top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Lágafellshamrar og Lágafell öfuga leið í dagsbirtu og sumarfæri

Æfing nr. 896 þriðjudaginn 14. júlí 2026


Þjálfarar ætluðu að bjóða klúbbfélögum upp á mergjaða þriðjudagsgöngu á Mófell og Ok norðan megin í Skarðsheiði en þar sem rigningardumbungur og þoka var í kortunum... eins og meira og minna í allt sumar... þá var afráðið að vera ekki að keyra í klukkutíma og ganga í fjóra tíma og keyra aftur til baka í klukkutíma... í slíku veðri... og þar sem Spánn og Frakkland voru að keppa þetta kvöld kl. 19.00 á HM í 4ra liða úrslitum... þá ákváðum við að kjarna æfinguna og fara öfuga desemberleið á Lágafellshamra og Lágafell og njóta þess að upplifa hana í sumarfæri og dagsbirtu...


Skógurinn orðinn þéttur norðan megin og kominn stígur í sumar í gegnum hann...


Ótrúlegt til þess að hugsa að þetta voru bara litlir græðlingar fyrst þegar við gengum hér árið 2008...


Mergjuð leið... upp snarbratta hlíðina undir klettahömrunum... Úlfarsfell er glæsilegt fjall í norður og norðvesturhlutanum...


Tíu manns mættir og þar af einn nýliði... hún Kristín Ásta sem skráði sig á dögunum ásamt Herði manni sínum og féll hún vel í hópinn...


Vel gróið og allt rakt og þægilegt uppgöngu... '


Stórkostleikur og ekkert annað... inni í miðri borg... ómetanlegt að eiga þessi Mosófjöll öll en Reykjavík á nú hluta af þessu fjalli líka...


Kletturinn í nálægð...


Mikið spjallað og skipst á ferðasögum það sem af er ferðum sumarsins...


Hópmynd kvöldsins... mættir voru 10 manns; Hjörtur, Sighvatur, Guðjón, Linda, Þorleifur, Kristín Ásta, Birgir martin, Siggi og Bára og Batman og Mía voru með og nutu þess að mæta á fjallgönguæfingu...


Snarbratt... en vel fært...


Blikastaðalandið... hvað ætli við höfum þetta fallega sveitabýlisútsýni í mörg ár lengur ? Búið að skipuleggja þarna mikla byggð og þegar komin nokkur hús sunnar á svæðinu út af mynd...


Fuglinn á hreiðrum í klettunum...


Við svitnuðum ágætlega upp þessa brekku... enginn vindur, mjög hlýtt og engin úrkoma...


Efsti hlutinn...


Þjálfari hefur augastað á tveimur uppgöngustöðum í norðuhlíðunum milli þessarar brekku og Skarhólamýrarslóðans... prófum þau gil síðar...


Batman í skýjunum með að fá sínar þriðjudagsæfingar aftur með bestu göngufélögum í heimi...


Tókum smá klöngurkafla efst frekar en að fara skriðurnar...


Mjög flott leið... dásamlegt að vera hér í dagsbirtu og sumarfæri og njóta græna litarins og útsýnisins...


Lágskýjað... eins gott að við keyrðum ekki í klukkutíma til að ganga í þoku...


Farið eftir brúnunum til austurs að stígunum við Skarhólamýri...


Fljótlega komin á hjólastíg sem við höfum ekki gengið áður...


Úlfarsfellið tekur stöðugum breytingum... hvílík perla innan borgarmarkanna...


Já takk ! Birgir Martin hjólaði á æfingu þetta kvöld.... úr Breiðholtinu hvorki meira né minna ! Vel gert og líklega annar í sögunni sem gerir þetta !


Alls 5,2 km á 1:48 klst. upp í 266 m á Lágafellshömrum í Úlfarsfelli og 123 m á Lágafelli með alls 299 m hækkun úr 91 m upphafshæð.


Hafursey og Hatta á laugardaginn og spáð er bongóveðri... en áfram rigningu og þungbúnu veðri á vesturhluta landsins... best að ná í smá snefil af þessu bongóveðri á austurhluta landsins úr því það er í akstursfjarlægð...

Comments


bottom of page