaug, Vilhjálmur, Jóhana D., Oddný T., og Hermína og Bára tók mynd og Batman og Kolka voru með en Kolka sést hér svo virðuleg eins og Kórstjóri...

Við ákváðum að fara niður á bunguna næst fossinum en ekki menga gilin með traðki niður í þau... vorum ekki viss hvar menn fara vanalega en sáum á gps að menn eru almennt frekar að koma frá bungunum vinstra megin og koma þá skáhallt að fossinum...


Landslagið var lygilegra en skáldskapur…


Okkur setti hljóð...


Mynd ferðarinnar...


Agndofa...


Torfært landslag og ekki auðvelt að fara hér um... nema marka spor í hryggina og hlíðarnar og það vildum við ekki gera...


Neðri foss í þessum efri fossi...


Magnaður útýnisstaður... þetta var framar vonum...


Engillinn hún Fanney.... í prjónaðri peysu sem passaði vel við liti dagsins... gleði og hlýja... við erum óendanlega lánsöm að hafa hana innan okkar raða...


Appelsínugilir lækir niður græna hryggina…


Hér tókum við ljúfa nestisstund með fjöllin í fanginu og Batman fékk vatnssopa hjá Oddnýju...


Erfitt að yfirgefa þennan dallega stað... en nokkuð liðið á daginn og við vorum himinlifandi með að hafa upplifað tvo svona ólíka fossa...


Birtan þennan dag var með ólíkindum…


Litið til baka...


Þjálfarar eltu gps-slóð sem þeir voru með í leit að annarri leið til baka... leið sem við hefðum getað farið á upleið... en við vildum ekki hafa viljað misst af Jökulgilinu... og upplifa svæði Ljosár opnast svona skyndilega fyrir okkur upppi á brúninni...


Allt skorið í giljum og hryggjum... við sáum að fara þurfti ofarlega til að ná rétta hryggnum... of snemma niður... þá værum við í vandræðum....


Hryggurinn til að komast niður í Jökulgilið þar sem Ljósáin mætir var hér hægra megin…


Við sáum gönguhóp mun neðar á tungunum nær Laufafelli og reyndum að átta okkur á því hvaða leið þau væru að fara… þau gengu niður eftir sem þýddi að þau hafi verið á leið frá fossunum… mjög óvenjulegt að sjá aðra gönguhópa þar sem við erum… en það er þó helst á Landmannalaugasvæðinu sem það gerist…


Tungurnar… eins gott að vera ofarlega því annars eru þetta upp og niður…


Komin á rétta tungu...


Jökulgil...


Frábær leið… hér upp hafa menn farið… ekki upp eftir ánni eins og við gerðum og svo upp brekkurnar en það munaði engu í raun og mun áhrifameira að koma beint upp á brúnina og sjá grænu hryggina blasa skyndilega við svo við vorum hæst ánægð með leiðarvalið í enda dagsins…


Mikið rætt um já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið en ólíkt mörgum þá gátum við rætt þetta í rólegheitunum og deilt ástæðum fyrir því að við kusum já eða nei… ekkert vesen, engin leiðindi og engin illindi… fólkið sem var algerlega sannfært um rétta svarið var eiginlega erfiðast í þessum kosningum… það var hollast að vega og meta og sjá kosti og galla beggja kosta…


Komin að Ljósá aftur...


Þjálfarar ákváðu að ganga niður með ánni frekar en að þræða gilin upp og niður fjórum sinnum…


Upp hrygginn...


Stikluðum nokkrum sinnum yfir ána...


Alveg nauðsynlegt að æfa svona stiklun og temja sér að hika ekki heldur láta vaða… og vera í skóm sem þola smá stiklun því þá er maður aldrei blautur í fæturna… utanvegahlaupaskór eru blautir í gegn um leið…


Magnaður kafli...


Hækkuðum okkur stuttu fyrir fossana… og sáum að gönguhópur var að koma niður að þeim hinum megin… hvort þetta var gönguhópurinn sem var neðarlega á tungunum fyrr um daginn var erfitt að segja en mjög líklega…


Sjá hinn hópinn hægra megin...


Að nálgast fossana hér…


Einhver kallaði á nafn Báru þjálfara… jú, þarna var Steina frænka… en gaman ! Menn kölluðust á og þetta var gönguhópur á vegum Reykjalundar…


Þau voru rétt á eftir okkur…


Komin aftur að neðri fossi dagsins… en nú komið ofan frá og einhvern veginn var þetta allt öðruvísi en fyrr um daginn… sem er oft það sem gerist þegar maður fer fram og til baka… eins og við viljum helst aldrei gera það…


Stórbrotið landslag og stórkostlegt útsýni…


Við reyndum að gæta þess að gönguhóparnir blönduðust ekki og það tókst…


Síðdegisbirtan sem nú tók við gaf allt aðra ásýnd á landslagið en fyrr um daginn…


Gnóttin sem einkenndi myndirnar þennan dag… ótrúlegt...


Þarna sást aðeins í Álftavatn… Brattháls og Torfatindar… árið 2027… við eigum stefnumót… og þangað komast bara jeppar !


Álftavatn... Smáfjöll og Stórkonufell og Mófell og Mýrdalsjökull...


Mögnuð birtan !


Leiðin til baka var svo á stíg og jeppaslóða það sem eftir var… þjálfarar höfðu áætlað að fara hugsanlega um Ljósártungurnar norðan megin við Ljósá í bakaleiðinni en hurfu frá því þegar landslagið blasti við… það hefði verið allt of tafsamt og lengt gönguna of mikið… það svæði fær sérferð einn daginn…


Við sáum tvo jeppa á brúninni ofan Ljósár… og sáum þegar nær kom að þetta voru Econoline bílar…


Það var ekki hægt annað en dást aftur að Ljósárfossum hinum neðri…


Þegar að jeppabílunum þekkt anna bílstjórinn Batman… og þá kom í ljós að þetta var Árni sem er nágranni þjálfara í sveitinni… Íris var þá fararstjórinn í hinum gönguhópnum og í honum var fólk sem sumir Toppfarar þekktu…


...meðal annars Steina frænka sem er mikill fjallagarpur og gönguskíðakona og meðal annars smali á sjálfu Landmannalaugasvæðinu ásamt Hugrúnu systur sinni sem hefur stundum deilt gps-slóðum á wikiloc sem við höfum notið góðs af…


Þau komu sem sé frá Hrafntinnuskeri þar sem stóru bílarnir höfðu keyrt hópinn og gengu þaðan um 8 km að þessum stað hér í gegnum Ljósárfossana… og ætluðu svo að gista í Dalakofanum… tær snilld hjá þeim…


Íris er einstök afrekskona sem leiðsagt hefur mörgum gönguhópum áratugum saman og meðal annars gefið út útivistarbækur um svæði sem hafa ekki verið eins mikið í tísku og þau vinsælustu… alger nagli og þau bæði hjónin…


Eftir allt of mikið spjall og skemmtilegheit með hinum gönguhópnum hundskuðumst við áfram niður brekkurnar á veginum… og hugsuðum… afhverju keyrðum við ekki hingað upp eftir í morgun ha ?


En… eftir á að hyggja… hefðum við ekki viljað hafa þetta öðruvísi… það var magnað að rekja sig upp eftir Ljósá en ekki stytta sér leið að svæðinu… þetta var einfaldlega magnaður dagur og alger veisla frá fyrsta skrefi til hins síðasta…


Þrammið var hollt og gott og bætti tæpum 3 km við gönguleið dagsins… svo við enduðum í 15 km í stað 12 km en samt héldum við áætlun með 6 klst. göngu… svo þetta slapp…  


Allt önnur ásýnd á Laufafellið núna en fyrr um daginn… af því hefðum við ekki viljað missa…

Hér hitti Bjarni vini sína á fjórhjólum sem heilsuðu upp á hann og hann missti af síðustu mönnum síðastat kílómetrann að bílunum… en hann fékk ekki far heldur arkaði þetta á eftir okkur og vildi auðvitað ekki svindla á vegalengd dagsins… 😊 


Komin í bílana...


Alls 15 km á 6:12 klst. upp í 975 m hæð með alls 722 m hækkun úr 570 m upphafshæð…


Allir alsælir og þreyttir eftir magnaðan dag… á algeru dóli að njóta og drekka inn fegurð sem á fá sína líka í heiminum… það er mikið lán að eiga heima á Íslandi og geta skroppið svona upp í fjöllin á laugardegi… og komið heim fullur af slíkri birtu að hvorki orð né myndir lýsa því nægilega vel…


Kolka og Batman eru algerir fjallahundar...


Aksturinn heim tók tæpa 3 tíma… komin í bæinn um kl. 21… nægur tími til að kjósa… eins og reyndar fáir áttu eftir að gera…


Laufalækur... keyrt í honum að hluta til...



Hjartansþakkir fyrir ólýsanlegan dag !



Comments


bottom of page